Leita í fréttum mbl.is

Skemmtileg kona og stórgáfuð

kol_1046484.jpgÞað hefir löngum verið vitað að frú Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir væri skemmtileg kona og stórgáfuð, ekki síður en Ebeneser Draummann, svo sem sjá má á því að hún flutti búferlum úr Framsóknarflokknum yfrí Samfylkinguna með viðkomu í Þjóðvokakoti; þessháttar flutningar eru falla að vísu undir hugtakið að fara út öskunni í eldinn, en það gerir ekkert til þegar Ásta Ragheiður á í hlut.

En þrátt fyrir óvéfengjanlega stórar gáfur Ástu Ragnheiðar hélt ég hún væri ekki svo fantavel að sér að tala um að hús í gamla miðbænum ,,kallist á." Að vísu hefi ég heyrt mússikskarkala frá húsum á þessum slóðum og stundum háreysti drukkinna manna og kvenna, en að þau hljóð kæmu úr barka húsanna sjálfra þegar þau eru að tala hvert við annað, hafði mér aldrei dottið í hug.


mbl.is Skúlahús flytur um set
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband