Leita í fréttum mbl.is

Mikiđ vćri nú ţćgilegra

cry3Ég vorkenni Vilhjálmi Egilssyni óskaplega mikiđ, enda ţarf sterkar taugar til ađ ţola öll ţau undur og býsn sem ţessi geđugi frjálshyggjustampur getur kjökrađ og umlađ yfir óréttlćti heimsins í garđ vígreifra kapítalista af útgerđar- og verktakastandi. Og alltaf er lausnarorđ Vílhjálms og hans manna fólgiđ í ađ gráta út peninga úr ríkissjóđi; ríkiđ fái verktökum verkefni, ríkiđ efli og bćti stöđu kvótakónga; og ţannig upp aftur og aftur.

Mikiđ vćri nú ţćgilegra ef Viljálmur og kompaní hćttu ađ sveima kringum ríkissjóđ eins og breima fresskettir, en fćru ţess í stađ ađ gera eitthvađ sjáfir uppá eigin spýtur til ađ auka ţennan hagvöxt sem ţeir eru alltaf ađ mjálma um. Ţađ er nefnilega afar sorglegt ađ ţurfa ađ sitja uppi međ slappa og ráđalausa atvinnurekendur, sem ekki geta lyft svo mikiđ sem litlafingri nema međ ađstođ ríkisins. Eftir söng ţeirra ađ dćma eru afar, afar fá athafnaskáld í hópi atvinnurekenda en ţeim mun fleiri athafnaleirskáld sem hafa ekki einusinni döngun í sér til ađ hífa uppum sig buxurnar en skjögra alla daga um međ allt á hćlunum og heimta peninga úr ríkissjóđi ţrátt fyrir ađ sá merkilegi sjóđur sé meir en tómur eftir frjálshyggjućvintýriđ mikla.


mbl.is Gegn mögulegum skattahćkkunum
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Mikiđ vćri nú ţćgilegra ef Viljálmur og kompaní hćttu ađ sveima kringum ríkissjóđ eins og breima fresskettir, en fćru ţess í stađ ađ gera eitthvađ sjáfir uppá eigin spýtur til ađ auka ţennan hagvöxt sem ţeir eru alltaf ađ mjálma um. Ţađ er nefnilega afar sorglegt ađ ţurfa ađ sitja uppi međ slappa og ráđalausa atvinnurekendur, sem ekki geta lyft svo mikiđ sem litlafingri nema međ ađstođ ríkisins.

Ţetta Jóhannes Ragnarsson er hreinn og beinn gullmoli.  

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 9.8.2011 kl. 11:49

2 Smámynd: Ţráinn Jökull Elísson

Ţetta er nú bara sama dćmiđ og kettlingarnir hennar Blíđu minnar. Hefđu ţeir ekki veriđ vandir af spenanum vćru ţeir ólćknandi spenatottarar.

Ţráinn Jökull Elísson, 9.8.2011 kl. 19:59

3 Smámynd: Magnús Jónsson

Jóhannes:ţú gleymir ţví alveg ađ stjórnvöld hafa svikiđ öll loforđ um atvinnuuppbyggingu, sem atvinnurekendur gćtu nýtt sér til ađ byggja upp, og ađ sömu stjórnvöld standa í raun gegn allri atvinnuuppbyggingu sama hverju nafni hún er nefnd, beita fyrir sig náttúruvernd og skipulags-töfum, nota nánast hvert hálmsstrá til ađ koma í veg fyrir atvinnuuppbyggingu, enn sennilega sérđ ţú ţađ ekki gegnum pólitíska blinda augađ, sem er ađ verđa mesta mein ţjóđarinnar.

En nei ţú ert sennilega ekki ađ gleyma neinu, ykkur sósíalistunum líđur nefnilega ekki vel nema ađrir hafi ţađ skítt og helst allir, ţiđ sjálfir međtaldir.

Magnús Jónsson, 10.8.2011 kl. 01:38

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband