Leita í fréttum mbl.is

Framúrskarandi leikflétta snilldarkonu

ing25Er ekki undursamlegt, ađ pínulítill lukkuriddari úr braskarabúllu Viđreisnar-Benza, sé nú ţegar búinn ađ ná ţeim fáheyrđa árangri ađ komast međ speki sína á féttavef Washington Times? Ekki er síđur hjartnćmt, ađ ţessum pínulitla lukkuriddara hafi falliđ sú vegsemd ađ honum, ađ geta titlađ sig ,,formann utanríkismálanefndar Alţingis." Af ţessu má ljóst vera, ađ síđustu alţingiskosningar voru lukkuriddurum gjöfular, og ţarf ekki annađ en líta yfir ţingheim til ađ fullvissa sig um ţađ. Og í anda viđreisnar braskaranna, kveđur umrćddur lukkuriddari upp úr međ, ađ EES dugi bara ekki, Ísland verđi ađ ganga í ESB, sem er ofurskiljanlegt ţar eđ slík landsala gćfi braskarastéttinni nokkuđ í ađra hönd.

Ţađ má líka ljóst vera, ađ frú Ingveldur átti hina snjöllu hugmynd innan Sjálfstćđisflokksins, ađ skipta liđi og stofna Viđreisn innan Sjálfstćđisflokksins í ţví skyni ađ blekkja kjósendur til ađ koma Sjálfstćđisflokknum einum í meirihluta á Alţingi. Og auđvitađ gekk leikflétta frú Ingveldar upp međ sannkölluđum glćsibrag og Sjálfstćđisflokkurinn náđi meirihluta á Alţingi, ţríeinn eins og guđdómurinn. Ţá var ekki síđur viđeigandi hjá frú Ingveldi, ađ kalla útfrymiđ Viđreisn eftir Viđreisnarfélagi Péturs Ţríhross á Sviđinsvík ţví skyldleikinn leynir sér ekki. Hvađ Björtu framtíđina varđar, ţá er sú forsmán eign Sjálfstćđisflokksins ađ öllu leyti og húsbónda sínum holl í hvívetna.

Loks hefir vaknađ sterkur grunur um ađ Pírataflokkurinn sé enn eitt prójektiđ úr smiđju frú Ingveldar, ćtlađ skrýtnu fólki međ heimdellingshugarfar, sem vill ţó ekki vera beinlínis í Sjálfstćđisflokknum. Sjálf hefir frú Ingveldur látiđ hafa eftir sér, einmitt líka í Washington Times, ađ nauđsynlegt hefđi veriđ ađ útbúa leikvöll í bakgarđi Sjálfstćđisflokksins fyrir vönkuđ ungmenni međ frjálshyggjuhneygđ. Í framhaldi af ţeirri hugmynd hefđi ţeim vönkuđu veriđ safnađ saman undir merkjum Pírata svo ađ ţessi grey tćkju ekki upp á ţví ađ kjósa Vinstrigrćna, eđa eitthvađ í ţeim dúr. En fyrir ţá allrageggjuđustu stofnađi frú Ingveldur Íslensku ţjóđfylkinguna, sem ţví miđur hefđi sprengt sjálfa sig í loft upp viđ fyrsta tćkifćri eins og múslímskur terroristi. Ţađ má ţví međ sanni segja, ađ hátt sé til lofts og vítt til vegga ţessa stundina í Valhöllu sjálfstćđismanna.  


mbl.is Segir EES ekki duga lengur
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ingi Cćsarsson

Brazkara Bensi seldi sálu Viđreinar, kannski eru ekki allir ţar inni sáttir.

Jón Ingi Cćsarsson, 1.3.2017 kl. 21:03

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Ég held ađ ţar hafi aldrei veriđ um neina sál ađ rćđa, ađra en ţessa gamalkunnu braskarasál innvígđra sjáfstćđismanna.

Jóhannes Ragnarsson, 1.3.2017 kl. 21:24

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband