Leita í fréttum mbl.is

Grunur stađfestur međ einu símtali

ingv3.jpgAlltaf er jafn sorglegt ađ fá fréttir af ofurdrukknum konum, sem ekki geta setiđ á strák sínum og láta sig hafa ađ atast í saklausum börnum sér til hátíđarbrigđa, eđa djöflast í enn saklausari gestum á veitingastöđum. Ţessar kerlingar vinna sín óhćfuverk af yfirlögđu ráđi, en bera svo fyrir sig ađ ţćr hafi veriđ svo drullufullar ađ ţćr hafi ekki vitađ handa sinna skil í ölvímunni og hrekkt börnin og gesti veitingastađanna algjörlega óvart í algjöru stjórnleysisástandi. Ţar af leiđandi séu ţćr algjörlega saklausar af gjörđum sínum.

Ţegar ég, nú í morgunsáriđ, las fréttina af fullu konunni, sem angrađi börn og veitingahúsagesti, fannst mér ég kannast viđ framgöngu og fingraför ţessarar ónafgreindu frauku, sem fjallađ var um í hinni tímabćru fréttagrein á mbl.is. Og ekki ţurfti ég ađ hringja nema eitt símtal til ađ fá grun minn stađfestann.

Ţađ kom sem sé uppúr dúrnum, eins og ég hugđi, ađ umrćdd ofurölvi kona sem angrađi börn og ónáđađi gesti á veitingastađ, var auđvitađ Máría Borgargagn. En hún og sambýlingur hennar, Indriđi Handređur, hafa aukiđ umsvif sín međ hćkkandi sól og gerast nú ć stórtenntari og ósvífanari í athöfnum á almannafćri. Um síđustu helgi lokkađi til ađ mynda Handređurinn ţrjá erlenda ferđamenn bak viđ vertshús í miđbć Reykjavíkur og misţyrmdi ţeim og gerđi ţeim óbćtanalega svívirđingu. Ef heldur sem horfir, má vćnta frekar tíđinda af ţessum framkvćmdasömu hjónaleysum fram eftir vori, ţađ er ađ segja, ef ţau verđa ekki tekin úr umferđ af opinberum ađilum, eđa felld af einhverjum uppstökkum fórnarlömbum sínum.


mbl.is Kona handtekin fyrir ađ angra börn
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Smá misskilningu, konan angađi af börnum sjá hér: Til­kynnt um ofurölvi konu sem var ađ ang­ar börn. Hún fannst ekki strax en seinna :)

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 22.4.2015 kl. 09:40

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ekki líst mér ađ ađ hún hafi angađ af börnum. Ţađ gćti bent til ađ hún hafi étiđ eitthvađ af krökkunum.

Jóhannes Ragnarsson, 22.4.2015 kl. 10:14

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Já nákvćmlega :)

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 22.4.2015 kl. 13:28

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Ţórđardóttir

Kannske er Frú Borgargagn nútíma grýla.

Ásthildur Cesil Ţórđardóttir, 22.4.2015 kl. 13:28

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband