Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Vígður húskarl sem veit ekki neitt

x58Hvaðan úr skrattanum bar þennan Willúm að? Hann kom úr Framsóknarfjósinu. Á hann eitthvert sérstakt erindi í poletik? Nei auðvitað ekki. En hann var hafður í marineringu í Framsóknarfjósinu í tólf ár. Akkúrat, alveg eins og þegar hákarlinn sem þið étið á þorrablótunum þegar þið eru orðin mígandi full, hann kvað dysjaður í fjóshaug í tólf ár. Svo var hann vígður. Vígður? Já, gamla Framsóknarmaddaman vígir sjálf lukkuriddarana sem hún sendir á þing. Þetta er mikil helgiathöfn sem fer fram í fjósflórnum. Áður en gamla Maddaman hélt úr bæli sínu til vígslunnar mé hún í kopp, Maddömukoppinn. Þegar sú gamla vígir lukkuriddara til þings stökkvir hún alltaf úr innihaldi koppsins á riddarann sem krýpur í flórnum, það er sem sé siður.

borða1Auðvitað veit simpill húskarl Framsóknarmaddömunnar ekki til þess að heilbrigðiskerfið sé vanfjármagnað, - hann veit ekki einusinni hvað vanfjármögnun er, skilur ekki orðið. Því síður hefir þessi náungi spurnir af því, að heilbrigðiskerfið, spítalarnir og allt klabbið sem er undir ríkinu hefir verið vanfjármagnað á vísvitandi og skipulega hátt í þrjá áratugi af Sjálfstæðisflokknum, iðulega með fulltingi íbúa Framsóknarfjóssins. Nei, hann veit ekki neitt, vissi ekki neitt og mun aldrei vita neitt. Þannig er nú, kæru samlandar, framsóknarmenningin.

Hins vegar - hinsvegar - veit Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður nákvæmlega hvernig er í pottinn búið, enda löngum verið kært með honum og frú Ingveldi eiginkonu hans. Nú, markmiðið er einfalt og fyrirsjáanlegt og í raungerðum fasa sem er innan armslengdar, að ekki sé sagt skítslengdar, sem sé að eyðileggja heilbrigðiskerfið, sem við eigum í sameiningu, þannig að auðveldar verði að einkavæða það með manni og mús án þess að eigendur þess, fólkið í landinu, verði vitlausir. Þetta er langtímaverkefni, sem framkvæmt er samkvæmt uppskrift beint úr verkferlafræðibók nýfrjálshyggjunnar. Og Katrín litla Jakkó og Swandeesý sjávarútvegsráðherra eru báðar vel með á nótunum, líka dýralæknagengið í Framsóknarfjósinu og litla gula hænan, - en Willúm veit ekki neitt, aumingja karlangastráið.


mbl.is Ekki hægt að alhæfa að þetta sé fjármögnunarvandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nonnýboy fer í stríð

TyrkiNú ætlar Nonnýboy að fara í stríð og þá þarf að huga að ýmsu. Tilgangur stríðsins, er að sögn ráðherra, að uppræta ,,skipulögð glæpasamtök" og kenna liðmönnum þeirra þá lexíu sem dugir. Það verður gaman að sjá félagi Nonnýboy, klæddan svörtum, skósíðum leðurfrakka og með korða á lofti, stýra stórskotaliði sínu gegn skipulögðum ofbeldishrottum og eitursölum, sprúttsölum og hnífabardagamönnum. Vér sjáum í anda, hið ofurþjálfaða herlið úr fórum ríxlögreglu stjóra reka þorparann á flótta á götum Reykjavíkur og stráfella þá með nákvæmri skothríð úr hreindýrariffunum, sem Nonnýboy mun eflaust útvega hersveit sinni.

Já, kæru vinir í réttlætinu, þá verður gaman að lifa þegar Nonnýboy, með aðstoð undirlautinants síns og herdeildarinnar, hefir upprætt eiturseljandi hnífaódrætti og þjóðfélagið komið í fastar skorður með sínum arðbæru fjámála- og fjárfestaspekúlasjónum, nýfrjálshyggju tómu jakkafatanna, vel heppnuðum einkavæðingum og enn betur heppnuðum kvótasamsuðum. Svo beinum við auðvitað herliði voru að þessum fjandans hælisleitendum, sem nú þegar hafa komið landinu á hausinn og gjört fjölda manns öreiga og í strætið. Já, kæru vinir, þau eru hroðaleg þessi skipulögðu glæpasamtök, sem brúka grímur, hnífa og skammbyssur og venja æskufólk vort á vanabindandi og bráðdrepandi eitur og vændisstörf.

Því miður hafa sæmdarhjónin og menningartilfellin, frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson farið varhluta af vargöld skipulagðra undirheimasturlunga. Eina nóttina kom heimilisvinur þeirra hjóna, Óli Apaköttur, illa til reika og skríðandi til þeirra og sagði sínar farir ósléttar. Ofbeldismenn höfðu brotið á honum með því kveikja í rassinum á honum og brennimerkja hann á pungnum. Frú Ingveldur lagði kalda bakstra við brunasárin meðan Kolbeinn blandaði framsóknarskólp handa sjúklingnum. Daginn eftir kom svo Brynjar Vondalykt í heimsókn með þetta rokna glóðarauga, sem hann segir að grímuklæddur ofbeldisfantur hafi gefið honum inni í svefnherbergi harðgiftrar frauku af góðu standi. Telur Vondalyktin víst, að bófinn, eiginmaður fraukunnar, hafi sent þann grímuklædda misyndismann á vettvang í hefndarskyni. Af þessum sökum hafa frú Ingveldur og Kolbeinn vopnast all-rækilega á heimili sínu og eru nú þess albúin að takast á við útsendara skipulagðra glæpasamtaka. En þau hjón gleðjast mjög yfir herkvaðningu Nonnýboy og óska þess að honum takist að ráða niðurlögum óvinarins. 


mbl.is „Ekki mitt hlutverk“ að fegra hlutina fyrir almenning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árás á eitt ríki NATO er auðvitað árás á öll ríki NATO, það er klát mál

gunFyrst Úkraínumenn skutu eldflaug á Pólland þýðir það einfaldlega hernaðarárás á NATO ríki og þar með hernaðarárás á öll NATO ríki. Og úr því að svo er komið verða hermarskálkar NATO selskaparins, hvort heldur þeir heita Biden, Bjarni Jónsson eða Bjarniben, að efna til géneralárásar á Úkraínu með öllum tiltækum vopnum; og eira engu; og linna ekki látum fyrr en þessi fjárans Úkraína verður ein rjúkandi rúst.

Það verður samt að viðurkennast, að það er kyndug ákvörðun þeirra úkraínsku að skjóta niður friðsaman bóndabæ í Póllandi úr því að þeir ákváðu að fara að dæmi Hitlers heitins á síðustu öld og ráðast inn í Pólland. Að vísu hefir þeirri tilgátu verið varpað fram að sprengingin atarna í Póllandi hafi ekki verið af völdum þeirra úkranísku, heldur hafi bóndabærinn sem varð fyrir óhappinu verið útibú íslenska Framsóknarfjóssins í Póllandi, og hafi handlangarar framsóknaraðalsins þar verið að sýsla með hættuleg efni úr fórum Framsóknarísku kjarnorkustofnunarinnar með þessum hroðaafleiðingum. Framsóknarmennirnir hafi sem sé troðið meters löngum hólki, sem var einnig meter í þvermál og fullur með kjarnorku, á bólakaf ofan í Framsóknarfjóshauginn, sem búið var að koma upp þar eystra. Því miður yfirsást vísindamönnum gömlu Maddömunnar að reikna með eiturgufunum í haugnum og geislavirkninni frá þeim, því fór sem fór, en gufurnar og geislarnir boruðu sig inn og ræstu kjarnorkuna á hólknum og allt sprakk í loft upp og til andskotans.

En mikið er hressilegt að sjá hver blessaðir undanrennuungarnir í VG eru orðnir stríðfúsir og tilbúnir til að fórna sér fyrir NATO; það vantar bara upp á að þeir krefjist heimstyrjaldar og fái sjálfir að vera í fremstu víglínu. Mikið mega Björnbjarna, litla, stríðsæsta ráðherradúfan með langa nafnið, og Gölle a. vinur Björnsbjarna, vera ánægð með hve vel hefir tekist til að temja veslings ungalingana þeirra Stenngrims og Álfheiðar. Þegar svona er komið, og krakkagrey sem héldu eitt sinn að þau væru soldið róttæk til vinstri, en eru tilbúin að axla byssuna og þjóta út á vígvöllinn, þá verður stríð, meira segi ég ekki.

 


mbl.is „Mjög líklegt“ að eldflaugin hafi verið úkraínsk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ljóti karlinn í Reykjavík

fífl2Stundum var það skásta afþreyingin á tíðindalausum dögum í bænum, að fyljast með ljóta karlinum, lymskaðist dularfullur og óskiljanlegur um stræti og torg á daginn, en þegar kvöldaði og myrkrið tók völdin færði hann sig um set inn á lóðir manna og varð þá enn skuggalegri. Eitt sinn vorum við vitni að því að ljóti karlinn reig upp tóbakspípu að kveldlagi, kynnti ógurlega glóð upp í henni og fór að blása miklum, dökkum reykjarbólstrum inn um rifu á glugga íbúðar nokkurrar á jarðhæð í Hlíðunum. Við vissum sem var að sæmdarhjónin á þessum stað tækju óþverraskap ljóta karlsins illa upp því þau höfðu fullkominn viðbjóð á tóbaksreyk, enda stóð ekki á viðbrögðum þeirra. Við horfðum í vaxandi hryllingi upp á húsbóndann koma þjótandi út að glugganum og grípa óvildarmanninn gegnum gluggarifuna og svipta honum inn á gólf til sín. Eins og við manninn mælt hófust gríðarlegar misþyrmingar þar inni og svo kom ljóti karlinn í lágréttu ástandi út um gluggann eins og verið væri að fleygja dauðum fugli úr húsi.

Síðar sáum við ljóta karlinn í góðum félagsskap tveggja kvenna, sem við bárum kennsl á. Þetta voru illa ræmdar gálur, uppátektasamar og villtar. Löngu seinna gjörðust þær virðulegar frúr sem öll borgarastéttin elskar og dáir. Þær fóru með ljóta karlinn inn í runna bak við setubekk á Austurvelli og frömdu þar kynferðisofbeldi á honum, en ljóti karlinn hló og masaði á meðan. En mikið djöfull voru þau skítug, sóðaleg og illa til reika er þau skriðu eins og rottur eða melrakkar upp úr moldardrullunni og út úr runnanum aftur. Áratugum síðar leitaði ljóti karlinn til áfallaþerapista út af þessar raunarlegu reynslu sem hann hafði orðið fyrir.

Svo liðu árin eins og vera ber og við sáum ljóta karlinn æ sjaldnar og það litla sem við fréttum af honum var allt ljótt eins og hann. Hann hafði komist til óverðskuldaðra mannvirðinga og var farinn að hugsa og ákveða fyrir fólk og hirða af því pénínga gegnum sjóði. Þetta finnst ljóta karlinum víst dálagleg vinna. Svo var það eitt kvöldið í síðastliðnum október, að honum varð á sú alvarlega skyssa að míga innum eldhúsglugga inni í Laugarneshverfi, en húsmóðirin með þrjú lítil börn hafði opnað gluggann meðan hún var að sjóða ýsuþunnildin, sem fisksalinn í hverfinu hafði gefið henni. Þetta afrek ljóta karlsins mæltist svo illa fyrir, að Laugnesingar siguðu á hann hundum, sem rifu hann og tættu og bitu af honum leyndarliminn, sem honum hafði láðst að pota oní buxnaklaufina þegar hann varð hundanna var. Síðar sannaðist að þetta voru blóðhundar, en ljóti karlinn hefir farið huldu höfði síðan þetta gerðist og er talið að nú sé hann til alls vís.


mbl.is Eðlilegt að gagnrýna lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver þorir í Kristrúnu

ing17Sko þá stuttu, hún vóð svellköld í Engeyjarprinsinn og gaf honum slíkt drag í bölvaðan péníngapunginn að hann hefir ekki náð andanum síðan og snúist um lágréttur einkavinvæðingarforinni í einu drullandi krampakasti. Það væri munur ef eymínginn hún Katrín, eða hún Swandeesý, hefði afgreitt prinsinn á viðlíka hátt í dag. En, nei, hryggðarmyndirnar í draugagreni VG brugðust hart til varnar fyrir Bjarnaben með kunnuglegum orðavaðli um að ýmislegt hefði mátt betur fara og að ,,við" þurfum að læra af mistökunum, sem auðvitað eru með öllu óskilgreind í ræðuhöldum hinna klunnalegu taðmeyja VG.

En mundi Katrín Jakkó þora að mæta smátelpunni Kristrúnu kratanna í Kastljósi? Eða Swandeesý. Nei, þær mundu ekki hafa hugrekki til; þær mundu lyppast niður roðhænsni. Vitanlega. Það væri helst að gamla fiskeldisdrottningin, Flokkseigandinn og fornaldareðla auðvalds og háborgaralegrar menningarúrkynjunar, sjálf Álfheiður Ingadóttir, mundi ropa sig upp í ham til að mæta Kristrúnu, sem líka er péníngabudda eins og Álfheiður, í Kastljósi. Jamm.

Já, Engeyjarprinsinn er illa leikinn þessa stundina af Kvikudísinni krataeðlispaurana. Og hann er rétt ný staðinn upp eftir að hafa slegið Gölle a. Þórðarson í rot í ,,lýðræðis- og frelsishátíðinni" miklu í Laugardalshöllinni á dögunum. Og sú var tíðin að einstaka þingmenn VG, þó alls ekki allir, gagnrýndu nýfrjálshyggju, einkavæðingar og kapítalisma af krafti og með vönduðum rökum. Nú er komið í ljós að liðsmenn VG, sem nú ráða lögum og lofum á þeim bæ, hafa hvorki hlustað né tekið mark á einu einasta orði af fyrrgreindri gagnrýni fyrrum þingmanna flokksins, til að mynda Ögmundar Jónassonar, og enn síður lært eitthvað af henni. Ó nei, hin nýju, háskólagengu efrimillistéttarbörn með trans tendensana og tilgerðina, sem nú skipa þingflokk VG, eru óskabörn borgarastéttarinnar og í hávegum höfð í ræðum alræmdra hægrivarga á sama hátt og gamla Margét Thatcher mærði ,,verkamannaflokksforingjann" viðbjóðslega, Tony Blair.  


mbl.is Skýrslan áfellisdómur yfir Bjarna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýrísk hugleiðing um kúlukukk

femma2Hvort er Helga Vala kúl eða kúla? Um það hafa sérfræðingar setið á rökstólum í dag. Vér, sem erum leikmenn, höllumst lang-flest að því að hún sé kúla, jafnvel kúluvembill meður kúlubotn. Eða eins og þjóðskáldið orkti þegar eiginkona þess féll niður stigann og lá rotuð lengi dags á vaskahússgólfinu:

Mín er kvinnan fallin frá,
féll hún niður stigann.
Tilveran nú við tekur grá
og tómleg lygamigan.
En um kveldið upp reis frú
eins og Þorgeirsboli.
Séð hef ég ekki aðra kú
öskra sem baldinn foli.

Hvað sem öðru líður, þá tók víst hagfræðikvendið Kristrún í halann á Helgu Völu og dró hana á honum út í kuldann. Síðan er Helga Vala kúl og króknar brátt úti í krataeðlishúminu. Já, svo er það. Síðustu nótt heyrðist hún umla veiklulega milli aðkenninga: ,,Ráðlegt er að hafa í hakk hagfræðinga og skítapakk", en kötturinn sem ævinlega sefur í hlýju bóli Bjarnar, brosti í kampinn og gjörði Loga að þingflokksformanni. 


mbl.is „Ég læt þetta ekki trufla mig, ég er bara kúl“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvær systur

vörurnarÞað var líka sona abelsínuönd á Bólstaðarnesi vestra. Hún bar þykkar, abelsínugular vörur, sem stóðu vel fram, og millum þeirra hékk oftar en ekki logandi vindlingur, gjarnan af tegundinni Camél eða Chesterfield, en reykinn lagði einlægt upp í vinstra augað á henni og með tímanum varð hún blind á auganu og því var hún hægri sinnuðu kölluð. Hún fannst önduð einn frostkaldan dag úti á túni og það var dautt í vindlingnum.

Systir abelsínuandarinnar var líka sérstök. Hún varð ástfangin af hundi og gekk á fund séra Atgeirs p. Fjallabakssen og bað hann gefa þau saman, hana og hundinn. Þókt séra Atgeir sé alræmdur værðarklerkur og stundum eilítið utan við sig, þá gjörði hann strax athugasemdir við þessa beiðni og sagði konunni að það væri afbrigðilegt að vilja giftast hundi og enn afbrigðilegra að steðja á fund sóknarprests síns og fara fram á við hann að fremja annað einsguðlast og drottinssvikaverk. Vegna synjandi afstöðu séra Atgeirs og neikvæðni í garð hundsgiftingar varð konugarmurinn hnuggin, en afréð þess í stað að stofna til óvígðrar sambúðar með hundinum og fór svo fram um hríð.

marry4En vorið eftir að konan gekk á fund séra Atgeirs fékk hún hundafár og lést í byrjun júní. Hundurinn lét sig hverfa strax eftir andlát heitkonunnar og, fór huldu höfði og lagðist á fé bænda og lifði kóngalífi á fjöllum. Þegar borið var upp við séra Atgeir að jarðsyngja þá látnu kvað hann öll tormerki vera á þessháttar athöfn; Gwöð vildi ekkert með sona konu hafa og því skyldi hún urðuð utangarðs, nánar tiltekið kastað í gamla hálffulla mógröf, sem stæði tilbúin frá náttúrunnar hendi út við Takmýri, þar sem mótak Bólstaðarnesinga hefði staðið með blóma fyrir all-mörgum áratugum. Síðan bauð séra Atgeir að tveimur vörubílshlössum af heldur grófu malargrúsarefni væri sturtað ofana á. Þannig fór með þær systur - blessuð sé minning þeirra, þannig lagað séð. 


mbl.is „Ég held ég hafi aldrei hlegið meira“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brúarlandsundrið er aðstoðarlubbi til illra verka

xvg5Það hefir lengi verið vitað að Brúarlandsundrið sé fremur lélegt eintak í hvívetna og ónýtt til sósíalískra verka. En af einhverjum undarlegum og óskiljanlegum ástæðum hefir þessi drengskökull öðlast sérkennilegar vinsældir hjá Stenngrimi Joð, Álfheiði og Swabbófamilíunni, sem í aðdáunarskyni hafa gjört hann að þingmenni og ráðherra VG í auðvaldsríkisstjórn Katrínar og Bjarnaben. Fyrir nú utan að það er algerlega tilgangslaust að gjöra annað eins undur og Brúarlandsundrið að stjórnmálamanni, þá kemur nú í ljóst að hann er senditík og aðstoðarlubbi Jóns Gunnarssonar í árásum á öreiga útlendinga sem hingað hafa ratað, í að því er virðist vonlausri baráttu fyrir mannsæmandi lífi. 

En þetta er svo sem í takt við aðra félagslega og andlega útkynjun VG, en á þeim bær virðist keppikeflið vera að vera eins óvinstrisinnaður og hugsast getur en leggja þess í stað alla áherslu á að leka eins og drulluspýja með Sjálfstæðisflokknum til allra þeirra óhæfuverka sem þeim arma Flokki dettur í hug að fremja.

Undramundur úti liggur aldrei sefur,
dregur meir en Drottinn gefur,
dyggðasnauður maðkanefur.

Og vissulega hefir Brúarlandsundrið gjört sér tíðförult um maðkafjörur Sjálfstæðisflokks og Framsóknar og notið til þeirrar þokkaiðju fulltingis Flokkseigendafélags VG. Vér erum mest hissa á að Andrés Ingi, sem gjörður var brottrækur af Stenngrimi og Katrínu frá VG og varð flóttamaður og hælisleitandi hjá Pírötum, skuli ekki hafa leitt Brúarlandsundrið eins og sakamann upp í ræðupúlt Alþingis og hýtt hann þar stórhýðingu eins og hund. En auðvitað er Andrés Ingi ekki bógur til slíkra stórræða og lét sér nægja að muldra samhengislaust röfl um Brúarlandsundrið og andúð þess á hælisleitendum.  



mbl.is Styður Bjarna í aðgerðum vegna ÍL-sjóðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Há-greindarvísitölufélagið við höfnina er framtíðin, eða hvað?

x46Þetta verður nú flott verkalýðsfélag og gerir hafnarverkamenn að auðkýfingum á augabragði. Það er líka búið að velja verkalýðsfélaginu nafn: Hágreindarvísitölufélagið við höfnina skal það heita, talsmanninum Aðalsteini Björnssyni til heiðurs. Ekki skal heldur efast að félagsmenn munu fá undir eins eftir stofnun verkalýðsfélagsins við hafnarbakkann í Reykjavík, gríðar háan bónus frá Eimskipafélaginu, hvers eigendur, ásamt Valhallarbændum, hafa talsmanninn Aðalstein Björnsson í miklum hávegum og eiga í honum hvert bein.

Ekki þurfa Valhallarbændur, Eimskipafurstar og Viðskiptaráð að hafa áhyggjur af heimtufrekju og verkfallshótunum frá hinu nýja félagi, Hágreindarvísitölufélaginu, eftir að það tekur til starfa. Hins vegar mun Hágreindarvísitölufélagið við höfnina gjöra allt sem í þeirra valdi stendur til að grafa undan verkalýðshreyfingunni á Íslandi og koma í veg fyrir róttæka stéttabaráttu. Þetta verður sem sagt eitt veleðla hágreindarvísitölufélag hugsjónamannsins og talsmannsins Aðalsteins Björnssonar.

Vér gjörum öll ráð fyrir að Aðalsteinn Björnsson, talsmaður og hugsjónamaður, verði formaður Hágreindarvísitölufélagsins við höfnina og honum til aðstoðar Gwöndur á Gröfunni, Sigurður H. Einarsson, Ólöf Helga Adólfsdóttir, Anna Sigurlína Tómásardóttir, Guðrún Katrín Bryndísardóttir, Kristjana O. Valgeirsóttir, Halldóra Saleksdóttir, Björn Framsóknarmaður á Akureyri, Sjálfstæðisflokkurinn, Samfylkingin, og allir sannir samherjar landsins. Eins og sjá má á þessari upptalningu eru aungvir aukvisar og rindilmenni í aðstoðarsveit Aðalsteins talsmanns og greindarvísitala sveitarinnar mjög há, eins og vera ber. En þó er aungvu líkara en hafin sé leiftursókn hinna hógværu og góðu gegn alþýðu landsins og verkalýðshreyfingunni, - eða hvað segið þið um það drengir mínir?


mbl.is Vilja kljúfa sig frá Eflingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmtileg ásýndarveisla í mjög spennandi Samfylkingu

skip2Það kvað vera ógn gaman í Samfylkingunni núna; það er skohh verið að breyta ásýnd hennar og breytingar á ásýnd hefur allaf verið uppáhaldsmál samfylkingarmanna. Ásýndin skohh, það er skohh lífið, sagði gamli krataeðlissteggurinn úr ræðustóli á landsfundinum í gærkveldi og klóraði sér fjálglega í afturendanum á meðan. Já, krataeðlisflokkarnir, Alþýðuflokkurinn heitinn og síðar Samfylkingin hafa, áratugum saman, átt langar slímusetur á förðunarstofum auglýsingaskrumsins og farið í fjöld lýtaaðgerða, sem þó hafa aðeins gert sjúklinginn ljótari og ljótari, svo hann er farinn að líkjast mest úrkynjuðu skrímsli ef maður sér hann tilsýndar.

Yfirstanda ásýndarlækning Samfylkingarinnar er voða spennandi, að sögn innvígðra gáfumanna og þá ekki síður greindarvísitölukvenna flokksins. Ber hæst í spennunni kjör Kvikubankagenginnar frauku með hagfræðipungapróf í stól formanns Samfylkingarinnar, en hún hefir mest sér að spjalla um pénínga og vergar gróðatölur og péníngaleg fix og trix; (eða talar hún mest um vergjarnar gróðatölur, ég er ekki viss, jæja, - það leiðréttir mig þá einhver ef ég fer rangt með). Það var líka voða spennandi að þeir skyldu kjósa Kjartan Valgarðsson af höndum sér, þann gegnheila samfylkjúng.

Við megum heldur ekki gleyma garminum honum Katli, honum Gvöndi Árna úr Hafnarfirði. Gwöndur Árni var í ríkisstjórn með Davíð og Nonna Bald og Hannesi H. við upphaf nýfrjálshyggju; hann er því einn af upphafsmönnum virkrar nýfrjálshyggju á Íslandi. Reyndar hafnaði Gwöndur Árni í einhverju spillingardrullumalli í ráðherratíð sinni og varð að segja af sér, og er hann hvað það varðar í félagi með Hönnu Birnu og frú S. Andersen, en var verðlaunaður fyrir spillinguna með sendiherrajobbi eins og aðrir spilltir stjórnmálaraftar. En nú þykir sem sé gott að hafa spillt trýnið á Gwöndi Árna í gullinni ásýnd Samfylkingarinnar. Samfylkingin er nýfrjálshygginn nýfrjálshyggjuflokkur, sem hefir á sinni þjáningarfullu æfi margsinnis gjört heldur illa í buxurnar, alveg eins Alþýðuflokkurinn pabbi hennar; þetta er óhrjáleg hjáleiga í túnfæti höfuðbólsins, Sjálfstæðisflokksins, og kalla sig jafnaðarmenn því þeir vilja vera jafnir Sjálfstæðisflokknum og Framsókn á vígvelli auðvaldsins. En sósíalisma hata hinir meintu jafningsmenn krataeðlisins eins og pestina, þrátt fyrir að upphaflega hafi orðið jafnaðarmaður þýtt sósíalisti. Enn fremur er það ógn spennandi að Samfylkingin og hennar jafnaðarmenn er komin á fullt í heilagt stríð gegn Sólveigu Önnu og róttæka hluta verkalýðshreyfingarinnar, sem er auðvitað í fullu samræmi við fylgispekt þessara jafninga og krataeðlis-nýfrjálskyggjustampa við NATÓ og demókratan og repúblíkanana í USA.   


mbl.is Breyta nafni Samfylkingarinnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband