Leita í fréttum mbl.is

Vilji stendur til ađ ţeyta ţeim eins og skítugum flćkingsköttum útúr stjórnarráđinu

cat_1244576.jpgStrengjabrúđa gifturíka kaupfélagsstjórans á Sauđárkróki hefur fariđ víđa, síđan einhverjum steingeldum lágkúruendemum hugkvćmdist ađ gera ţetta fyrirbćri ađ utanríkisráđherra. Sennilega hafa ţeir, sem skipuđu strengjabrúđuna í embćtti, stađiđ í ţeirri trú, ađ ţetta tiltćki ţeirra flokkađist undir gamanmál, sem ţjóđin kynni ađ meta. Svo kom á daginn, eins og viđ mátti búast, ađ ţjóđin kunni ekki ađ meta svona skrípalćti og vill ekkert međ ţau hafa.

Nú er einn skrípalingur og strengjabrúđa í ríkisstjórn ekki neitt stórmál útaf fyrir sig, ef hann vćri sá aleini af ţessháttar tegund í stjórninni. En segja má ađ ţá sé fyrst stungin tólgin, ţegar í ljós hefur komiđ, ađ í hverjum einasta ráđherrastóli situr nú um stundir samskonar hympigympi og strengjabrúđan kaupfélagsstjórans. Viđ slíkt er ađ sjáfsögđu ekki hćgt ađ una.

Ţađ ţarf ţví engann ađ undra, ţótt kominn sé alvarlegur urgur í ţjóđina og menn farnir ađ tala um í fullri alvöru og međ auknum ţunga, ađ brýn nauđsyn sé ađ taka í hnakkadrambiđ á strengjabrúđunum og ţeyta ţeim eins og skítugum flćkingsköttum, sem hafa skitiđ í besta sófann í stofunni, útúr stjórnarráđinu, áđur en ţeim tekst ađ eyđileggja samfélagiđ meira, og á ţann hátt, sem hugur ţeirra stendur til. Viđ skulum vona, ađ skemmdarvargarnir verđi, allir sem einn, komnir útá götu fyrir sumardaginn fyrsta á nćsta ári.


mbl.is „Rakarastofan í stćrra herbergi“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Já ţađ eru ekki gáfulegt margt sem er veriđ ađ gera á ríkisstjórnarheimilinu núna, hver skandallinn og vitleysugangurinn á fćtur öđrum. 

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 14.12.2014 kl. 12:32

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Látum nú vera međ skandalana og vitleysuganginn. Verra er, ađ ţessi ríkisstjórn sem eins og framlenging á valdatíma Davíđs, Halldórs, Hannesar Hólmsteins og Finns, virđist hafa ađ markmiđi ađ eyđileggja samfélagiđ meir en orđiđ er. Ţann glćp verđur ađ stöđva.

Jóhannes Ragnarsson, 14.12.2014 kl. 21:03

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Já ţví miđur sýnist mér allt stefna í ţađ.  Munum bara ađ dropinn holar steininn. 

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 15.12.2014 kl. 10:18

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband