Leita í fréttum mbl.is

Miskunsami Samverjinn í öđru veldi starfar á međal vor.

pian2Ekki trúi ég ađ stórsósíalistarnir í bćjarstjórn Kópavogs, Óli góđi og varastýra hans, Guđný Dóra Svavarssystir á Gljúfrasteini, hafi veriđ međ í ađ sparka öđlingnum Jónasi Ingimundarsyni eins og illa ţefjandi hundskvikindi frá störfum fyrir Kópavogsbć og draga hann síđan inn aftur lemstrađan og forugan.

Óli góđi, stórsosíalist og Svavarssystirin á Gljúfrasteini eru nefnilega heilagir hámenningarsinnar (sumir segja skinheilagir) og taka ekki ţátt í ađ ausa merkileg menningarljós kamarafurđum og ýldu. Ekki hefur enn ađ minnsta kosti heyrst ađ Guđný Dóra, stađarheldari og bitlingsţegi ađ Gljúfrasteini í Mosfellsdal, hafi nokkru sinni tekiđ í hornin á Haldóri Laxness og sveiflađ honum öfugum útum stofugluggann á Gljúfrasteini. Og um menningarást og listelsku Óla góđa ţarf ekki ađ fjölyrđa: hann er sjálfstćtt listaverk útaf fyrir sig og af honum slćr björtum bjarma sannarar menninga svo fólk fćr ofbirtu í augun hvar sem hann ber fyrir.

Ţađ liggur ţví í augum uppi, ađ ţađ vóru Guđríđur (ekki Tyrkja-Gudda) og bćjarstjórinn á bílnum sem lögđu höndur á tónlistarráđunautinn og vörpuđu honum fáklćddum útá strćtiđ. En Óli góđi og Gvöđný Dóra báru hann inn aftur eins og miskunsami samverjinn í öđru veldi, vöskuđu hann upp, hátt og lágt, međ grćnsápu, kreólíni og helvítissteini, bundu um sár hans og settu hann loks niđur viđ píanóiđ og buđu honum ađ leika Hamraborgina.

Á ţessu má sjá hverjir ţađ vóru sem reyndust náungar Jónasar ţegar í harđbakkann sló. 


mbl.is Uppsögn Jónasar afturkölluđ
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Baldur Hermannsson

Kópavogur er orđinn fallandaforađ eftir ađ frumbyggjarnir steyptu höfđingja sínum, sem aldrei skyldi veriđ hafa.

Baldur Hermannsson, 13.2.2011 kl. 12:01

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ţađ er aumt hlutskipti fyrir Kópavogsbúa hrinda Gunnari borgarstjóra fyrir björg og fá bćjarstjórann á bílnum í stađinn.

Jóhannes Ragnarsson, 13.2.2011 kl. 20:09

3 Smámynd: Baldur Hermannsson

Aha, ţeir fleygđu ţungaviktara fyrir borđ og fengu léttiviktara á krókinn.

Baldur Hermannsson, 13.2.2011 kl. 20:52

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband