Leita í fréttum mbl.is

Hin óvenjulíka samsvörun á Íslandi

grénjirJapanska ţingtuskan Ryutaro Nonomura á sér óvenjulíka samsvörun í íslenska stjórnmálagrátsöngvaranum Sigmúndi Dávíđ, sem gamansamir prakkarar gerđu ađ talsmanni húskarla Framsóknarmaddömunnar og síđar ađ forsćtisráđherra. Ţví miđur ţykir mörgum gamansemi framsóknarpúkanna helsti grá og finnst ekkert sniđugt ađ láta svo stríđalinn og grátgjarnan pabbadreng gegna starfsheitinu forsćtisráđherra. Ađ vera forsćtisráđherra er ekkert fyrir börn, allrasíst önuga keipakrakka sem getiđ hafa sér orđ fyrir ađ vera sígrenjandi af yfirstéttarfrekju.

Ţađ var víst Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri sem kom ţví á ađ gera hinn sviđadrjúga dreng ađ helsta opinbera talsmanni gömlu Framsóknarmaddömunnar, sem legiđ hefir meir en steindauđ í öndunarvél í góđa tvo áratugi. Ef sú gamla kćmist til međvitundar, er nćsta víst ađ hún mundi ganga af göflunum ţegar hún kćmist ađ ţví hverskonar ótćti og óhrćsi hafa vélađ međ fjóshaug hennar og gripahús. Líklega byrjađi kérlíngin á ţví ađ taka hinn kjökursjúka talsmann og koma honum fyrir í fjóshaugnum; í sama stađ fćru síđan gifturíki kaupfélagsstjórinn og strengjabrúđurnar hans, ásamt Finni, Óla á Miđhrauni, Sigga bánkafursta, Valgerđi og Halldóri. Ţví međan Framsóknarmaddaman var viđ fulla heilsu á árum áđur og sćmilega alsgáđ, var hún kunn fyrir ađ vera vönd ađ virđingu sinni og leiđ hvorki húskörlum sínum né griđkonum neinn skítbuxnahátt, sem verstu götustrákum vćri ekki einusinni sćmandi. Ţađ er ţví eins gott fyrir áđurnefnd gćgsn ađ gamla Framsóknarmaddaman komist aldrei meir til međvitundar.
mbl.is Sá hágrátandi segir af sér
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband