Leita í fréttum mbl.is

Lýsti síđdegis yfir stuđningi viđ Hönnu Birnu

kol2Mikiđ ógurlega er nú hún Hanna Birna sprenglćrđ kona. Ţađ sést best á ţví ađ hún kann ađ segja, ,,kerfiđ ţenst út" og ,, ţar skorti alla pólitíska sýn" eins og ekki neitt og sleikir meira ađ segja útum á eftir eins og dáindisvel alinn fressköttur, sem er nýbúinn ađ éta skógarţröst og drekka heilan líter af rjóma á eftir.

Og ekki er ađ undra, ađ Hanna Birna sé vel ađ sér, enda nam hún frćđin í Valhöllu viđ kné Kjartans Gunnarsonar, auk ţess sem hún er mjög vel ađ sér í Hanezi Holmsteiner, herra Pé. Blöndal og Tryggva  Ţór Herbertssyni. Ţađ er ekki amalegt fyrir Sjálfstćđisflokkinn ađ fá svo víđlesna og marggáfađa konu fyrir formann eftir nokkra daga.

Ţá gerđist sá ánćgjulegi atburđur nú síđdegis, ađ frú Ingveldur lýsti yfir hugheilum stuđningi viđ Hönnu Birnu til formanns Sjálfstćđisflokksins. En stuđningur frú Ingveldar er náttúrlega algjör hvalreki fyrir Hönnu Birnu, ţví vandfundinn er er betri stuđningsmađur en frú Ingveldur. Ađ vísu var frú Ingveldur nokkuđ viđ skál ţegar hún lýsti yfir fyrrnefndum stuđningi, en vó ástand sitt upp međ ferskum hressileika og jákvćđni. Ţađ skyggir samt nokkuđ á gleđi manna í stuđningsliđi Hönnu Birnu, ađ sjálfstćđiskonan Máría borgargagn hefur veriđ ófáanleg fram ađ ţessu, ađ veita Hönnu Birnu liđveislu í fegurđarsamkeppninni viđ Bjarna Ben, ţann endemis durt og grátsöngvara.

Og ekki mun linast kjökur Bjarna ţegar taliđ verđur uppúr kjörkassanum í Valhöllu. 


mbl.is Meirihlutann skortir sýn og stefnu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband