Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2014

Svo máttu fara fjandans til bara allt þegar búið er

ing35_1242280.jpgÞað skal aungvann undra þótt Orlandói Blúmm ræki óþokkanum Jústín Bíbir einn grábröndóttan á ranann. En Bibir þessi er sem kunnugt er gjörspilltur þrjótur og skepna af fyrstu gráðu. Framkoma hans við kvenfólk er þess eðlis að hreinlátum sálum kemur fyrst af öllu í hug gyðingaofsóknir nasista þriðja ríkisins þegar þeir heyra af vanvirðingu hans og ofstopa í garð kvenna. Í einum af eftirlætissöngvum Bíbirs segir meðal annars: ,,Svo máttu fara fjandans til bara allt þegar búið er" og þarf vart vitnana við, miðað við munnsöfnuðinn, hverskonar hug þessi illræmdi flagari ber til hins veika kyns.

Því ber að fagna kjaftshögginu sem hr. Blúmm rétti fólinu Bíbir beint á asskotans trýnið. Mættu sem flestir fara að dæmi Blúmms, einkum konur, sem ekki ættu að draga úr höggþunganum þegar þær komast í tæri við hann.

Þess ber þó að geta, að í vetur lenti Bíbir á fjallmyndarlegu ruddakvendi sem tók hann aungum vettlingatökum, heldur barði hann eins og hund, lagðist ofaná hann og hnoðaði hann svo hrottalega að hann gerði í rúmið og brennivínsgusurnar gengu uppúr honum eins og boðaföll.
mbl.is Þolir ekki Justin Bieber
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Berrössuð í kapítalíska hundakapphlaupinu

flokkseigendur_786424Þegar tannlausa búrtíkin hans Steingríms lufsast af þingi og gerist sendiherra í Kúagerði í boði framsóknaríhaldsins tekur eitt af þessum liðónýtur dekurdýrum áðurnefnds Steingríms sæti á Alþingi, sem er vel við hæfi því VG er liðónýt klíka og vita tilgangslaus, hugsjónalaus og berrössuð í kapítalíska hundakapphlaupinu. Það er enginn vafi á, að Steingrímur, búrtíkurnar, dekurdýrin og undanrennulýðurinn í VG eru vel upp með sér að hafa gengið af skipulagðri vinstripólitík dauðri á Íslandi með sóðalegri framgöngu sinni og fylgispekt við auðvaldið og arðræningjana. Ef einhverjir eiga skilið voldugt afgerandi spark í rassgatið, þá er það þessi subbulegi félagsskapur loddara og aftúrúrsiglara.

Þegar hinn hörmulegi flokkur Steingríms, Ögmundar, Álfheiðar og Svavars Sendiherra verður innan skamms borinn steindauður til grafar, mun líkfylgdin standa saman af fáeinum glottandi kvótagreifum og nokkrum slefandi peningahyggjupervertum og erfidrykkjan fara fram á skrifstofu útgerðarfélagsins Samherja.
mbl.is Steinunn tekur sæti Árna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haaardý gaaardý man og sendiherrann í Kúagerði

saudnaut.jpgÞeir eru gamansamir þarna í ríkisstjórninni, þó heldur sé gaman þeirra grátt og óþefinn leggi af því langar leiðir og enginn hafi til að bera svo mikið skopskyn að geta brosað að spauginu, hvað þá hlegið. En nú hefur ríkisstjórnin sem sé tekið undir sig stökk og gert herra Gjeir Haaardý að sendiherra og það sem meira er, Árna Þór Sigurðsson líka, en það er, hvað sem öðru líðu, óneitanlega býsna hægilegt.

Það er auðvitað skiljanlegt, að framsóknaríhaldið hafi viljað endurreisa Gjeir okkar hérna Haaardý á einhvern hátt, og hvað er betri endurreisn fyrir farlama stjórnmálajarmara en vera gerður að sendiherra. En að dubba endemið Árna Þór til sendiherra er blátt áfram hlægilegt, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Hvar Haaardý verður sendiherra kemur ekki nokkrum lifandi manni við, enda er öllum fjandans sama um það. En Árni Þór verður vafalaust sendiherra í Kúagerði, sem ugglaust er vel við hæfi. Það er ennfremur vel við hæfi að þessi tannlausa búrtík Steingríms Joð sé skipuð í embættið af Erkiíhaldinu og Framsókn, alveg eins og Svavar Sendiherra. Alveg dásamlegir stórsósíalistar þeir Árni Þór og Svavar Sendiherra og einstaklega samkvæmir stefnu hins stórrótæka flokks VG.

En það verður víst að hafa það sem yfirstéttin gerir sér til skemmunar og dægrastyttingar, hvort heldur það verndum kvótagreifastofnsins eða gefa alþýðunni fokkmerki með því að skipa alónýta giljagaura í sendiherradjobb.
mbl.is Geir Haarde sendiherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sauðheimskur skríllinn. Tryggvi rotaður. Komið að skuldardögunum

ingv54.jpgHvur andskotinn er þetta, ætlar sauðheimskur skríllinn að geta komið því inní ólseigan hausinn á sér, að Hanna Birna beitti Steffie Ericson aungvum þrýstingi. Manngreyinu leiddist bara að vera lögreglustjóri og ákvað að ganga í söfnuð Gnarranna og gegnir þar starfi klerks á félagsmálasviði. Skilur nautheimskur pöpullinn ekki svona einföld sannindi, eða hvað? Ég veit það ekki, en ég veit að Páll Vilhjálmsson skilur þessi sannindi, og fyrst Páll Vilhjálmsson skilur þá ætti heilasljór almenningur að skilja. Amen.

Um miðjan dag í dag hittu frú Ingveldur og Máría Borgargagn mann að nafni Tryggvi Gunnarsson og slógu hann þegar í stað í rot. Svo er sjálfum Guði fyrir að þakka, að sá Tryggvi Gunnarsson sem lá í öngviti eftir ofbeldi þeirra stallsystra var alls ekki sá Tryggvi Gunnarssons sem þær ætluðu að rota, heldur allt annar Tryggvi Gunnarsson. Þær frú Ingveldur og Máría Borgargagn eru nú þessa stundina að leita að ríkissaksóknara og hennar vinum, sem þær ætla að afgreiða á einu bretti með nokkrum vel völdum knokkátum. Það held ég verði lagleg árás, þýðingarmikil og áhrifarík.

Það er sem sagt komið nóg af innihaldslausum lýgidylgjum um leka og þrýsting af hálfu DV í garð saklausrar varnarlausrar konu. Nú er komið að skuldardögunum og brátt verður DV-gengið komið, með manni og mús, á Hraunið, en þar verður þetta auma lið í farsælum félagsskap innan um sína líka.
mbl.is Hanna Birna: Beitti ekki þrýstingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rangeygir blauthvorlpar þurfa kennslu og aðhald

dog2_1242123.jpgLjóti asskotans ódrátturinn þessi Tryggvi Gunnarsson, hvaða Tryggvi Gunnarsson sem það nú er, sem krefst þess, að Hanna Birna innanríkisráðherra komi skjögrandi á hans fund til að skrifta fyrir hann um það hvort hún hafi tekið í hnakkadrambið á Steffie Ericson og veifað honum svo hressilega til og frá, að honum hafi loks skilist hvað til hans friðar heyri.

Hafi Hanna Birna tekið í hnakkabrambið á Steffie og danglað honum upp við veggi og loft, þá var það alveg sjálfsögð aðgerð af hennar hálfu, því rangeygir blauthvolpar þurfa á kennslu og aðhaldi að halda í lífsins ólgusjó. En umfram allt bæri þessháttar umhyggja fyrir uppeldi Steffie vott um hvernig sýslumenn, að ég segi ekki stjörnusýslumenn, eiga að vera.

Þó svo að Tryggvi þessi Gunnarsson sé slæmur og óalandi, þá hefir öðru og verra óargadýri, alsendis óferjandi, skotið uppá stjörnuhiminn vonskunnar, en það er ríkissaksóknari og vinir hans. Það er nú fólk sem ekki kann að akta rétt og minnir um margt á óbetranlega garðára og rekaþjófa. Soleiðis lið á réttarkerfið að geyma innan rimla og gaddavírs.

Góðu fréttirnar eru, að nú hafa frú Ingveldur og Máría Borgargagn gengið í bandalag til varnar góðu fólki og verður fyrsta verk þeirra, að láta sverfa til stáls gegn vondu fólki á borð við Tryggva Gunnarsson, ríkissaksóknara og Steffie Ericson, sem sveikst undan merkjum og starfar nú undir vængnum á Gnörrunum og Degi XB. Væntum vér góðs af bandalagi fyrrgreindra heiðurskvenna og þekkingu þeirra og hæfni í skæruliðatækni og harðskeyttri framgöngu á vígvellinum.
mbl.is Tryggvi krefur Hönnu Birnu um svör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og nú er fyrrum efnispilturinn farinn að blása

chik1.jpgÞað er illa komið fyrir fyrrum efnispiltinum Steffie Ericson. Fyrst tók hann þátt í spurningakeppni í sjónvarpinu, því næst hraktist hann eins og varphæna í ofviðri úr starfi lögreglustjóra og nú er hann farinn að blása. Einhver hefur verið tekinn úr umferð fyrir vægari sakir.

En verstar eru þó undirliggjandi og afar óljósar dylgjur hins burtfokna lögreglustjóra í garð heiðurskonunnar Hönnu Birnu, sem af einstakri fórnfýsi og umhyggju fyrir öllu samfélaginu tók að sér, fyrir þrábeiðni íslensku þjóðarinnar, að gerast innanríkisráðherra. Samkvæmt fréttum DV, sem sumir kalla ,,litla sannleik" til aðgreiningar frá Mogganum sem gegnir gælinafninu ,,stóri sannleikur", þá er engu líkara en Steffie karlinn Ericson hafi blásið til neðanjarðarherferðar gegn innanríkisráðherra, meðal annars skriðið á fund ríkissaksóknara til að klaga ráðherrann og tala illa um hann. Á sömu fréttum má skilja, að Steffie hafi blásið illum grun um Hönnu Birnu í eyru varðstjóra sinna og útvalinna lögregluþjóna til þess að láta þá hlaupa með róginn og illmælgina í DV. Þetta er náttúrulega óviðunandi ástand og hræðilegt.

Engum þarf að koma á óvart, að innanríkisráðherra sé í rusli þessa stundina útaf ávirðingunum sem birtust um viðskifti hans við Steffie í DV í morgun. Satta best að segja, þá hefir Hanna Birna setið hágrátandi og með óstöðvandi ekkasogum í ráðherrastól sínum síða óþverrafrétt DV birtist öllum landslýð í morgun, og skal aungvann undra. Í hádeginu kom frú Ingveldur í ráðuneytið til að halda vinkonu sinni paról og leggja á ráðin með næstu skref í orrustunni við óvininn. Því miður er allt útlit fyrir að fundur frú Ingveldar og Hönnu Birnu muni dragast mjög á langinn vegna þess hve gráthviður þeirrar síðarnefndu eru tímafrekar, háværar og taugalamandi fyrir þá er á þurfa að hlíða.

Nú er svo komið, að allar góðar vættir verða að sameinast gegn DV og fara með leifturstríð á höndur þess bölvaða skítasnepils. Ég sé fyrir mér, að góðu vættirnar sprengi höfuðstöðvar ,,litla sannleiks" í loft upp, á sama hátt og drottisn útvaldir ísraelsdátar sprengja upp barnaheimili og sjúkrahús hamas-glæpajurtanna.
mbl.is Blæs á fréttaflutning DV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sinna kalli náttúrunnar af hjartans ferskleika

ingv9_1241807.jpgSamkvæmt sameiginlegri niðurstöðu frú Ingveldar og Máríu Borgargagns, hefur íslenskur kvenpéníngur ekki þann karakter til að bera, sem þarf til að geta kallastast druslur. Aftur á móti telja þær, að töluvert sé um dræsur og pútur á Íslandi, einkum þegar komið er upp í efri millistétt og þar ofar. Spurningastúlkur hér á landi, eru að mati frú Ingveldar og Borgargagnsins, margar hverjar óvenju rotnar að innræti og siðferðilega bjagaðar og stafar það af illu uppeldi vonlausra foreldra. Gamlar kerlingar segja þær vera undarlega lúmskar og gjarnan vísar til allrahanda uppátækja, miður góðum og illa föllum til fyrirmyndar.

En druslur eru þessar íslensku kvinnur ekki. Til þess að geta talist drusla verður kvenmaðurinn að hafa náð vissu þroskastigi, sem íslenskar konur, að genafræðilegum og siðferilegum ástæðum, geta ekki með neiðu móti náð. Um sína eigin stöðu í þessum efnum vilja þær frú Ingveldur og Máría Borgargagn lítið segja annað en það, að þær séu að minnsta kosti ekki neinar helvítis pútur, því síður dræsur eða druslur. En þær sinni kalli náttúrunnar af hjartans ferskleika hvar og hvenær sem er.
mbl.is Eru íslenskar stelpur druslur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af einu alvarlegu dæmi um hrottafengna kamfýlubaktéríu

cat.jpgUndanfarna daga hefir Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður þjáðst af kraftmikilli skitupest af völdum kamfýlubakteríu. Heilsuleysi Kolbeins er rakið til máltíðar sem hann át með Sigmúndi Dávíð forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni fyrir viku síðan.

Skitupestin helltist eins og brotsjór yfir Kolbein þegar hann var að sinna helgustu hjónabandsskyldu sinni með eiginkonu sinni, frú Ingveldi. Strókurinn stóð sem sagt uppaf Kolbeini í miðjum klíðum og barst á svipstundu uppí loft, útá veggi og fram á gang. Frú Ingveldur fór ekki varhluta af sjúkdómseinkennum Kolbeins, því hennar fagra andlit formyrkvaðist af elgnum, sem slumpaðist niður úr loftinu. Hún hafði aungin ráð önnur en kasta framsóknarmanninum af sér og útá gólf, spratt síðan upp og traðkaði á kykvendinu eins og það átti skilið, gekk síðan til laugar til að skola af sér hroðann. Það er af Kolbeini að segja, að hann varð svo skelkaður að hann skreið undir rúm ein og hundur sem fallið hefir allur ketill í eld og hélt þar áfram að engjast sundur og saman; bárust þá ljót hljóð undan hjónarúmi Kolbeins og frú Ingveldar.

Af heilsufari borðnauta Kolbeins Kolbeinssonar hafa enn engar fregnir borist, en menn gera sér vonir um að þeir hafi tekið heldur kátlega sótt eftir að hafa étið blóðsteikt bandarískt nautakét, sem komið var á borð þeirra eftir óskiljanlegum framsóknarleiðum.
mbl.is Margir með niðurgang vegna smits
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðherrann verði sjálfur rekinn suður í Keflavík

xd16.jpgÓsköp er að lesa það sem haft er eftir stjörnusýslumanninum Stones hér. Ef þetta viðtal við hr. Stones er ekki uppspuni frá rótum, þá er ljóst að bleik er brugðið. Að segja, að sér hafi verið sýndur sómi með því að vera fluttur hreppaflutningi niður á planið hjá Suðurnesjamönnum, er einhvenveginn svo annarlegt og útúr korti að bágt er að trúa, hvað þá skilja. Það er satt að segja aungvu líkara en bardagakappinn og heljarmennið hr Stones sé dauðhræddur við hinn morgunblaðslærða og valhallarmenntaða ráðherra og sé þess albúinn að skríða fjöruna á fjórum fótum suður í Keflavík til að taka út sína refsingu. Það er vægast sagt hræðilegt til þess að vita, að sannur garpur af fornkappa ætt, marghertur af eltingaleikjum við stórvarasama ójafnaðarmenn og glæpajúða, skuli hafa misst svo gersamlega móðinn andspænis einum kvenkyns vargakjafti, að hann hendir frá sér vopnum sínum í bleyðikasti og fer að myndast við að halda því fram að honum sé sómi sýndur með svona vanvirðingu!

Það er einsýnt, að óréttlætið og niðurlægingin sem stjörnusýslumaðurinn Stones er dæmdur til að sæta, er þess eðlis að tilefni er til að blása í mótmælaskyni til stórfundar á Ingólfstorgi með ræðumönnum, skáldum og tónlistarmönnum. Í framhaldinu væri gott að hafa undirskriftasöfnun. En ef ekkert dugar til að koma vitinu fyrir ráðherra með friðsamlegum aðgerðum, þá verði farið með ófriði á hendur ráðuneytinu og ráðherran sjálfur rekinn með valdi suður í Keflavík, í ginið á hinum frumstæðu verum sem þar hafast við.
mbl.is Ráðherra sýndi mér sóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örlagaþrungnir tímar í lífi Dags XB

xdgtvrq.jpgEkki á af veslings skarfinum honum Degi XB Ekkerts að ganga þessa dagana. Í gær var hann leiddur örvinglaður niður af palli á Ingólfstorgi fyrir framan 50 þúsund tryllta hamasliða og í dag er hann sakaður um bílamisferli, ef ekki bílastuld, af fulltrúum kærleiksríka Siðgæðisflokknum. Vita þessir ódámar og hrossabrestir í kærleiksríka Siðgæðisflokknum, að Dagur XB er enginn smákalli? Hafa þessi endemi engann skilning á því að maður í stöðu eins og Dagur XB þarf ýmissa erinda út um allan bæ? Og ennfremur að Gnarrpokinn var bara platborgarstjóri á síðasta kjörtímabili en Dagur XB gengdi öllum störfum borgarstjóra af sinni einstöku værukærð og ringlun? Já og hvernig er með hið skæra gáfnaljós Sóley Tromm, ætlar hún ekki að koma Degi til varnar á þessum örlagaþrungnu tímum í lífi hans? Eða ætlar hún bara að glotta uppí sumartunglið og flissa eins og skökk spurningastúlka? Á bara að láta valhallarlærða siðferðisfólkið höggva Dag XD í spað án þess nokkur lyfti legg eða lið, eða hafi yfirleitt nokkuð við það að athuga?

Ja sveittann, fari það allt og veri.
mbl.is Segja Dag hafa notið bílafríðinda umfram aðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband