Leita í fréttum mbl.is

VG í vargakjafti öfgafeminista

imagesÁ landsfundi VG liggja fyrir drög ađ samţykkt, sem ber yfirskriftina "Ađgerđir til kvenfrelsis". Er ţar skemmst frá ađ segja, ađ sjaldan hef ég séđ annađ eins bull. Ţađ er engu líkara en ţar hafi um vélt samansafn af rauđvínsdrukkum kerlingum úr efri-millistétt, sem á hátíđarstund hafa kjaftađ sig upp í rjáfur heimsku og vitleysu.

Í ţessum framúrskarandi drögum er talađ fjálglega um "kynjakerfi samfélagsins" sem takmarki ađgengi kvenna ađ völdum og fjármagni. Svona orđbragđ segir mér ţađ eitt, ađ ţarna séu á ferđ kvinnur sem ekki eru af alţýđustandi og raunar vćri hvađa atvinnurekandi sem er, eđa samtök atvinnurekenda, fullsćmdur af svona valda- og fjármagnstalsmáta.

En mestu flugi ná ţó hinar öfgafullu efri-millistéttarkerlingar í VG ţegar ţćr leggja til, ađ bundiđ verđi í stjórnarskrá ađ jafnt hlutfall karla og kvenna sitji á Alţingi og í sveitarstjórnum og ađ lögbundiđ verđi jafnt hlutfall sömu kynja í stjórnum fyrirtćkja. Svo hnýta ţćr aftan í ţennan kafla hugaflugsins, magnađri yfirlýsingu á nauđsyn ţess ađ koma á "kynjađri fjárlagagerđ".

Síđar í drögunum er lagt til, "ađ karlar sem beita ofbeldi verđi fjarlćgđir af heimilum". En hvađ međ konur sem beita ofbeldi? Er ekki tilvaliđ ađ afgreiđa ţćr á sama hátt og ofbeldiskarlana. Um ţá hliđ málsins er ekki minnst einu orđi eins og sá möguleiki sé ekki fyrir hendi.

Loks brydda blessađar frúrnar upp á ţví nýmćli ađ nauđsynlegt sé ađ "koma á kynjafrćđikennslu á öllum skólastigum".

Eftir lestur draga efri-millistéttarkerlinganna í VG, er farinn ađ lćđast ađ mér grunur um ađ umrćddar kvinnur hafi einhvenrtímann í ósköpunum komist ađ ţeirri niđurstöđu ađ karlar og konur séu fráleitt af sömu dýrategundinni, ekki fremur en fálki og rjúpa.

Ég verđ ađ segja eins og er, ađ mér er huliđ hvernig samsetningur á borđ viđ drög ađ "Ađgerđum til kvenfrelsis" hafa komist inn á landsfund VG. Datt engum heilvita manni ađ stoppa ţessa vitleysu af, eđa hvađ? Ég skil t.d. ekki, af hverju formađur flokksins, Steingrímur J. Sigfússon kom ekki veg fyrir svona uppákomu, annađ eins hefur hann tekiđ sér fyrir hendur. Eđa er hann sammála bullinu í efri-millistéttarkerlingunum?


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Sigurjón Oddsson

Skemmtilegur pistill. Hvet ţig til ţess ađ skrifa meira.

Einar Sigurjón Oddsson, 24.2.2007 kl. 23:48

2 Smámynd: Haukur Nikulásson

VG er orđinn ađ öfgafullum femínistaflokki. Sem er kannski bara ágćtt fyrir ţá sem ćtla ađ keppa viđ ţá um hylli kjósenda. Margt í umrćđunni hjá ţeim ber merki um ađ rćđa megi andlegt atgervi sumra ţeirra.

Haukur Nikulásson, 25.2.2007 kl. 09:01

3 identicon

Eru ekki einhver međferđarúrrćđi til handa ţessum "femínistum"? Bandarríkjamenn voru međ á sínum tíma međ s.k. Denazificationprogram sem tók 6-12 mánuđi, eftir ţví hvađ fólk var langt leitt í ruglinu. Sagan sýnir svart á hvítu ađ ţađ virkađi nokkuđ vel.  

Guđmundur G. Hreiđarsson (IP-tala skráđ) 25.2.2007 kl. 12:01

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband