Leita í fréttum mbl.is

Stórbrotin uppgötvun í géđkrabbalćkningum

cap3.jpgEins og Banzi segir, ţá er alveg gráupplagt ađ bćta geđheilsu og geđheilbrigđismál međ stöđugleika í fjárlögum. Ţetta er án efa langstćrsta uppgötvun í sálvísindum síđan Sálvísndafélag Sviđinsvíkur fékk sjálfan Guđ, fađir andanna, á sálvísindafund hér um áriđ. Og hvađ eru stekkjastaurar eins og Freud og soleiđis kallar í sögulegu samhengi sálarfrćđanna viđ hliđina á stórviki Banza fjármálaráđherra? Svariđ viđ ţví er ađ Freud og ţeir eru algerđ himpigimpi og skítur á priki í samanburđi viđ hann Banz okkar, viđreisnardenginn hugvitssama.

Skog,piltar mínir, eins og frjámálaráđherra hefir kunngert, lćknar aunginn géđkrabba eđur margslungna typpakomplexa međ auknum péníngum í géđheilbrigđismál. Hinsvegar lćknar stöđugleikinn allar sálarflćkjur og geđbilanir. Og ţegar sjálfsmorđinginn hefir smeygt snörunni um hálsinn á sér, spyr hann sjálfann sig hvort nokkur ástćđa sé til ađ hengja sig í sona eindregnum stöđugleika, ţá svarar hann sjálfum sér neitandi og kastar snörunni skćlbrosandi í sorptunnuna. Ţađ er mikiđ lán fyrir eina ţjóđ ađ eiga fjármálaráđherramann eins og hann Banza.

Ţví miđur eru allar líkur á ţví nú um stundir, ađ ţjóđin hans Banza muni afhrópa hann og Viđreisnina í nćstu kosningum og mun ţá sannast enn einu sinni, ađ aunginn er spámađur í sínu föđurlandi. Og fyrst Kolbeinn Kolbeinsson er ekki viđurkenndur spámađur á sínu eigin heimili, hví ćtti ţá ţjóđin ađ gera hann ađ spámanni sínum. Og ţó. Allah er mikill og Múhámeđ er spámađur hans. Á sama hátt er Mammon mikill og Banzi spámađur hans. En íslenska ţjóđin er heims og ţrjósk og vill aungva lćkningu á géđsmunum sínum og veit ekki ađ ,,stöđugleiki" er allra meina bót, ef hann er framkvćmdur í nafni Mammons og hans útvöldu.


mbl.is Vilja bćta geđheilbrigđismál
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband