Leita í fréttum mbl.is

Enginn glćpur er aungin dyggđ

xb1.jpgŢá er nú lítiđ í allt ţetta leiđindabrambolt kringum forsetakosningarnar variđ ef ţađ er svo ađ aunginn glćpur hafi verđiđ framinn. Reyndar sögđu ţeir sumir ađ aunginn glćpur hefđi átt sér stađ ţegar Panamaskjölin vóru birt, undanskot á íslenskum fjármunum vćru ekki glćpa, allra síst í lagalegum skilningi; eina afbrotiđ í ţeim efnum vćri ađ ţjófar hefđu ţjófstoliđ virđulegum skjölum frá virđulegri lögfrćđistofu í Panama. Hinvegar var skelfilegt fyrir sjónvarpsáhorfendur ađ horfa uppá forsetaframbjóđendur rífa sóđakjaft framaní hvurn annan og stjórnendur ţáttarins og leyfa sér augnaráđ grimmra hundskvikinda í slagsmálahugleiđingum. Og stjórnendur ţáttarins rifu líka kjaft og geyfluđu sig eins og finngálkn. Ţađ má heita ţokkalegur andskoti og ófćr, ef ţjóđin ćtlar virkilega ađ kjósa sér einhvern ţessara fúlmenna fyrir forseta.

Og ţegar endemin atarna kváđust öll myndu kjósa Hillaríju Clintón, af ţví ađ Sanders vćri ekki í bođi, varđ mér, og heilum herskara af öđru fólki, öllum lokiđ. Ţessi ósköp hljómuđu keimlíkt ţví ađ ţau vćru öll sem eitt til í ađ ljá Andskotanum atkvćđi sitt af ţví ađ Guđ vćri upptekinn og ţar af leiđandi ekki á bođstólum. Ljósiđ í myrkrinu er ađ nú eru smábörn farin ađ kalla einn frambjóđandann Bola og er á ţeim ađ skilja ađ ţetta sé meinvćttur ađ minnsta kosti á borđ viđ Grýlu og Leppalúđa. Ţetta sannar svo um munar ađ málshátturinn ,,braggđ er af ţá barniđ finnur" á heldur betur viđ rök ađ styđjast, hefir sem mađur segir stađist tímans tönn.

Í kvöld fer fram menningarvaka ađ heimili frú Ingveldar. Ţar verđa örugglega ekki spöruđ hin breiđu spjótin, enda ódámurinn Kolbeinn enn útí Frans ásamt Brynjari Vondulykt og Indríđa Handređi, en ţeir eru ţessa dagana taldir viđbjóđslegustu menn Íslands. Einhverjir forestaframbjóđendanna hafa bođađ komu sína á menningarvökuna og sumir ţeirra ţegar mćttir međ buxurnar á hćlunum. Í fyrramáliđ mun frú Ingveldur blása kóki uppí nasirnar á ţeim svo ţeir vakni og hella oní ţá spítitusi til ađ ţeir geti skreiđst á kjörstađ til ađ kjósa sjálfa sig. Soleiđis framganga er laus viđ lágkúru og skítakallamennsku og mun bera orđstýr núlifandi kynslóđa međ stakri reisn inní alla framtíđ, til eftirbreytni fyrir hina ófćddu landa vora fram til hins efsta dags.


mbl.is „Enginn glćpur veriđ framinn“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband