Leita í fréttum mbl.is

Fullkominn dónaskapur og ribbaldaháttur

matur.jpgNei takk, ég ætla ekki að matreiða annan eins óþverra og hnetusteik, hvorki á jólunum né í annan tíma. Af hnetum og grasajukki verður fólk glært og bláleitt undir húðinni, heilsulaust dofið og geðvont - og drepst fyrir aldur fram, þá búið að vera samferðarfóki sínu til ama og leiðinda í alltof langan tíma.

Í staðinn fyrir óþverra eins og hnetusteik og hundbelgjarglás úr spínati, gulrótum og vallarfoxgrasi á fólk að éta feitt salkjöt á jólunum, svið, skötu og vel reykt og kæst hrútakjöt. Af feitu saltkjöti og sviðum með miklu smjöri og rjóma verður fólk kátt og gratt og vílar ekkert fyrir sér; af skötunni og hrútahangiketinu birtir yfir huganum og minnið skerpist uppúr öllu valdi.

En hnetusteik!, Guð minn almáttugur! - ég myndi aldrei gefa hröfnunum, vinum mínum, né snjótittlingunum aðra eins viðurstyggð, enda myndu svo gáfaðir fuglar ekki leggja sér slíkt ómeti sér til goggs. Mér er til ef, að einusinni glorsoltnir sílamávar væru tilkippilegir að éta þvílíka ófæðu. - En að bjóða fólki uppá hnestusteik og skyldan skít er svo fáránleg kórvilla, að um fullkominn dónaskap og ribbaldahátt er að ræða.
mbl.is Útbúðu þína eigin hnetusteik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Mikið rétt ket á minn disk um jólin og ekkert kjaftæði Jóhannes.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 8.12.2013 kl. 13:05

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Rétt segir þú, vinkona.

Jóhannes Ragnarsson, 8.12.2013 kl. 13:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband