Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2014

Leiðrétting: Gestafyrirlesararnir verða tveir

ing35.jpgMeinleg villa hefur því miður slæðst inn við vinnslu þessarar fréttar. Villan er stór og felst í því að gestafyrirlesararnir eru tveir, en auk hins virta kynjúngafræðings, Tómásar Brorsens Smitt verður frú Ingveldur líka gestafyrirlesri. Fyrirlestur frú Ingveldar heitir ,,Gildi meydómsins á sjó og landi - eru nútímakonur með andlega kryppu?" og fjallar um meðal annars um hreinar meyjar til sjós með argvítugum fúllífisskelmum, tilgang og tilgangsleysi meydómsins og teprulega kvenvarga með piparkenndir.
mbl.is Klámstund gefur gull í mund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitískir trallar sem aldrei hlusta á Ríkisútvarpið nema með pólitískum heyrnartækjum

xd13_1226961.jpgKosning Alþingis í stjórn Ríkisútvarpsins hefur greinilega verið hið mesta spaug og trall, mitt í öllum leiðindunum sem þrífast svo undurvel í þessu undanrennukennda þingi. Mest er þó broslegt, að allur hamagangurinn snerist um að kjós fólk, sem sjaldan eða aldrei hlustar á Ríkisútvarpið, í stjórn sama Ríkisútvarps. Í einu skiftin sem svona pólitískt útvarpsstjórnarfólk hlustar á Ríkisútvarpið er þegar það setur upp sín pólitísku heyrnartæki yfir fréttunum og fréttatengdu efni, þá minnir það einna helst á grimma búrtík sem af ellihrörnunarsökum miskilur allt sem hægt er að misskilja. Þess á milli hlusta þessir snillingar á Bylgjuna og Xið og annað léttmeti í þeim dúr, sem kvarnir þeirra ráða nokkurn veginn við að melta.

Já Já, og þannig er nú það.

En Haffi Frænka, skohh ... það er nú karl sem kann sitt fag og klunnast og baslar hvern einasta dag. Því miður varð Frænkunni það á misbjóða Máríu Borgargagni herfilega síðastliðið mánudagskvöld með því að taka nærbuxur hennar, stórrósóttar og óhreinar, teygja þær og toga og vefja þeim síðan eins og trefli um hálsinn á sér og neita að láta þær af hendi þegar eigandinn leitaði eftir því. Fyrir vikið fékk Frænkan snoppung af því tagi að nægði til að leggja hann að velli.
mbl.is Ný stjórn Ríkisútvarpsins kosin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennslufólk á leið í fiskvinnslu með hnífana sína. Truggi Fokk og Vindey Hross í lokapróf um næstu helgi.

 knifeTja, ekki er það alveg ónýtt að kennslufólkið skuli vera farið að brýna hnífana sína. Alltaf vantar starfsfólk í fiskvinnsluna og þar koma hinir flugbeittu járn kennaranna eflaust í góðar þarfir, því ég geri ráð fyrir að þeir séu að hvetja hnífa sína til þarflegra verka. Og eflaust er þörf fyrir góða hnífamenn víðar.

Nú hefur frú Ingveldur hafið rannsókn á tveimur persónum sem henni eru nokkuð hvimleiðar. Er þar um að ræða hjónin Trugga Fokk og Vindey Hross, sem í tvígang hafa gert usla í samkvæmum frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar skrifstofustjóra.
Eftir einlæg viðtöl við fáeina kunnáttumenn um hagi og lífshlaup Trugga og Vindeyjar hefur frú Ingveldur komist að því að umrætt fólk hefur um skeið leikið tveim, og stundum fleiri, skjöldum, eru sannkölluð ólíkindatól og fjarri því að vera í húsum hæf innan um grandvarrar sálir. Ekki vantar að Truggi og Vindey hafi góð sambönd við ráðherra og alþingismenn, útgerðargreifa og bánkustjóra, sem þau hafa nýtt sér til hins ítrasta. Á hinn bóginn hafa þau leikið sér að að fremja allrahanda siðleysi, skattsvik, svartamarkaðsbrask og önnur undanskot sem of langt mál væri upp að telja. Og ekki hefur þessum skelfilegu hjónum munað um að koma mönnum í fangelsi í hefndarskyni þegar þannig hefur staðið í bólið hj´a þeim.

Frú Ingveldur er því mjög hugsandi um framhald á selskapsvináttu við hjónin Trugga og Vindey, sér sem er að þau eru til alls vís. En þau eiga pééénínga, að vísu mismunandi vel fengna, eru fín og flott, hress og kát ...

Næstu helgi verður stórveisla hjá frú Ingveldi og Kolbeini. Sú veisla verður jafnframt prófraun á samkvæmishæfni Trugga Fokk og Veindeyjar Hross, því ef þau fara þá yfir strikið mun frú Ingveldur sýna þeim í eitt skifti fyrir öll hvar Davíð keypti ölið.

 


mbl.is Kennarar eru að brýna hnífana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun dularfyllra en Hönnubirnuminnisblaðið er hið óviðkunnanlega mál sem upp kom ...

rat1.jpgÞau eru mörg bréfin og minnisblöðin sem skrifuð eru í ráðuneytunum og eiga sammerkt að vera svo hörmulega leiðinlega að Djöfullinn sjálfur myndi ganga af vitinu ef hann tæki sér fyrir hendur að lesa þau öll. Og ekki batnar það þegar þessir sneplar taka uppá að fjúka útum glugga ráðuneytanna og lenda í skítugum klónum á óvönduðum körlum og konum sem leggja allt út á versta veg. Og nóg um það.

Mun dularfyllra en Hönnubirnuminnisblaðið er hið óviðkunnanlega mál sem upp kom á heimili frú Ingveldar aðfaranótt síðasta sunnudags. Þangað kom téða nótt, óforvandis og óboðin, í heimsókn, sá görugi garmur Truggi Fokk og hafði eiginkonu sína, Vindey Hross, með í eftirdragi. Um það leyti sem Trugga og frú bar að garði var Haffi Frænka kominn í svo mjög annarlegt ástand að ekki þótti annað sýnt en hann missti fótavist að fullu á hverju augnabliki. En Truggi Fokk lét það ekki á sig fá, tók blíðlega um mitti Haffa Frænku og stjakaði honum inní nærliggjandi herbergi og aflæsti. Þetta sá frú Ingveldur, hleypti ákaft brúnum og heimtaði að Truggi opnaði dyrnar á herberginu samstundis. En Truggi Fokk var aldeilis ekki á þeim buxunum að opna, þótti of vænt um feng sinn, og sagði frú Ingveldi að halda kjafti og koma sér til Andskotans. Þagar þar var komið sögu varð frú Ingveldur fyrir truflun, Indriði Handreður og Máría Borgargagn voru farin að slást útaf nokkrum kornum af kóki og frú Ingveldur þurfti að miðla málum og róa hið æsta sambýlisfólk.
Þegar frú Ingveldur gat snúið sér aftur að pukri Trugga Fokk með Haffa Frænku höfðu ógnvænleg tíðindi gerst í hinu aflæsta herbergi sem hýsti þá félaga. Það blasti semsé ófögur sjón við þegar frú Ingveldi tókst af harðfylgi að spregja herbergisdyrnar upp. Því sem við blasti verður ekki lýst hér, enda er það fullkomlega óprenthæft. Frú Ingveldur gerðist afturámóti fljóthent, tók ódáminn Trugga Fokk í bóndabeygju, eins og hann var á sig kominn, og kastaði honum eins og poka fullum með hundaskít útúr húsi sínu; á eftir fylgdi Vindey Hross, sem orðin var andstyggilega berrössuð og bað frú Ingveldur svona sóðapakk aldreigi þrífast, hvorki í bráð né lengd.

Þykir oss full ástæða til að vara andvaralaust fólk við að hafa nokkur samskifti við hjónanefnurnar Trugga Fokk og Vindey Hross því spilling þeirra er án enda og óþokkahneigð þeirra án takmarka hvar og hvenær sem er.
mbl.is Kölluðu eftir óháðri rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voðalegir gestir af betra taginu

ingv36.jpgSérfræðingahópur um afnám verðtryggðra lána er lítilfjörlegur brandari fyrir rotinpúrur sem haldnar eru pólitískum barnaskap. Látum þessháttar leiðindagægsn um þá skemmtun.

Hinsvegar bættist framúrskarandi liðsauki í samkvæmi frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar um síðustu helgi. Þar vóru á ferðinni ekki minni heiðurshjón en Truggi Fokk, oft kallaður ,,kvótakokteill" og eiginkona hans, hin framagjarna Vindey Hross.

Ekki höfðu Truggi og Vindey gípast lengi í veislu frú Ingveldar og Kolbeins þegar húsráðendum hætti að lítast á blikuna. Ekki síst leiddist frú Ingveldi og Kolbeini síendurteknar migur Trugga í blómapotta og snýtur hans í stofugardínur. Og ekki bætti úr skák þegar Vindey Hross fór að koma vaðandi af klósettinu með allt niðrum sig til að skeina sig í sömu gardínur. Hvaða andskotans óhræsisfénaður var hér á ferðinni?

Og frú Ingveldur brá Haffa Frænku og Viggu Sleggju á eintal, en hinir sóðalegu gestir höfðu komið í samkvæmið með þeim, og heimtaði að þau færu sem skjótast með þessi óhræsi á brott.

En Frænkan og Sleggjan brostu sínu breiðasta og reyndu að fullvissa frú Ingveldi um að téðir gestir væru alveg frábært fólk, ættu fullt af péníngum, hefðu sambönd á fínustu og bestu stöðum í þjóðfélaginu og væru ógurlegir vinir ríkustu manna landsins. Það væri hreinlega stórhættulegt að vísa svo góðum gestum á dyr þó að þeir hefðu óvenjulegt skopskyn og stundum hressari en hneykslunargjarnt fólk gæti með góðu móti þolað.

Undir morgun hjóluðu Truggi Fokk og Vindey Hross í Kolbein Kolbeinsson og börðu hann fyrir að vera ,,helvítis framsóknarmaður" eins og þau orðuðu það. Þá þókti frú Ingveldi nóg komið, sótti haglabyssu bónda síns tvíhleypta og rak hin ríku og fínu hjón á dyr með hótun um að skjóta þau eins og þúfutíttlinga ef þau létu sá sig nálægt hennar húsi á næstunni.
mbl.is Fasteignaverð gæti lækkað um 20%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsóknargriðkan mátaði gáfumann Samfylkingarinnar í örfáum leikjum

skak1.jpgSú gamla framsóknargriðka gerði sér lítið fyrir í morgun og heimaskítsmátaði hinn stórmerkilega, stórgáfaða og virðulega Helga Hjörvar svo snoturlega, að umræddur Helgi er lagstur í kör fyrir fullt og fast. Þessa stundina er hann að láta skrifa bréf til forseta Alþingis, þar sem fram kemur að hann segi af sér þingmennsku frá og með deginum í dag.

Tildrög málsins voru á þá leið, að í morgun settust Sigrún og Helgi að tafli og telfdu ESB-skák. Helgi hugðist beita Sikileyjarvörn, þar eð Sikiley er innan ESB og fæðingarstaður Mafíunnar. En framsóknargriðkan varð fyrri til og opnaði á drottningargambít og mátaði Helga í 10 leikjum. Herra Hjarvarr varð svo um tapið, að hann lagðist yfirbugaður á gólfið og sjúkraflutningamenn báru hann burt á börum og óku honum heim.

Nú hafa Helgi Hjörvar og hans líkar hitt sjálfa sig fyrir. Ekki höfðu þessir ,,stórgáfuðu" og undurleiðinlegu apakettir fyrir því að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Ísland ætti að sækja um aðild að ESB. En þegar komin er ríkisstjórn til valda sem hefur engann áhuga á halda ESB-umsókinni áfram, rjúka Helgi og vinir hans í gáfumannafélaginu upp til handa og fóta og heimta þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort eigi að halda ESB vitleysunni áfram. Framganga af þessu tagi bendir ekki til mikilla gáfna af hálfu þeirra er að standa, heldur þvert á móti virðist þetta lið velta sér eins og svín uppúr allri þeirri heimsku sem tiltæk er varðandi valdaafsal eins lands til kapítalísks einokunarbákns. Guð gefi að hinir stórgáfuðu blábjánar ESB-trúboðsins leggist allir í kör og bíði þar örlaga sinna.
mbl.is Ekki þörf á þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ójá, Brynjar Vondalykt brá sér á vertshús við Hafnarstræti í gærkvöldi

fullurSumum einstaklingum er gefin sú náðargáfa að kunna að skemmta sér mun betur en aðrir samborgarar þeirra. Glæsilegt dæmi um mann sem haldinn er slíkri náðargáfu er sá skemmtilegi maður Brynjar Vondalykt.

Um árabil hefur Brynjar Vondalykt verið fastagestur í umtöluðum samkvæmum hjá frú Ingveldi, Kolbeini Kolbeinssyni, Máríu Borgargagni og Indriða Handreði. Þar hefur Vondalyktin verið, sem maður segir, á heimavelli og þar hefur hann unnið mörg gifturík afrek sem færð hafa verið í annála.

Síðastliðinn föstudag hófst gott samkvæmi að heimili frú Ingveldar og Kolbeins, sem stendur enn þegar þetta er skrifað. Að vanda mætti þar margt góðra gesta á borð við Óla Apakött, Haffa Frænku, Viggu Sleggju, Borgargagnið og Handreðinn, að ógleymdum Brynjari Vondulykt, sem hefur bókstaflega farið á kostum þessa helgi. Ekki er nóg með að Brynjar hafi farið offari í þambi á sterkum drykkjum í samkvæminu heldur át hann allt sem tönn á festi í eldhúsi og búri frú Ingveldar og hélt að svo búnu út á lífið í miðborg Reykjavíkur og settist þar að í vertshúsi einu. Og það var einmitt í þessu versthúsi sem Brynjar Vondalykt gekk örna sinna í einu horni veitingasalarins. Þegar hann hafði lokið sér af skeindi hann sig vandlega með brókum sínum og lagði þær síðan samanbrotnar við hliðina á valkestinum.

Þegar Brynjar Vondalykt hafði athafnað sig þar á versthúsinu hvarf hann á braut og gekk vígreifur og nakinn neðan mittis austur Hafnarstræti. Þannig til fara mætti hann á nýjan leik í samkvæmi frú Ingveldar og Kolbeins og var vel fagnað af þeim er þar vóru fyrir.

Ef lögregluyfirvöldum í Reykjavík er alvara með að hafa uppá og handtaka manninn sem óhreinkaði hornið í veitingasal vertshússins í Hafnarstræti, er þeim vinsamlegast bent á að fara beinustu leið heim til frú Ingveldar og Kolbeins, en þar munu þau finna Brynjar Vondulykt, Máríu Borgargagn og Haffa Frænku í innilegum faðmlögum á gólfinu í miðstöðvarkompunni.
mbl.is Berrassaður maður í Hafnarstræti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðferð frú Ingveldar til að stemma stigu við kviðskeggi

ingv34.jpgÞað bar til fyrir nokkrum árum, að frú Ingveldur lenti í voðalegum vandræðum með kviðskeggið á sér. Það hafði nefnilega verið að færast í vöxt að konur væru farnar að spóka sig um nauðasköllóttar að neðan og frú Ingveldur vildi tolla í tískunni og greip til sinna ráða. Því miður komst hún fljótlega í miklar hafvillur í þessu máli, því skærin sem hún hugðist brúka til að sarga burt nárahárin voru svo bitlaus að til hörmungar mátti telja og gekk hvorki né rak við snyrtinguna. Það fór að þykkna í frú Ingveldi við mótlætið og loks missti hún gjörsamlega stjórn á sér, hellti kveikjarabensíni yfir kviðskegg sitt og bar eld að. Og bölvað ekkisens kviðskeggið skíðlogaði, stóð í björtu báli, fuðraði upp. Eftir þennan eldsvoða hefur ekki sprottið stingandi strá á hinum frægu miðvígstöðvum frú Ingveldar.
mbl.is Gínurnar sýna skapahárin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tannlausasti hvolpurinn lætur ekki segjast og skrifar óskiljanlegt fýlubréf

xb6_1226178.jpgÞað þýir nú lítið fyrir tannlausasta hvolpinn úr Framsóknarfjósinu að skrifa bréf til innanríkisráðuneytisins, einfaldlega vegna þess að þar á bæ skilja menn hvorki hvolpaskrift né hvolpatungutak. Þar fyrir utan verða starfsmenn ráðuneytisins fljótir að fleyja þessu bréfi útum næsta glugga sökum framsóknarmykjufýlunnar af bréfsefninu.

Til viðbótar er innanríkisráðherra svo önnum kafin við að berjast við Reynir Traustason skipstjóra á DV, að hún hefur engann tíma aflögu til að stauta sig fram úr illa þefjandi lesmáli frá tannlausum framsóknarhvolpi.

Annars hélt ég að sá frómi framsóknarmaður, Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og meðlimur skuggastjórnar Framsóknarflokksins, hefði tekið umræddan hvolp upp á skottinu í morgun, löðrungað hann og kaffært í jökulköldu vatni, til að venja hann af tilefnislausu spangóli. Það er augljóst að sú typtun hefur ekki skilað tilætluðum árangri fyrst hvolpskepnan þaut beina leið í fjósflórinn til að skrifa bréf til ráðherra.

Á næsta bæjarstjórnarfundi í Kópavogi má búast við stórkostlegri skemmtun. Því þá má búast við, að sjálfur yfirborgarstjórinn, Gunnar I. Birgisson, taki hvolpana Manna litla og Omma Steff báða upp á skottinu og slái þeim svo hressilega saman að það dugi þeim næstu misserin.

En vel á minnst: Hvað hefur orðið um hið undursérstæða íhaldsframsóknarkratafyrirbæri Óla Góða, sem síðast þegar ég vissi sat í bæjarstjórn Kópavogs fyrir VG? Vonandi hefur þetta náttúrundur ekki hrotið ofaní ókleyfa hraungjótu eða skolað á haf út í illviðrakaflanum um daginn.
mbl.is Ráðuneyti úrskurði um lögmæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkum og sérílagi er þó nauðsynlegt að salta viss fyrirbæri ofaní síldartunnu

sild_1226256.jpgAuðvitað er það þarft verk að salta Reykjavíkurborg, en einkum og sérílagi er þó nauðsynlegt, að salta Gnarrið, DagB, Júlla Vífil og Sóley Tomm Fýlí Romm Bomm Bomm ofan í síldartunnu, sem síðan væri geymd á hafnarbakkanum í Reykjavík í fáein ár og að svo búnu sökkt í sjó, djúpt útaf Faxabugt.

En ef einhver góður bóndi úr Borgarfirði, sem leið ætti um Reykjavík, vildi kaupa tunnuna ásamt innihaldi, til gottgjörelsis stóðhrossum sínum, væri upplagt að ganga að því tilboði. Hinnsvegar er ég hræddur um, að veslings hestarnir dræpust umsvifalaust ef þeir létu glepjast af góðgætinu í tunnunni þeirri arna og legðu það sér til munns. En spaðsaltað gnarrket er sem kunnugt er mjög eitrað óæti, þar eð það breytist í maurasýru í maga þess er það snæðir.
mbl.is Borgin söltuð í hlýindum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband