Leita í fréttum mbl.is

Einungis gáfađir menn geta falsađ málverk svo vel sé

egg0.jpgŢađ ţarf gáfađan mann til ađ falsa málverk meistara svo vel sé. Ţá er og nauđsynlegt ađ falsarinn sé drátthagur í betra lagi og ekki minni listamađur í sér og lismálarinn sem falsađ er eftir. Ţegar falsarinn er allt í senn: gáfađur, drátthagur og listhneygđur getur hann gert hreinustu kraftaverk. En ef falsarinn er klauffengur, heimskur og menningarlaus er viđ búiđ ađ allt fari í handaskolum og hann lendi í fangelsi fyrir ađ svívirđa heiđvirđa myndlistarsnillinga. Allt um ţađ, ţá eru margir málverkaunnendur ákaflega ánćgđir međ sín fölsuđu skilirí uppá vegg hjá sér, ţangađ til ađ ţeim skilst ađ málverkin ţeirra eftir Kjarval, Svavar, Gunnlaug og Ásgrím eru eftir einhverja allt ađra heiđursmenn sem varla kunna ađ dýfa pensli í málningu.

Fyrir nokkrum árum keyptu sćmdarhjónin frú Ingveldur og Kolbeinn Kolbeinsson nokkur málverk eftir íslensku meistarana á uppbođi fyrir stórfé. En kaup ţessi fóru fram skömmu eftir ađ Kolbeini tókst međ fádćma hugviti og slóttugheitum ađ draga sér fé svo um munađi án ţess ađ upp kćmist. Sum ţessara málverka eru stóreflis flekar sem hver um sig nćr ađ hylja heilu og hálfu veggina í heimahúsum. Lengi vel dáđust ţeu sćmdarhjónin og vinir ţeirra af málverkunum og snilld meistaranna sem máluđu ţau. Kveld eitt, ţegar samkvćmi var hjá frú Ingveldi og Kolbeini, slćddist inn til ţeirra óhrjálegur kroppinbakur međ inngróinn fýlusvip á trýninu. Ţessi undarlegi náungi fór ţegar í stađ ađ vappa milli hinna glćsilegu málverka og rýna í ţau međ andstyggđarsvip á andlitinu sem sífellt fćrđist í aukanna.

ko33Ţegar kroppinbakurinn hafđi skođađ nćgju sína snöri hann sér ađ húsráđendum, og var nú orđinn eins og ţrumuský til augnanna, og tilkynnti ţeim viđstöđulaust ađ öll málverkin sem prýddu veggi heimilis ţeirra vćru fölsuđ; ţessi andskotans ófögnuđur vćri greinilega eftir einhvern götustrák eđa slordóna sem hefi gaman ađ ţví leika á fólk og gera ţađ ađ fíflum. Ţessar hryllingsmyndir, ţví ţetta vćru hryllingsmyndir, vćru ekki meira virđi en notađur skeinispappír og ćttu ţar af leiđandi ađ fara á sorphauginn međ fyrstu ferđ sem til félli. Eftir heimsókn hroppinbaksins hafa ţau sćmdarhjón, frú Ingveldur og Kolbeinn, litiđ málverk sín hornauga og ţrjú ţeirra eru komin útí bílskúr ţar sem ţau hanga uppá veggjum međ bakhliđina fram.


mbl.is Meint fölsun á verki Svavars bođin
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband