Leita í fréttum mbl.is

Röggsemi Ögmundar - slóđaskapur kvenna

kolHann er fljótur ađ láta til sín taka hann Ögmundur Jónasson, loksins ţegar Jóhanna og Steingrímur ţorđu ekki öđru en ađ fá honum ráđherrastól svo ađ fari nú vel um hann; og nú ćtlar hann ađ leigja björgunarţyrlu, dálítiđ sem forveri hans, vinsćli ráđherrann Ragna Árnadóttir, ţorđi eđa vildi ekki gera.

Af ţessu má draga ţá ályktun ađ konur séu ákvarđannafćlnar langt umfram karla og er ţar máske komin skýringin á meintu sluxi og ráđaleysi ríkisstjórnarinnar fram ađ ţessu. Ţađ kann ţví ađ vera mjög alvarlegt mál ađ hafa marga kvenkyns ráđherra í einni ríkisstjórn; vćri stjórnin eingöngu skipuđ konum má samkvćmt ofangreindri tilgátu ćtla ađ íslenska ríkiđ vćri liđiđ undir lok og brostinn á sá stéttlausi kommúnismi án ríkisvalds sem Karl Marx og ađra góđa drengi hefur dreymt um, elligar geggjađur, anarkí frjálshyggjudans ţar sem ríkiđ er geymt í litlum kassa inní peningaskáp hjá einhverjum voldugum forstjóra, t.d. Ţorsteini Má í Samherja eđa Björgvini Thor.

En Ögmundur er sem sé kominn í ríkisstjórn og er ţegar í stađ farinn ađ bjarga fólki á ögurstundu, ólíkt kvenpeningnum í stjórnarráđinu ţeim Jóhönnu, Kötu litlu, Kötu Júll, Swandeesy Sendiherrans, Stengrimi og Árna Páli.

Til ađ fyrirbyggja allan misskilning, lesandi góđur, ţá er nöfnum Stengrims og Árna Páls ekki ofaukiđ listanum yfir kvenpeninginn í ríkisstjórninni.  


mbl.is Stađfesti dóm hérađsdóms
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Finnur Ólafsson Thorlacius

Ţađ er rétt ađ benda á ađ ţetta var nú komiđ í pípurnar áđur en Ögmundur tók viđ, LHG var búinn ađ auglýsa eftir ţyrlu, ţađ átti bara eftir ađ ganga frá ţessu

Finnur Ólafsson Thorlacius, 10.9.2010 kl. 13:01

2 Smámynd: Jón Snćbjörnsson

sama hvađan gott kemur strákar

Jón Snćbjörnsson, 10.9.2010 kl. 13:03

3 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ţađ má vera ađ ţyrlan hafi veriđ komin í pípuna, en ţađ ţorđi enginn ađ blása henni út fyrr en Ögmundur kom til skjalanna.

Jóhannes Ragnarsson, 10.9.2010 kl. 13:07

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband