Leita í fréttum mbl.is

Sigurđur Snorrason böđull mćttur til leiks?

xdgtvrq.jpgEkki get ég ađ ţví gert, hvernig sem á ţví stendur, ađ mér finnst fyrirsögn ţessarar fréttar og yfirbragđ greinarinnar hljóma dálítiđ í líkingu viđ ađ nú séu böđlarnir komnir heim og mćttir til starfa ţannig allt sé til reiđu til ţess ađ aftakan fari fram. Öll gögn í málinu liggja fyrir, međal annars mótmćlaskjal forkólfa framsóknarmanna á Akureyri sem fyrir sitt leyti krefjast pólitísks dauđadóms og aftöku formanns Framsóknarflokksins. Ţađ er ekki nema von ađ gamla Framsóknarmaddaman liggi ţessa stundina fyrir dauđanum og glundrođi sé brostinn á á skagfirska efnahagssvćđinu, Ólafur útvegsbóndi og Siggi bánkustjóri í steininum og yfir öllu ţessi voki Sigurđur Snorrason böđull í líki Bjarna Ben og félaga Ólafs Ragnars Grímssonar.

Síđan lokaađförin ađ Sigmundi Dávíđ hófst síđastliđiđ sunnudagskvöld hefir Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og formađur skuggasveinadeildar Framsóknar veriđ gjörsamlega lamađur og fótavistarlaus, bćđi vegna ógurlegs ölvunarástands sem og hamslausrar hrćđslu viđ ađ nú sé velmektardögum hans og Framsóknarflokksins lokiđ fyrir fullt og allt. Harmagrátur Kolbeins og bagalegt heilsufar hefir ađ sjálfsögđu níst vini hans og vandamenn innađ innstu hjartarótum, en ţó hafa óţokkar á borđ viđ Brynjar Vondulykt og Óla Apakött hlegiđ ađ volćđi Kolbeins og sagt hann hafa gott af dálítilli niđursveiflu, ţađ lćkki kanske gorgeirinn í honum og dempi niđur í honum ţennan rosalega einkennilega kynferđislega pervertisma og ofsa sem einkennt hefir Kolbein.

Hinsvegar stormađi eiginkona Kolbeins Kolbeinssonar, frú Ingveldur, uppí Valhöll í gćr og hélt ţar innblásiđ erindi um nauđsyn ţess ađ eyđa ,,andskotans framsóknaróvćrunni" eins og hún orđađi ţađ, og segja formanni Framsóknarflokksins ađ fara til Fjandans; ennfremur ađ henni stćđi algjörlega á sama hvort Kolbeinn eiginmađur hennar legđist líka í kör eins og Framsóknarmaddamann, en ţađ skyldi sá góđi mađur vita ađ ekki flögrađi ađ henni ađ bera brennivín, kannabis og amfetamín í hann svo hann gćti haldiđ áfram ađ skíta í buxurnar og áreyta hana sjálfa og vini hennar sem koma í heimsókn međ vofeiflegum perratilburđum.


mbl.is Bjarni og Ólafur komnir heim
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband