Leita í fréttum mbl.is

Vargar í véum

jol2Ég hélt í einfeldni minni ađ öllum vćri fyrir löngu ljóst, ađ rauđklćddir karlmenn vćru einhverjir verstu vargar í véum sem um getur. Ţađ er ekki fyrr en einhverjir bögubósar, sem ţykjast vera rannsóknamenn, vara viđ hćttunni af ţeim rauđklćddu, ađ almenningur vaknar til vitundar um alvöru málsins.

Hćttulegastir allra, sem spóka sig um í rauđu dressi, eru tvímćlalaust helvítis jólasveinarnir, einkum kókjólasveinarnir, en ţeir svífast einskis ţegar kvenfólk er annarsvegar. Stórbrotiđ dćmi um andstygglegheit úr ţessum afkima samfélagsins er ţegara jólasvíniđ Gluggagćgir, rauđklćddur ađ vanda, dró Máríu borgargagn á tálar ađ áliđinni jólaföstu fyrir fjórum árum. Ţegar Indriđi handređur, sambýlissveinn Máríu, stóđ Gluggagćgi og Máríu ađ verki í stofusófanum, skipti engum togum ađ sá rauđi spratt á fćtur öldungis buxnalaus og sló Indriđa handređ í rot og sneri sér ađ svo búnu afskaplega vingjarnlegur ađ sambýliskonu hins međvitundarlausa, sem lá í blóđi sínu á miđju stofugólfinu.

Ţegar Gluggagćgi ţókti Máría borgargagn fullknúin til ásta, flengdi hann Indriđa, sem ţá var um ţađ bil ađ rakna úr roti sínu, harkarlega um bak og ţjó međ sjálfu jólatrénu sem stađiđ hafđi fullbúiđ ţar í stofunni.

Af ţessu má sjá, ađ löngu er tímbćrt ađ taka jólasveina úr umferđ hvar sem í ţá nćst og leiđa ţá fyrir byssukjafta sérţjálfađrar aftökusveitar.


mbl.is Konur lađast ađ rauđum körlum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband