Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2015

Ónotahávaði og skarkali, sem endar í langneðsta sæti, eða neðar

jurosing.jpgJæja, svo að Salka Sól er ein af þessu lekaliði, sem gert hefir garðinn hvað frægastan uppá síðkastið. Fyrst svona er í pottinn búið er ekki annað að gera í stöðunni hjá þeirri veleðla dömu en að segja af sér og skammast sín. Það má heita hrollvekjandi ástand með þjóðinni, að nú getur aunginn þagað yfir neinu og svínaríið er algjört.

Um söngvakeppninni atarna er fátt gott að segja en þeim mun meira ljótt. Til dæmis eru fyrirbrigðin, sem okkur er sagt að séu sönglög, þannig úr garði gjörð, að þau valda velgju og hlandaulahrolli hjá áheyrendum og skilja aðeins eftir sig minningu um óljósan ónotahávaða eða skarkala án merkjanlegrar laglínu. Auðvitað er öllum sama hvaða sýnishorn af væmnu grénji er sent til keppni erlendis, nema hvað þjóðin vonar að framlag hennar lendi í langneðsta sæti eða jafnvel enn neðar.

Á heimili frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar horfðu allir á söngvakeppnina og sýndist þar sitt hverjum. Brynjar Vondalykt var mest upplyftur af litlu telpunni, sem sögð er 16 ára en er í raun og veru 13 ára spurningastúlka, og leyfði sér fáheyrðan munnsöfnuð um lag, ljóð og flytjanda. Í sama streng tóku Óli Apaköttur og Haffi Frænka. En Máría Borgargagn tók afstöðu með einhverjum leppalúða, sem það kallar Björn Jörhund, með þeim orðum að hann væri svo getnaðarlegur að hann gæti auðveldlega barnað áttræða kerlingaskrukku. Frú Ingveldi og Kolbeini varð því miður sundurorða um fammistöðu Ragnhildar Steinunnar og frekjulegu kvinnunnar sem með henn var. Lauk rifrildinu með því að Kolbeinn kallaði eiginkonu sína ,,helvítis andskotans öfugugga" en frú Inveldur svaraði sínum misjafnlega elskaða eiginmanni og framsóknarmanni með því að hrinda honum inná gestasalerni og læsa hann þar inni.


mbl.is Ljóstraði óvart upp leyndarmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta ólánslið eyðilagði samtök sósíalista á Íslandi

flokkseigendur_786424Það ku hafa verið vinsælt sport hjá öfgafullum sjálfstæðismönnum, fyrr á árum, að njósna um kommúnista og máttu meintir kommúnistar löngum hafa raun af að hafa hina útsmognu njósnadrengi sífellt á hælunum. Ekki er vitað hvort sjálfstæðismenn stunda enn kommúnistanjósnir, eða hvort þeir hafa vanið sig af þessum ósið. En líklega stunda öfgasjálfstæðismenn njósnasportið sitt enn, enda oft erfitt að vejna sig af spennandi þráhyggju byggða á andlegu meini.

Það er því ekki nema von, að núverandi Flokkseigandi númer 1., Álfheiður Ingadóttir, nú til heimilis hjá VG, setji upp stertinn og taki til við að baula hástöfum í tilefni af því að Borgarskjalasafnið lét eftir sér að bendla fyrrum Flokkseiganda númer 1. við njósnir um kommúnista fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þeir hjá Borgarskjalasafninu eignuðu semsé Inga R. Helgasyni, föður Álfheiðar, eitthvert njósnakver sem lenti í höndunum á gamla Bjarna Ben. Nú er það mála sannast, að Ingi R. Helgason var á sínum tíma Flokkseigandi númer 1. í Alþýðubandalaginu og pólitísk afkvæmi hans eru ekki minni liðsmenn borgarastéttarinnar en Svavar Sendiherra og Steingrímur J. Sigfússon, sem manna mest hafa lagt að mörkum við að eyðileggja samtök sósíalista á Íslandi.

Þó svo að Álfheiður, Sendiherrann, Steingrímur og aftaníossar þeirra Flokkseigendafélaginu hafi á einhverjum tímapunkti fyrir marg löngu haldið að þeir væru sósíalistar þá er það liðin tíð sem kemur aldrei aftur. Flokkseigendahersingin gekk nefnilega hægri framsóknarkratismanum á hönd og gerðist hluti borgarastéttarinnar, án þess þó að leggja Flokkseigendafélagið niður, með þann fróma vilja í farteskinu að leggja samtök sósíalista í rúst. Og þessum snillingum hefir tekist ákaflega vel til, svo sem sjá má á hörmulegu ástandi undanrennuflokksins VG.


mbl.is Biður Álfheiði afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hið innsta eðli - Toni Ómos endurreistur - Samkvæmi undirbúið

xd1_1253260.jpgJæja piltar mínir, þá er ekkisens Hönnubirnumálinu lokið og aðeins á eftir að koma í ljós hvort Hanna Birna ætlar að gera þjóðinni þann sjálfsagða og eðlilega greiða að segja af sér þingmennsku. Þá mun tíminn leiða í ljós hvort Sjálfstæðisflokkurinn á ekki í pokahorninu sendiherrastöðu til að verðlauna hinn fallna vonarpening eins og Flokkurinn gerir gjarnan við sína bestu menn. Hinsvegar er borðliggjandi að Flokkurinn mun leggja sig í framkróka með að hylja þá staðreynd, að í Hönnubirnumálinu kom hans innsta eðli fram á fremur óheppilegan hátt. En innsta eðli Sjálfstæðisflokksinns er sem kunnugt er á þá leið, að hann eigi allt og megi allt.

Í ljósi síðustu atburða má ljóst vera, að Sigmundur Davíð og Bjarni Ben verða að leggja land undir fót og hafa uppá hinum burtrekna Tona Ómos, biðja hann fyrirgefningar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og bjóða hann velkominn til Íslands. Og til að bæta fyrir brotið gegn Tona, ættu þeir kumpánar ennfremur að bjóða piltinum að búa ókeypis í ráðherrabústaðnum á Þingvöllum í tvo ár, fæða hann og klæða, ljá honum ráðherrabifreið með bílstjóra í þessi tvö ár og veita honum heimild til að sækja alla ríkisstjórnarfundi að eigin vild á sama tímabili.

Þegar frú Ingveldur frétti af áliti umboðsmanns í morgun, varð henni svo mikið um, að hún pantaði sendiferðabireið til að flytja sér heim 120 flöskur af sterku áfengi auk myndarlegra birgða af léttu víni og áfengu öli. Er viðbúið, að margt verði um manninn á heimili frú Ingveldar og Kolbeins eiginmanns hennar yfir helgina þar hortugheit og ósvífni umboðsmanns Alþingis verða rædd í þaula yfir dýrum veigum og ákvörðun tekin um til hvaða ráðstafanna verði gripið gegn þjóðinni útaf þessu hörmungarmáli, sem er, að mati frú Ingveldar og Kolbeins, ekki neitt helvítis mál heldur samsæri og einelti skítugra óþrifnaðarhunda á hendur framúrskarandi efnilegrar og rétthugsandi stjórnmálakonu.


mbl.is Samskipti samræmdust ekki reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vill Víglundur virkilega koma Steingrími á Litla-Hraun?

xgaduik.jpgÞað væri dægilegur andskoti, ef rétt reynist að Steingrímur okkar hérna joð hafði gefið einhverjum skuggalegum hákapítalískum ófétum milljarða á milljarða ofan. Fyrr má víst gagn gera í höfingskap og þjónkun við erkiauðvaldið hér heima og erlendis. Ef þetta eru þakkirnar, sem Steingrímur fær fyrir að hafa unnið á akkorðshraða samfleytt í fjögur ár, án svefns og matar, við að bjarga sálufélögum Víglundar Þorsteinssonar og endurreisa Gamla Ísland, þá er það trúlega heimsmet í vanþakklæti.

Ekki hefi ég hugmynd um hvað Vígalundi vill að gert verði við Steingrím fyrir að hafa fært auðvaldinu góðgerðir að hætti hússins. Ekki trúi ég að Vígalundi, eins handgenginn og hann er auðvaldinu, vilji að Steingrímur verði hnepptur í fangelsi fyrir rausnarskapinn. Á það máske fyrir dáðasta syni þistilfjarðarframsóknarmennskunnar að liggja, að kjaga í mörg herrans ár um ganga Litla-Hrauns, með járnkeðju með kúlu í endann festa um ökklann, innanum herfilegustu glæpamenn þjóðarinnar?

xg1.jpgÞað væri svosem nógu broslegt að sjá hina gömlu og góðu vinkonu Steingríms, Margréti Frímannsdóttur fangelsisstjóra, taka á móti fornvini sínum í anddyri Hraunsins og leiða hann, stjarfan af íllsku yfir vanþakklæti og vonsku heimsins, inní fangaklefa og loka hann þar inni bak við lás og slá.


mbl.is Stórfelld svik og blekkingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jólatré sem elskar ráðherrastóla

jol,,Það er eitt með öðru, að Steingrímur J. Sigfússon er svo falskur, að væri hann hljóðfæri væri með öllu útilokað að spila lag á það og enn meira útilokað væri að stilla það hljóðfæri, það bæri sama árangur eins og að reyna að snúa náttúruöflin niður með berum öndum." Þessa umsögn um undramanninn Steingrím Joðohohoho er að finna í ritsafni doktors Sigvalda H. Karlssonar mannfræðings, sem nýlokið hefur ítarlegri rannsókn á þessu sérkennilega og hornótta stjórnmálaskáldi.

,,Við erum öll Íslendingar" segir Steingrímur þessi, en á að sjálfsögðu við, að honum sé fjandans sama hverjir séu íslendingar, en eitt sé þó víst í hans huga, að hann sjálfur, Þorsteinn Már, Svavar Gestsson, Álfheiður Ingadóttir, Halldór Ásgrímsson og aðrir broddborgarar af þeirra kalíberi séu hinir einu sönnu Íslendingar með stóru Í-i, hitt liðið sé pakk, íslendingar með litlu í-i, sem gaman er að ljúga að fyrir kosningar. 

Í samkvæmum frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar hefir Steingrímur ávallt verið aufúsugestur. Aðrir gestir í samkvæmunum hafa svo einlægt haft sérstaka ánægju af að klappa kallrörinu á bakið, hlaða hann oflofi og spenna hégómagirnd hans svo í loft upp, að hann hefir poppað og skoppað um öll gólf eins leikhúsfígúra eða hershöfðingi úr góða dátanum Svejk. Um Steingrím orkti Óli apaköttur, sem er einn af fastagestum í samkvæmum frú Ingveldar og Kolbeins, kvæðið: ,,Ég er eins og jólatré" og hljóðar þannig:

,,Ég á flokk og fullt af fíflum,
og feitan kött sem passar sig
(en Þorsteinn Samherji og Swabbi eiga auðvitað mig.)
Úti er allt í sinu og njóla.
Ég er eins og jólatré
og elska ráðherrastóla."


mbl.is „Við erum öll eitt Íslendingar“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vill a.m.k. 100 tonn af Gústöfum Níelssonum

kind1.jpgJájá, nú bera framsóknargriðkurnar í borgarstjórn fyrir sig að þeim hafi ekki verið kunnugt um elskustig Gústafs okkar hérna til samkynhneigðra og því afi þótt farsælast að setja hann á ís um sinn. Það þýðir þá væntanlega, að griðkunum þyki ekkert athugavert við afstöðu Gústafs framsóknarhúskarls í öðrum málum. Þetta snotra leikrit er allt hin fróðlegasta og gefur ágæta vísbendingu um ærslafengin rassaköst húsbænda og hjúa í Framsóknarfjósinu.

Kolbeinn Kolbeinsson, skrifstofustjóri og framsóknarmaður, sagði í hádeginu, að félagi hans, Gútaf Níelsson, sé vænsti drengur, rétt hugsandi í alla staði og góður framsóknarmaður. Það séu einmitt fólk eins og Gústaf sem Framsóknarflokknum vanti sárlega á þessum erfiðu tímum. Og Kolbeinn bætti við af sinni alkunnu hógværð og miðjusæknu réttsýni, að hann hefði oft beðið Guð um að gefa Framsóknarflokknum í það minnsta 100 tonn af Gústöfum Níelssonum.

Því er við að bæta, að Framsóknarflokkurinn bauð Sjálfstæðisflokknum 650 milljónir í Óla Apakött og Brynjar Vondulykt, en frú Ingveldur kom því til leiðar innan Sjálfstæðisflokksins að tilboðinu var hafnað með þeirri athugasemd, að það væri útilokað að leiða frábærar mjólkurkýr inní Framsóknarfjósið til að láta klauffengna húskarla og ábyrgðarlausar mjaltakonur annast þær.


mbl.is Þekktu ekki til afstöðu Gústafs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

En þegar Eygló og Gústaf verða sest við borðið í reykfyllta bakherbergi Framsóknarfjóssinn, þá ríkir eindrægnin ofar öllu

xb3.jpgHvaða endemis kjánaskapur og barnalegt rugl er þetta í konunni Eygló Harðardóttur, sem gárungarnir í Framsóknarflokknum gerðu að ráðherra fyrir ekki svo alls löngu. Gústaf okkar hérna Níelsson, facebookvinur minn, er skoh í víðasta skilningi fullboðlegur í hvaða nefnd eða embætti fyrir Framsóknarflokkinn, enda samsamar hann sig ósköp vel nýfrasóknarsefnunni, sem leidd var formlega út úr skápnum fyrir borgarstjórnarkosningarnar síðast liðið vor.

Hvað þetta fjas í Eygló, þess efnis að skipan Gústafs í Mannréttindaráð Reykjavíkurbor sé óásættanleg, á að þýða er ekki gott að átta sig á við fyrstu sýn. Svo rennur náttúrleg upp fyrir manni sá glæsilegi sannleikur, að fussið í þessari litlu framsóknarmaddömu óekta, blekking, hræsni. Framsóknarmenn nútímans vilja nefnilega innleiða sína tegund af mannréttindum, en eru hræddir við að almenningi þyki þau ljót mannréttindi, þessvegna sé best senda litlu framsóknarmaddömuna á vettvang til að þykjast hneyksluð og full vandlætingar á afkvæminu. En þagar Eygló, Gústaf og borgarstjórnargriðkurnar í borgarstjórninni eru sestar við borð í reykfyllta bakherberginu í Framsóknarfjósinu með sjálfri gömlu heilsulausu Framsóknarmaddömunni, Sigmundi Davíð og kaupfélagsstjóranum á Sauðárkróki, þá ríkir mikil og fögur eindrægni þar sem allir eru svo innilega sammála um hina nýju og einstaklega sérstæðu mannréttindastefnu flokksins.

Eftirmáli: Nú hefir oss hrekklausum almenningi á Íslandi borist sú ógnvekjandi fregn til eyrna, að borgarstjórnrgriðkur gömlu Framsóknarmaddömunnar hafð fallið frá því að skipa Gústaf í Mannréttindaráð. En það er búið að prufukeyra karlinn og ryðja brautina fyrir hinni nýstárlegu mannréttindastefnu framsóknarkauðanna.


mbl.is „Óásættanlegt“ að skipa Gústaf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei, svona lagað gengur ekki

kolb3.jpgÞað er mál manna í öryggisráðinu, að skjaldan hafi jafn leiðinlegur náungi skjögrað uppí ræðupúlt ráðsins og vikapiltur Kaupfélagsstjórans á Sauðárkróki. Enda gengu allir viðstaddir á dyr þegar vikapilturinn hafði malað í þrjár mínútur og fullkomlega var ljóst að nákvæmalega ekki neitt væri á þessum kúnstuga íslendingi að græða annað en eintóna leiðindaloðmullu.

Útganga öryggisráðsfulltúa var auðvitðað svekkjandi fyrir Gunnar Braga, því hann ætlaði að nota tækifærið og segja þingheimi frá gifturíka kaupfélagsstjóranum, Halldóri, Finni, Óla bónda og skipakóngi og Alfreð Þorsteinssyni. Frammi á gangi bættu þrjótarnir í öryggisráðinu um betur og baktöluðu blessaðann framsóknardrenginn frá Íslandi; spurðu hvað svona skemmtiatriði ætti að þýða og kolblár þjór inna úr Afríkuskógum vildi meina, að í þokkabót væri stæk fjósalykt af fyrirbærinu og hann kærði sig ekki um svona bölvaða framsóknarfýlu.

Afturámóti hlustaði Kolbeinn Kolbeinsson framsóknarmaður af athygli á alla ræðu Gunnars Braga í tölvunni sinni og varð ekki um sel. Undir lok ræðunnar rann hann eins og slytti úr stólnum og undir borð. Kolbeinn Kolbeinsson hafði nefnilega aldrei heyrt önnur eins firn í ræðulíki og þá mikið sagt. Og undir borðinu tautaði hann eftirfarandi kviðling ofaní hálsmálið á sér:

Hann Sveinki er oft með árans hrekki,
á eitri drap hann föður sinn,
og mamma hans sagði: ,,Sveinki minn,
nei, svona lagað gengur ekki."


mbl.is Gunnar Bragi ávarpaði öryggisráð SÞ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það voru líka skothvellir og sprengingar í Reykjavík í dag

doll.jpgDag tilkynntu skelfdir nágrannar frú Ingveldar og Kolbeins lögreglunni, að hávaði sem líktist sprengjugný og skothríð bærist frá bílskúr þeirra hjóna og óttuðust nágrannarnir að brostið væri á stríð milli þeirra hjóna, sem lokið gæti með mannfalli. Þegar lögreglan kom á vettvang kom í ljós að í bílskúrnum fór fram borgaraleg æfing í að bregðast við múslimum, íslámistum og múhámeðstrúarmönnum.

Það voru þeir Kolbeinn Kolbeinsson, Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttur, ásamt frú Ingveldi sem tóku þátt í æfingunni, sem var einkar fagmannleg og innblásin af skærri hugsjón. Þau höfðu hengt upp útstillingargínu, sem frú Ingveldur hafði fengið léða hjá verslunnarfrúnni Sigurveigu Dræsu. Gínan var klædd í gamlan náttserk og gríðarlegt múhámeðsskegg hafði verið límt á andlit hennar. Æfingin fór fram með þeim hætti að karlmennirnir skutu án afláts með rifflum og haglabyssu á gínuna, en frú Ingveldur varpaði heimatilbúnum sprengjum á óvininn, hreinustu vítisvélum sem hægt er að granda lifandi fólki með. Og á meðan æfingunni stóð öskruðu fjórmenningarnir af öllum lífs og sálar kröftum: Ég er Sjarlí! Ég er Sjarlí!

Þegar lögreglan kom á staðinn, var henni boðið til stofu, og innan skamms barst nágrönnunum til eyrna gamalkunnugur samkvæmis- og drykkjuskarkali í stað sokothvella og sprenginga. Má því segja, betur hafi farið en áhorfðist byrjun. En eins og að líkum lætur er gínan, sem fyrrum skartaði silkikjólum í búðarglugga, í tættlum á bílskúrsgólfinu, sundurskotin og sprengd.


mbl.is Skothvellir og sprengingar í Belgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talsmaður lægstu hvata mannskepnunnar - eða hvað?

djöfsiÁsmundur Friðriksson þingmaður er ekki neinn sendiboði. Með óumbeðnum þvættingi sínum um múslima á Íslandi hefur hann gerst, vonandi óafvitandi, talsmaður viðhorfa sem höfða til lægstu hvata mannskepnunnar, viðhorfa sem mjög er er  hampað nú um stundir af einstaklingum sem fá útrás fyrir skítlegt eðli sitt og öfga með því að kynda undir rasisma, fasisma og nasisma. Ég trúi því ekki, að maður sem verið hefur bæjarstjóri og situr nú á þingi í umboði kjósenda, vilji vera í flokki með hinum ruddalega rasistaskríl sem opinberað hefur fávisku sína og innræti uppá síðkastið í fjölmiðlum og á netinu.


mbl.is Má ekki drepa sendiboðann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband