Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2009

Aðvirðilegt leiguþý kvótaþjófanna

herÞað má kallast ískyggilegur andskoti, að auðvirðilegt leiguþý kvótaþjófanna í LÍÚ, Ragnar nokkur Árnason, sem sagður er ,,hagfræðingur" sé einn af helstu ráðgjöfum Framsóknarflokksins varðandi þá ríkisstjórnarmyndun verið er að vinna að. Ragnar þessi Árnason hefur haft þann starfa undanfarin ár, ásamt Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, að færa kvótakerfið íslenska í jákvæðan, hagfræðilegan og hugmyndafræðilegan búning. Þrátt fyrir að kvótakerfið sé stórbrotnasti þjófnaður sem framinn hefur verið á Íslandi hefur Ragnar Árnason hamast eins og andskotinn við að gefa þessari mafíustarfsemi háskólastimpil í bak og fyrir. 

Að þessi lítilsigldi giljagaur sé einn af ,,ráðgjöfum" Framsóknar Finns Ingólfssonar, Ólafs Ólafssonar og Halldórs Ásgrímssonar, segir allt sem segja þarf um hvatirnar sem liggja að baki stuðningi Framsóknarflokksins við minnihlutastjórna VG og Samfylkingar. 


mbl.is Telur forsendur fyrir stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa ofin sauðargæra hinna reyndari húskarla

úlfurÓjá, ekki er það til farsældar fallið að reiða sig á hina elliæru og dauðvona Framsóknarmaddömu. Engu breytir þó gamla hræið hafi komið sér upp hálfsofandi yfirhúskarli á þokkalegum aldri. Við banabeð Maddömunnar voka eldri og reyndari húskarlar, sem hafa þann starfa að stjórna þeim syfjaða eins og leiðinlegri strengjabrúðufígúru. Hinir reyndu húskarlar heita nöfnum eins og Finnur Ingólfsson, Ólafur Ólafsson, Alfreð Þorsteinsson og Halldór Ásgrímsson, og eru þekktir fyrir að hafa sitt fram og halda sínum hlut. Að þeirra undirlagi var ofin sauðargæra úr fyrirbærunum Sigmundi Davíð, Birki Jóni og Eygló Harðar til að breiða yfir fráhrindandi og gráðugt ginið á hinum reyndu og slóttugu úlfum.

Þó Sjáfstæðisflokkurinn sé kominn í sorpdallinn er það ekki nóg, Framsóknarflokkurinn verður að hafna þar líka. Ástæðan er augljós: Samtök þjóðníðinga og glæpamanna ber að uppræta og í eldsofnin kasta.


mbl.is Ný ríkisstjórn eftir helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinna sig útúr hatursferlinu

konaFyrir fjórtán eða fimmtán árum féll Kolbeinn Kolbeinsson, góðvinum þjóðarinnar, í greipar hórdóms og fór að halda við Sigurveigu D. Holm. Fyrir algjöra slysni komst frú Ingveldur, eiginkona Kolbeins, að framferði bónda síns og brást við með því að leggja einbeitt hatur á Sigurveigu D. Í heilt ár lét frú Ingveldur stjórnast af grímulausu hatri og aftur hatri. Hún laug hroðalegum sögum uppá Sigurveigu og rúði hana öllu mannorði um aldur og ævi; sat fyrir henni á mannamótum og leitaðist við að gera hana hægilega; hringdi í hana og hótaði líkamsmeiðingum og enn meira mannorðsmorði. Samhliða skefjalausu hatri á Sigurveigu D. terroríséraði frú Ingveldur mann sinn á þann hátt sem lengi verður í minnum haft.

Um síðir tókst frú Ingveldi að vinna sig útúr hatursferlinu með því að nauðga Sigurveigu D. og Eyleifi manni hennar báðum í einu á heimili þeirra hjóna. Þegar frú Ingveldur kom aftur heim til sín að afloknu velheppnuðu dagsverki, greip hún Kolbein Kolbeinsson og gerði honum svo brött skil að hann lá fótavistarlaus í rúman hálfan mánuð á eftir.

Af þessari litlu sögu má ráða, að hatrið, sé það nógu innbláisð, getur gert hreinustu kraftaverk, meðal annars velt ríkisstjórnum um koll og meira að segja sjálfum Sjálfstæðisflokknum undir stjórn Gjeirs Haaarde og yfirstjórn Davíðs Oddssonar og Hanezar Há Gizzirizz. 


mbl.is Geir: Stjórnuðust af hatri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðmenningarhúsi verði breytt í Þjóðníðingahús

dauðamynd1Í kjöfar þess að alþýða Íslands steypti Sjálfstæðisfloknnum af stóli væri tilhlýðilegt að breyta Þjóðmenningarsnobbhúsi auðvaldsins við Hverfisgötu í safn um þjóðníðinga, villráfandi sálum til viðvörunnar.

Þegar hafa verið sett upp söfn og setur tengd draugum, göldrum og skrímslum. Minningarhöll um þjóðníðinga og peningahyggjuskrípi væri kærkomin viðbót í þá flóru safna, sem fyrir er um hvimleiðan fénað af ættbálki forynja og púka.   


mbl.is Vel heppnuð mótmæli, segja hernaðarandstæðingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Piparjúðarnir skála í blóði

kapital11Hrædd börnÞegar verja skal morðhunda heimsins og myrkraverkaher fyrir óþægindum af fólki, er lögreglan látin dæla ólyfjan framaní þá sem dirfast að ónáða morvargana. Ef allt væri heilbrigt myndi lögreglan stíga til hliðar og hleypa fólkinu að fulltrúuum hins morðsjúka friðs til að jafna við þá reikningana á þeirra eigin tungumáli.

En því miður, lögerglan er látin spýta eitri í augu samvisku heimsins meðan gleðipinnar NATO skála í blóði palestínufólks.


mbl.is Lögregla beitti piparúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flugferð Davíðs ákveðin

herra2Bölvaður þvættingur er þetta í ,,fræðingnum" Gunnari Helga um að Davíð sé á einhvern hátt undir vernd Ögmundar Jónassonar. Ég man ekki betur en að Ögmundur hafi á sínum tíma barist gegn því að yfirmenn á opinberum stofnunum fengju aukið vald til að ráðskast með undirmenn sína. Þar að auki eru seðlabankastjórar ekki í stéttarfélagi sem á aðild BSRB, fyrir nú utan að Davíð Oddsson mun seint teljast til verkalýðs.

Það á að fleygja Davíð Oddssyni eins og lúsugum hundi út úr Seðlabankanum um leið og ný ríkisstjórn tekur við. Síðan er karlskrjóðnum frjálst, ef honum þykir það viðeigandi og siðlegt, að fara í mál við ríkið ef honum sýnist svo. Það getur varla verið að þjóðin sé bótaskyld gagnvart manni, sem í krafti valds síns og pólitískrar stefnu, framdi afglöp sem komið hafa landinu á vonarvöl.

Davíð Oddsson verður að láta sér nægja að skríða undir verndarvæng Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar og halda sig þar framvegis.


mbl.is Davíð undir væng Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

7 hægri, Kaupþing, fyrningarfrestur - Upplýsingar óskast

Eftirfarandi texta rakst ég á í kommentakerfi Guðmundar Gunnarssonar í Rafiðnaðarsambandinu á ,,eyjan.is": 

,,Hvernig hefði það nú litið út að hafa Þorgerði Katrínu-KB drottningu í stóli forsætisráðherra ?

Almenningi hefði liðið eins og Hreiðar Már, og Sigurður Einarsson eða Finnur Ingólfsson og Ólafur Ólafsson væru komnir í stól forsætisráðherra og Seðlabankastjóra.

Varðandi kt, 660208-0700 sem er eign, 7 hægri ehf, Mávahrauni 7, 220 Hafnarfirði, þá er augljóst að þann 06. febrúar næstkomandi er eitt ár liðið frá stofnun félagsins.

Samkvæmt heimildum á gamla Kaupþing hf, að fara í gjaldþrot þann 14.02 nk, og því augljóst að sú dagsetning á að harmonera við fyrningarfrest sem væntanlega er eitt ár á gerningi Kristjáns Arasonar stjórnarmanns í 7 hægri ehf, til að komast undan persónulegum ábyrgðum.

Ef einhver hefur ekki vitað það þá er varamaður í stjórn 7 hægri ehf, Þorgils Óttar Matthíssen.

Hver ákvað dagsetninguna á þroti gamla Kaupþings hf ?

26. janúar 2009 17:45"

Því miður líkur umræðunni um þetta athyglisverða mál á síðu Guðmunar með þessu innleggi. Það væri góðra gjalda vert að fá úr því skorið hvort eitthvað sé til í þessu með gjaldþrot Kaupþings og meintan fyrirngarfrest.


mbl.is Atlaga felldi íslenska kerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherraþorsti og hin sívinsæla Kolbrún Halldórsdóttir

Ekki er að efa að kvöldsnatt flokkseigendapresta Samfylkingar og VG muni bera ríkulegan ávöxt. Semsé: ráðherrastól undir ráðherradómsþyrstan rass formanns VG og máske annann slíkan undir botninn á hinni sívinsælu Kolbrúnu Halldórsdóttur.
mbl.is Unnið áfram í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mynd af elítu og liðónýtum dekurdýrum

flokkseigendur.jpgÁ meðfylgjandi mynd gefur að líta þrjá merka félaga í Flokkseigendaelítu VG, þau Álfheiði Ingadóttur, Steingrím J. Sigfússon og Svandísi Svavardóttur, ásamt þremur stórskrýtnum og liðónýtum dekurdýrum elítunnar, þeim Katrínu Jakobsdóttur, Sóleyju Tomm og Ólafi Þór Gunnarssyni hinum góða.

Lesendum til glöggvunar, þá er það einmitt þetta fólk, sem heldur stjórnmálaflokknum Vinstrihreyfingunni grænu framboði í herkví framsóknarmennsku og íhaldsdaðurs. Og enginn veit hvar maður hefur slíka ,,vinstri" elítu í raun og veru. En eitt er víst: róttækni elítunnar er útþynnt mjög og öll í skötulíki.

Ekki fer á milli mála, að glatt var á hjalla í Félagi Flokkseigenda VG þegar myndin var tekin enda ráðherrastólar í augsýn.   


mbl.is Falið að mynda stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnmálafræðingaplágan

fool3Mikið þó andskoti er ég orðinn leiður á sífelldum viðtölum fjölmiðla við hina svokölluðu ,,stjórnmálafræðinga." Aldrei hafa þessir leppalúðar nokkurn skapaðann hlut til málanna að leggja umfram það sem þegar liggur ljóst fyrir og leikmenn á kaffistofum landsins kunna skil á án utanaðkomandi ,,sérfræðiþekkingar."

Og ekki vantar menntasperringinn og hátíðlegheitin í þessa annkannanlegu gervispekinga og skrípalinga. Það setur að manni hroll í hvert skipti sem trýnið á Ólafi Þ. Harðarsyni, krata, birtist á sjónvarpsskjánum og er hann þó ekki verri né betri en lagsbræður hans í ,,fræðunum."

Ég bið forsjónina um að létta stjónmálafræðingaplágunni af þjóðinni sem snarast. Megi þeir hverfa af sjónarsviðinu ásamt HHG&DO og öðrum þessháttar skringifyrirbrigðum.


mbl.is Embættið gegni virkara hlutverki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband