Leita í fréttum mbl.is

Ekki orđ um ţađ meir

ero4Engan ţarf ađ undra ţótt ţótt spangóliđ, sem hún Máría litla Ólafsdóttir var plötuđ til ađ veina yfir alla Evrópu og ástralíu međ, kćmist ekki áfram í söngvakeppninni. Ţetta sérkennilega númer er nefnilega ţađ allara versta af mögum íllum sem Ísland hefur bođiđ uppá á ţessari undarlegu tómlistarhátíđ hinna biluđu. Og fyrir nú utan hvađ lagiđ er hörmulegt, ţá saung telpukindin ţar rammfalskt í ţokkabót (nema ţađ hafi átt ađ vera svona annarlegt til ađ kóróna hryllinginn).

Á heimili frú Ingveldar og Kolbein var sjónvarpiđ brotiđ í spón ţegar ljóst var ađ ,,framlagi" Íslands hafđi veriđ fleygt í sorptunnuna. Ţau sćmdarhjónin voru semsé orđin alldrukkin ţegar úrslitin lágu fyrir og vćntingarnar miklar og vonbrigđin ađ sama skapi hrćđileg. Ţađ skal tekiđ fram, ađ frú Ingveldur og Kolbeinn, sem og ţeirra vinir, sem eru međ ţeim í kvöld, eru ákaflega illa mjúsíkkalskt fólk og lítiđ fyrir tónlist. Og dáindismađurinn Indriđi Handređur varđ svo svekktur, ađ hann hótađi í heyrenda hljóđi, ađ reyta af Máríu sinni Borgargagni kćrleiksblómin ađ ţví ađ Máría saungvari og nafna hennar hefđi klúđrađ dćminu og skolađ Íslandi niđrum salernisskálina.

Hins vegar saung Sigmundur Davíđ hástöfum undir međ Máríu ţegar hún veinađi Únbrókeniđ sitt í beinni útsendingu frá landi Mozarts og Adólf sáluga stríđherra. Sigmund Davíđ fékk víst ţá flugu í höfuđiđ á dögunum ađ Únbróken vćri framsóknarsaungur, ţví honum ţókti rödd Máríu litlu svo lík rödd gömlu Framsóknarmaddömunnar. En rödd Maddömunnar er sögđ stökk, hryglukennd og kostulega skrćk á sumum atkvćđum. Auk ţess er Máría litla úr Húnavatnssýslunni, sem er mikiđ vígi framsóknarmanna. En hvađ um ţađ: lagiđ Únbróken lauk vegferđ sinni međ ţví ađ verđa útfararsálmur viđ útför ţáttöku Íslands í saungvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöđva og ekki orđ um ţađ meir.  


mbl.is Ísland ekki í úrslit Eurovision
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Níels A. Ársćlsson.

Já og ekki orđ um ţađ meir. Hann var bliiiiiiiiiiind fullur

Níels A. Ársćlsson., 22.5.2015 kl. 23:51

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband