Leita í fréttum mbl.is

Athafnamaður að störfum

xd10.jpgÞrátt fyrir hrun frjálshyggjunnar á Íslandi 2008 eru stöku frjálshyggjumenn enn að störfum öllum til ama og þjóðfélaginu til skammar. Það þarf ekki að fara í grafgötur með, að þrjóturinn sem arkaði vopnaður milli skemmtistaða á höfuðborgarsvæðinu í nótt og seldi stöff, er eitt af þessum andstyggilegu frjálshyggjumönnum sem eiga athvarf sitt í Sjálfstæðisflokknum. Nú á jólaföstunni er sem betur fer að renna upp fyrir æ fleirum, að Sjálfstæðisflokkurinn er í raun og veru stækkuð útgáfa af ríki Fagins gamla í Oliver Twist. Sömuleiðis verður krafan um að Sjálfstæðisflokkurinn verði bannaður háværari með hverjum degi. Standi nú vonir bjartsýnna manna til að hin óarga samtök frjálshyggjusóða, sem af meðfæddir ósvífni sinn kenna sig við ,,Sjálfstæði," verði lögð niður með valdi milli jóla og nýárs.
mbl.is Vopnaður riffli á skemmtistað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Að banna stjórnmálaflokk, það væri brot á 74 grein stjórnarskrárinnar.

Ásgrímur Hartmannsson, 5.12.2010 kl. 11:53

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Hvenær er stjórnmálaflokkur stjórnmálaflokkur og hvenær er stjórnmálaflokkur glæpasamtök? Varla er það brot á 74. grein stjórnarskrárinnar að banna glæpasamtök?

Jóhannes Ragnarsson, 5.12.2010 kl. 12:28

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ertu ekki að fá sjálfan þig í bakið með svona málflutningi Jóhannes?

Axel Jóhann Hallgrímsson, 5.12.2010 kl. 17:36

4 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Fá sjálfan mig í bakið? Nei, það held ég ekki.

Jóhannes Ragnarsson, 5.12.2010 kl. 17:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband