Leita í fréttum mbl.is

Enn er djáknalaust að Myrká

womÉg er hissa á að hvorug hinna nývígðu djáknkvenna skuli ekki hafa látið vígja sig heldur til Myrkárprestakalls, en þar hefur hefur djáknaembættið lengi verið laust til umsóknar.

Nú er það svo, að embættisheitið ,,djákni" er dregið enska orðinu ,,donkey" og vísar til þess að þar fari það fífl sem á foraðið skal etja þegar þess þarf með.

Aftur á móti var djákninn á Myrká, sá eini sanni, enginn ,,donkey." Hann reið um sveitir á góðhestinum Faxa og stundað kraftmikið kvennafar eins og goðum djákna sæmir. En því miður varð þessum skarpa djákna það óhapp á, að flengríða Faxa sínum ofaní hræðilegan hyl í fljóti nokkru og drukknaði þar ásamt færleik sínum. En til að geta stundað kvennafar eins og frá var horfið, þegar bannsettur hylurinn varð á vegi þeirra félaga, neyddist djákninn til að ganga aftur og með honum hrossið Faxi.

En eftir að umræddur djákni fórst í vatnsfallinu atarna og gerðist draugur uppúr því, hefur engin djáknakind þorað að vígjast til Myrkárprestakalls, því miður.


mbl.is Prestvígsla í Skálholti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband