Leita í fréttum mbl.is

Drottinn minn dýri - nú sökkur Framsóknargreniđ

xb1.jpgEnn og aftur verđur Framsóknarflokknum illilega á messunni. Í vor komst uppum strákinn Tuma, sem reyndist eftir allt saman heita Sygmuendur Wintris von Panama-Kögununar. Ţá steyptu ţingmenn Wintris von Panama af stóli og síđan hefir hann skrópađ í vinnuna. Í sumar og haust hefir allt rekiđ á reiđanum í Framsóknarfjósinu og pestin ţar inni orđin svo eitruđ ađ einungis innvígđir geta dvaliđ ţar innandyra í 5 mínútur án ţess ađ drepast. Og nú ćtla ţeir ađ leyfa Sigurđi Inga ađ tala!

Ţađ hefir svo sem ekki legiđ í láginni, ađ Sigurđur Ingi tekur sig ákaflega illa út í rćđustól, og hvern ţann rćđustól sem hann stígur í setur niđur viđ ađ hafa hann baulandi yfir sér. Og röddin í ţessum framsóknarhúskarli - Drottinn minn dýri - rám og draugsleg eins og einhver utan úr öđrum heimi tali í gegnum hann innan úr tómri járntunnu. Enda verđa allir hálfsmeykir ţegar Sigurđur Ingi tekur til máls og fara ađ hugsa um Gretti, Glám og Drakúla greifa. Ađ leyfa slíkum vom ađ ramba uppí rćđustól og ,,tala" á virđulegri fjósasamkomu er fáránlegt, óbođlegt, súrrealismus non grata.

En ef ţađ er ásetningur og almennur vilji húskarla og griđkvenna gömlu Framsóknarmaddömunnar ađ kynda undir reimleika á fjósaţinginu ţá verđur ţađ vafasama fólk ađ vera ţess viđbúiđ, ađ gólfiđ á ţingstađnum sökkvi međ manni og mús, eins og gjörđist í kirkjunni í Hruna um áriđ. Og ţađ er vitađ hvert gólfiđ sökkur, ţađ sökkur í Fjóshauginn, ţann eiturpytt. Vitađ er ađ Kolbeinn Kolbeinsson hefir varađ flokksbrćđur sínar viđ ađ leyfa Sigurđi Inga ađ tala og lagt ađ ţeim segja manninum frekar ađ halda kjafti og skammast sín. En ţví miđur varđ sjónarmiđ Kolbeins undir ađ ţessu sinni og Sigurđur Ingi fćr óáreyttur ađ óhreinka rćđustólinn á Fjósaţinginu.



mbl.is Sigurđur Ingi talar á flokksţingi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband