Leita í fréttum mbl.is

Snautleg ferð Dags og félaga í Heiðmörk

perv.jpgÞað var víst þokkalegur andskoti þegar Dagur og hans venner slæddust dauðadrukknir uppí Heiðmörk í dag þeirra erinda að höggva jólatré. Skipti engum togum, að þegar kapparnir vóru komnir inní miðjan skóg kom í ljós, að svo illa hafði tekist til að þeir höfðu annað hvort gleymt öxinni heima eða týnt henni á leiðinni. En þar sem Dagur og þeir hinir vóru í miklum ham kom ekki til mála af þeirra hálfu að fara trélausir til byggða. Réðust þeir því allir til við eina hrísluna og rifu hana upp með rótum og slöguðu ofsakátir með hana til byggða. Því miður varð misyndismaður nokkur á leið þeirra, sem gerði sér að leik að taka tréstúfinn af þeim og lúberja þá með henni.

Undir kvöld skiluðu Dagur og hans menn sér illa til reika til byggða, bólgnir, blóðrisa, rifnir og mjög ölvaðir. Þeir fóru beina leið heim til frú Ingveldar og Kolbeins Kolbeinssonar og beiddust inngöngu en var vísað frá, því akkúrat á þeim tíma var að hefjast einkasamkvæmi frú Ingveldar og Kolbeins með Haffa frænku og Viggu sleggju. En Dagur og þeir hinir drápust ekki ráðalausir og lögðust á glugga frú Ingveldar og Kolbeins og gægðust inn. Þar mætti sljóum augum þeirra einhver mesti dónaskapur sem þeir hafa augum litið, og þeir sögðu hverjir við aðra: ,,Ekki vissi ég að svona djöfulsins bullandi kynvilla væri til." Svo kom lögreglan, handtók þá félaga og varpaði þeim öllum í fangaklefa fyrir að gægjast á glugga hjá vandalausum og vera ölvaðir á almannafæri.
mbl.is Jólatréshögg í Heiðmerkurskógi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband