Leita í fréttum mbl.is

Aftur á móti var önnur keppni í fegurđ háđ hér um sveitir á árum áđur

ing21Vart er hćgt ađ hugsa sér meiri móđgun ađ hálfu útlendings viđ Ísland og íslenska ţjóđ en ađ segja ţađ fullum fetum, ađ fegurđardrottning okkar sé fituhlussa. Um leiđ og orđiđ var sagt sáu ađrir útlendingar drottninguna okkar fyrir sér sem eina digra og hvapkennda jússu, međ öđrum orđum: gljásveitta hlandsprengju, illa lyktandi í handarkrikum og öđrum krígum, og brjóstin hangandi niđurfyrir nafla, ef ekki lengra. Verst er ţó ađ geta ekki komiđ lögum yfir ţennan mannorđsdrepand eigenda Miss Grand International, sem vó svo freklega ađ stolti voru og Íslandi yfirleitt. Á landi voru hefir margur fengiđ á kjaftinn fyrir minna.

Ţegar frú Ingveldur fékk fregnina af hinni grófu ađdróttun í garđ dorttningarinnar og Íslands varđ henni fyrst fyrir ađ rifja upp ţegar hún sjálf, frú Ingveldur, keppti á sínum tíma í fegurđarsamkeppni og varđ Drottnig međ stórum staf. Ţađ kvöld varđ frú Ingveldur fjarska glöđ og gerđi trix og kúnstir međ rassakinnunum framaní áhorfendur, sem brugđust viđ međ flauti, gargi og lófaklappi. Ţađ var dýrleg stund í lífi hinnar lostafullu meyjar, sem var ekki einusinni komin útúr gelgjunni. Og drengirnir ţyrptust ađ henni og létu eins og hrútar um fengitímann. Ţetta dásamlega kvöld kynntist frú Ingveldur líka vinkonu sinni, Máríu Borgargagni, sem starfađi viđ ađ mála fegurđardísirnar í framan áur en ţćr stigu á sviđ.

Ađeins eitt hefir ţó valdir frú Ingveldi óslökkvandi angri síđan hún var kjörin Drottning. Ţetta eina atriđi er sem kaldur skuggi eđa öllu heldur hnausţykkur ţokumökkur yfir minningunni um keppnina atarna og hefir međ hina keppnisstúlkurnar ađ gera. Ţćr vóru nefnilega allar svo andskoti ljótar, asnalegar í laginu, sumar fitukeppir, ađrar eins og skakkir hegrafuglar og enn ađrar eins og rollur sem falliđ hafa ofan tírćtt bjarg og niđur í stórgrýtisurđ. Ţađ var sem sé enginn vandi fyrir međalfrystihússkérlíngu ađ vinna fegurđarsamkeppni viđ svona ađstćđur. Ţegar frú Ingveldur hugsar í dag til baka, ţá sér hún fyrir sér hinar fegurđarstúlkurnar fyrir sér sem röđ af greppatrýnum, sem stillt hefir veriđ upp fyrir framan aftökusveit. Af ţessum sökum hefir frú Ingveldur ćvinlega veriđ haldin illum grun um ađ hún sjálf sé ekki svo fögur í raun og veru, ađ hún geti međ góđu móti veriđ Drottning fegurđarinnar.


mbl.is Fituummćlin byggđ á misskilningi
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband