Leita í fréttum mbl.is

Og guđdómurinn exítérađist yfirkjörstjórn og felldi undirskriftafalsarana

godVér er erum uppi á inum síđustu dýrlegu tímum svo lánsöm ađ skjaldan hefir guđdómurinn veriđ oss nćr í 2000 ár. Ţađ sannađist svo um munađi ţegar Allah, sem heitir líka Jahve eđa Javi, exítérađist yfirkjörstjórn í eigin persónu og sýndi henni fram á ađ Íslenska Ţjóđfylkingin, eđa Ţjóhnappafylkingin svo kallađa, hefđi haft í frammi brögđ í tafli viđ öflun međmćla viđ frambođi sínu til Alţingis. Og yfirkjörstjóin, ţótt glámskyggn sé og nćr lögblind, komst ađ ţví ađ guđdómurinn hafđi lög ađ mćla: undirskriftirnar á međmćlalistum Ţjóhnappafylkingarinnar vóru í meira lagi falsađar og höfđu falsararnir meira ađ segja ekki haft fyrir ţví ađ breyta rithöndum sínum ţegar ţeir vóru ađ falsa undirskriftir fjölda alsaklausra manna og kvenna.

hogg.jpgNú bíđa forsvarsmenn Íslensku Ţjóđfylkingarinna og frambjóđendur hennar ţess eins ađ fá ríxlögreglustjóra og víkingingahersveitina í heimsókn, ţví máliđ er grafalvarlegt, svínslegt og stórglćpsamlegt. Enda gjörir Allah, sem líka heitir Jahve eđa Javi, ađ gamni sínu ađ exetérast einni lögblindri yfirkjörsjórn og koma vitinu fyrir hana. Hinsvegar verđur einstaklega gaman ađ vita hvađ ríxlögreglustjóri, víkingasveitin og dómstólarnir gera viđ hina purkunarlausu og óguđlegu undirskriftafalsara; forđum daga hefđu ţeir veriđ sendir á höggstokkinn eđa í Rasphúsiđ eftir atvikum og alvarleika málsatvika. Í dag hefir höggstokkurinn veriđ lagđur til hliđar sem og Rasphúsiđ, ţví miđur mundi margur segja. En í fljótu bragđi má ćtla, ađ dómstólarnir muni ađ ţessu sinni ekki veigra sér viđ ađ dćma hina stórglćsamlega ţjóhnappa til eilífar útskúfunar á perraganginum á Hrauninu, ţan möguleika á uppreistri ćru.

Ţegar síra Baldvini bárust ótíđindin af Íslensku Ţjóđfylkingunni, sem hann hafđi velţóknun á fram ađ ţessu, brást hann ćvareiđur viđ og bannsöng ţegar í stađ hina brotlegu sem óbetranlega klaufa, vitfirringa og hlandaula og afhenti ţá Djöflinum Sathani í hendur til eilífra pínsla í heitasta Helvíti. Af ţessu getur hvur mađur sagt sér sjálfur, ađ útlitiđ er vćgast sagt svart og skítt fyrir ţjóhnapparćflana, eins og ţeir höfđu lagt á sig viđ ađ telja öllum trú um ađ ţeir vćru 100% háeđalkristnir englamenn og sérlega mikiđ fyrir kristileg gildi og ţjóđhyggju, og ţar ofan í kaupiđ í ţađ minnsta jafn heilagir og Páll postúlón, sem fékk, sćllar minningar, delríum tremenskast á ţjóđveginum og sá eldstópa og eitthvađ fleira af ţví tagi. En nú er sem sé Íslenska Ţjóđfylkingin á hrađferđ út úr íslensku samfélagi, veraldlegu sem geistlegu; ţeir fá ekki sinusinni legstađ í vígđri mold ţegar ţeir geyspa golunni eftir ađ hafa dvaliđ međ perrunum á perraganginum á Hrauninu sín síđustu ár.


mbl.is „Máliđ er verulega alvarlegt“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband