Leita í fréttum mbl.is

Frjálshyggjuslápur og framsóknarskessur í beinakerlingastuði

jarðarförÞá ber nýrra við ef leppalúðarnir í Sjálfstæðisflokknum vilja ekki láta allt víkja fyrir áformum athafnaskálda og fjáraflamanna. Að setja sig upp á móti framtaki fjárfestingaskáldanna og koma í veg fyrir verkgleði þeirra er það sama og að setja sig upp á móti hagvextinum, sem hingað til hefir verið höfuðlífæðin í hinum kapítalíska áróðri Sjálfstæðisflokksins og reyndar fleiri flokka. En nú er að sjá að einn frjálshyggjuslápur Flokksins vilji koma í veg fyrir glæsilegan fjárfestingarkost, hagvöxt og markaðsbúskap í Kvosinni til að vernda bein, sem aunginn veit hvort eru úr mönnum eða svínum, og hefir fengið í lið með sér vígalega framsóknarskessu sem ekki vill mosku og múhámeðstrú. Ekki hefir ég trú á öðru en kapítalistasnatarnir í meirihluta borgarstjórnar komi í veg fyrir tilræði frjálshyggjuslápsins og framsóknarskessunnar og ugglaust munu aðrir í minnihlutanum snúast á sveif með athafnaskáldum og borgarstjórnarmeirihluta.

Og úr því að sjónir manna hafa beinst að beinum og þessháttar, má rifja upp að í Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki hafa einlægt verið mikilir beinamenn, þó svo þeir hafi ekki viljað láta beinagrindur stöðva hagvaxtarþróun í landinu. Frægt er þegar helstu sprauturnar í Framsókn og Sjálfstæðisflokki gerðu sér lítið fyrir, um það bil sem þeir seldu landið í klær amríska hersins og NATO, að gera ferð sína til Kaupmannahafnar til að róta þar í kirkjugarði. Þessar merku sjálfstæðishetjur ætluðu sem sé að grafa Jónas heitinn Hallgrímsson upp og endurjarðsyngja hann á Þingvöllum við Öxará, steinsnar frá Drekkinarhyl, sem löngum var tákn réttlætisins á Íslandi. Ekki tókst samt betur til við gröftin og leitina að skáldinu en svo, að þeir komu heim með fáein feyskin bein sem áhöld eru upp um hvort séu af hundi eða drykkfelldum bakara dönskum. En hvað um það: beinin fengu pípuhattajarðarför á Þingvöllum að viðstöddum grátbólgnum sjálfstæðis- og framsóknarforkólfum, sem vóru blátt áfram yfirbugaðir af sorg við þetta einstæða tækifæri. Nokkrum árum síðar jörðuðu þeir skáldið Einar Benediktsson við hliðina á bakaranum. Í dag keyra rútur, hlaðnar ferðamönnum, út af við hliðina á grafreitnum og liggja þar uppíloft en ferðalangarnir skríða út eins og pöddur og fá áfallahjálp.

Um beinamálið í Kvosinni hefir frú Ingveldur þá skoðun, að hún skilji ekkert í honum Kjartani, eins mikilli frjálshyggjukonu og hann er, að vilja halda í beinarusl þegar hotél og fjárfesting er í boði; frú Ingveldur er meira að segja alveg að komast á þá skoðun að réttast sé að vísa drengkjökrinu úr flokknum og gera hann að hreinsibúnaðareftirlitsmanni og klóakmeistara Reyjkavíkur. Ekki er þó svo að skilja, að frú Ingveldur sé að dylgja í þá átt að Kjartan hafi ásamt framsóknarskessunum valdi biluninni í frárennsli borgarinnar, heldur finnst henni beinagarðstillaga Kjartans þefja af sósíalismaóþverra og jafvel einhverju enn verra. En þar sem Kolbeinn Kolbeinsson skrifstofustjóri og framsóknarmaður, og jafnframt eiginmaður frú Ingveldar, gerir framsóknarskessurnar út, þá hefir slegið í brýnu milli þeirra hjóna vegna þessa óhunanlega máls og hafa þau slegist hvað eftir annað seinnipartinn í dag án niðurstöðu. 


mbl.is Liggur á að koma upp enn einu hótelinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Maður þakkar bara fyrir að Dagur B. sé ekki borgarstjóri í New York og Holu-Hjálmar hjálparkokkur. Þá væri auðvitað strax ráðist í að þétta byggð í Central Park enda vita ómögulegt að þar séu engar blokkir.

Þorsteinn Siglaugsson, 20.7.2017 kl. 21:20

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er meir en þakkarvert að Hjálmar þessi sé ekki einusinni hjálparkokkur á togara, en hvað um það, þá er hann fullgóður hjálparkokkur fyrir Dag. Þó mega þeir eiga það, að þeir eru liðlegir við hið kristilega félag Val og það svo, að halda mætti að þeir séu KFUM-drengir af lífi og sál.

Jóhannes Ragnarsson, 20.7.2017 kl. 21:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband