Leita í fréttum mbl.is

Frćnka frú Ingveldar fćr veglegt embćtti hjá Flokknum

ingv6_1222924.jpgHvert sem liđiđ er má sjá framfarir í okkar blessađa ţjóđfélagi (sem óviđfelldir einstaklingar kalla ,,ţjófafélag", hvađ sem ţeim er sú viska komin). Síđastliđinn laugardag gerđu landsfeđur okkar, ţeir Sigmundur Davíđ og Bjarni Ben (sem óţverrar og skítmenn uppnefna ,,Kögunarbarniđ" og ,,Vafninginn") sér lítiđ fyrir og gerđu kraftaverk í beinni útsendingu; ţeir reistu bćđi efnahagslífiđ og heimilin upp frá dauđum, og má međ skotheldum rökum segja, ađ slíkt krafraverk hafi ekki veriđ framiđ síđan Frelsarinn reisti Lasaruz upp frá dauđum fyrir 2000 árum.

Nú í vikunni berst svo sú gleđilega frétt, ađ Ţórey Vilhjálmsdóttir, náfrćnka frú Ingveldar, hafi veriđ kosin formađur Landssambands sjálfstćđiskvenna. Frú Ingveldur, náfrćnka Ţóreyjar Vilhjálmdóttur, er ollum sómakćrum landsmönnum ađ góđu kunn fyrir frábćrlega gefandi störf sín á hvunndagsakrinum og í kvöld- og nćturlífinu. Teljum viđ, sem erum einlćgir stuđningsmenn Ţóreyjar Vilhjálmdóttur, ađ henni sé illa í ćtt skotiđ hafi hún ekki ríkulega til ađ bera ýmsa öfundsverđa eiginleika frú Ingveldar.

Ţegar ţórey var kjörin međ viđhöfn í Valhöll, stigu ekki minni öđlingar á sviđ en Brynjar Vondalykt og Óli Apaköttur og fluttu nýkjörnum formanni árnađaróskir og reittu af sér brandara og ósvikin gamanmál í leiđinni. Ađ ţví loknu steig frú Ingveldur sjálf í pontu og flutti Ţóreyju frćnku sinni sexfalda drápu, ţar sem komu fyrir orđ eins og ,,baugalín" og gullhlađssprund". Lauk svo drápunni međ ţessum óborganlegu línum: ,, Aldrei skítug aldrei full / alveg ertu rétta sortin".

Ţađ var virkilega dásamlegt fyrir framfarasinnađ, rétthugsandi athafnafólk, ađ vera viđstatt ţessa fögru athöfn í Valhöll og njóta ţeirra forréttinda ađ hlýđa á snjöll ávörp ţeirra Brynjars Vondulyktar og Óla Apakattar og drápu frú Ingveldar. Ţađ er sannarlega bjart framundan hjá íslensku ţjóđinni um ţessar mundir ţegar kraftaverk, uppörvandi rćđur og framúrskarandi ljóđmćli og drápur birtast góđu fólki á hverjum degi, međan illa skeind villidýr og ímyndunarsjúkar eiturjurtir sjá ekkert nema kögunarbarnavafninga, svarthol og eitthvert heilafóstur sem ţessi skađrćđiskvikindi kalla Hrun.
mbl.is Ţórey nýr formađur sjálfstćđiskvenna
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband