Leita í fréttum mbl.is

Timburmannaráđiđ lagđi hann hérumbil í gröfina

kol41.jpgŢó svo ađ Óli Apaköttur sé ekki apaköttur í líffrćđilegum skilningi, ţá er hann apaköttur fyrir ţví. Óli Apaköttur gekk snemma til liđs viđ hirđ frú Ingveldar og var fljótur ađ nema alla ţá ónáttúru og allan ólifnađ, sem í bođi var á ţeim bć. Einkum varđ Óli Apaköttur hrifinn af frálshyggjupólitík og ,,markađlausnum", sem hann svalg í sig á heimili frú Ingveldar og Kolbeins međ svipađri áfergju og áfengiđ, kókiđ og sexúal trikkin, sem ćvinlega skipa öndvegi á ţví rausnarheimili.

Svo segir í greininni af Nikulási apa, en hann er ćttingi Óla Apakattar, ađ hann brúki ţunglyndislyf viđ timburmönnum og er látiđ ađ ţví liggja, ađ ţađ undralyf skjóti alla timburmenn niđur á svipstundu. Ekki skal ég segja um hvort umrćtt lyf hafi áhrif á ţynnkur Nikulásar, en ég get fullyrt, ađ ţunglyndislyf virkar nákvćmlega ekki neitt á eftirköst drykkjuláta Óla Apakattar; ţunglyndislyf virka nefnilega ekki á nokkurn mann, apa eđa apakött fyrr en eftir um ţađ bil hálfan mánuđ. Ţađ er afar ósennilegt, ađ Óli Apaköttur og Nikulás api, ađ mađur nefni nú ekki sjálfan Kolbein Kolbeinsson og Brynjar Vondalykt, nenni ađ bíđa í hálfan mánuđ eftir timburmenn ţeirra hverfi á braut. Auk ţess virka ţunglyndislyf yfirleitt ekki neitt á fráhvörf af völdum áfengis og annarra eiturlyfja.

Ţví miđur varđ Brynjari Vondulykt ţađ einhverju sinni á ađ éta uppúr fullu glasi af ţunglyndislyfjum, af ţví ađ einhver hafđi sagt honum, ađ ţessháttar stöff vćri hörku stuđ gegn ţynnkunni og hćfi mann í ţokkabót upp til skýjanna. Ţađ vćri synd ađ segja, ađ ţessi vel útilátni skammtur hefđi ekki haft áhrif. Vondalyktin fékk einhverja bölvađa eitrun af ţynglyndislyfjunum, svo viđ lá ađ hann hyrfi á vit skýjanna fyrir fullt og fast, frá eilífđ til eilífđar. Í tíu daga lá hann í aungviti á gjörgćsludeild, á međan lćknar og hjúkrunarfólkiđ velti vöngum yfir ţví hvort vert vćri ađ vekja ţennan andskotans varg aftur til lífsins eđa gefa honum svo duglegan viđbótarskammt í rassgatiđ, ađ hann fćri til Helvítis á skemmri tíma en ţrem sekúndum.


mbl.is Alls engin apakattaleikur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband