Leita í fréttum mbl.is

Nú sé fyrir endann á mjólkuráti úr öđrum skepnum

kú1Ţađ er siđlaus glćpur og öfuguggaháttur ađ éta mjólk úr öđrum dýrategundum. Ţađ ţykir vísindalega sannađ af siđferđisráđi heimspekideildar háskólans í Harvard. Hvur mađur getur séđ, hafi hann á annađ borđ ţó ekki vćri nema örlitla heilastarfsemi, ađ éti hann mjólk veđur hann óhjákvćmilega eins og Láfi Kú (Láfi Q) og ţađ ţykir víst ekki beinlínis eftirsóknarvert. Nú segja hagfrćđin og viđskiptafrćđin ađ mjólkurát úr öđrum skepnum sé viđskiptaleg og hagfrćđileg stćrđ sem ekki sé hćgt ađ afnema úr hagkerfinu međ nokkru móti, nema ađ menn vilji endilega leggja hagkerfi Vesturlanda á hliđina og drepa ţar međ alla sjálfsbjargarviđleini. Ţađ er sem sé óţverrafýla af mjólkurátsspursmálinu úr báđum áttum.

Hvađ er ţá til bjargar ef viđ megum ekki éta mjólk úr beljum, hrossum og svínum spyrja eflaust einhverjir. Karl Einfer lagđi á sínum tíma til ađ banni viđ mjólkuráti úr öđrum dýrategundum yrđi mćtt međ ţví ađ mjólka kérlíngar; ţćr vćru hafđar í kérlíngafjósum og ćtu fóđur úr kérlingahlöđum. Aunginn gaf ţessari hugmynd Karls Einfer gaum međan hann lifđi, en nú virđast vera ađ skapast fjárfestingartćkifćri í tröllvaxinni kérlingarmjólkurframleiđslu međ skyri ostum og kérlingasúrmjólk. Ađ sjálfsögđu breytast atvinnumöguleikar kvenna viđ svona framfarir og stađa fjósakonunnar verđur međ öđrum hćtti en fyrr.

Vafalaust verđur Láfi Q frumherji í hinum nýja mjólkurheimi, kemur sér upp stórkonufjósi međ mjaltavélum skilvindum og strokkum. Sagt er ađ kérlingasmér beri af öđrum smérjum og einstaklega sé gott ađ steikja rćkjur og humar upp úr ţess háttar feiti. En hvađ verđur gert viđ kýrnar, blessađar skepnurnar, ţegar Láf Q og konurnar hafa yfirtekiđ hlutverk ţeirra? Jú, ţćr verđa reknar í haga í síđasta sinn og látnar pluma sig ţar upp frá ţví. Ţađ verđur fróđlegt ađ sjá Skjöldu, Auđhumlu og Gránu úti í stórhríđ á ţorranum jafnvel uppi á heiđi eđa niđri á köldum fjörkampi međ gráđugar refi og minka, hrafna og veiđibjöllur sveimandi kringum ţćr.


mbl.is „Ótrúlega gleđilegur dagur“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband