Leita í fréttum mbl.is

Syndsamlegt ómenni og tvíkvćnismađur

bono.jpgVíkur nú sögunni ađ Jóni rithöfundi, ţeim hinum sama og orkti ljóđiđ ,,Kona mín" í samnefndri ljóđabók, en ljóđ ţetta, ásamt bókinni, hefir, af velsćmisástćđum, sem betur fer veriđ bannađ ađ öllu leyti víđast um veröld. Sem kunnugt er Jón rithöfundur einkum kunnur, auk skáldmćla sinna, fyrir ađ hafa einn íslenskra manna komist upp međ tvíkvćni á landi hér. Á ţar síđust öld reyndi skáldbróđir Jóns, Sigurđur Breiđfjörđ, tvíkvćni viđ litlar undirtektir og hafđi verra af, enda hötuđu sannir Íslendingar Breiđfjörđ og sveltu hann í hel í Reykjavík eins og hvurja ađra lúsatík. En öđru máli gegnir um Jón rithöfund, sá gerspillti óţokki hefir komist upp međ meir synd og saurlifnađ en nokkur annar mađur á Íslandi, ađ Kolbeini Kolbeinssyni ekki undanskyldum.

Í hinu frćga ljóđi, ,,Kona mín", fer Jón rithöfundur međ himinskautum hinnar syndsamlegu ómennsku; ţar er međal annarra illra orđa ţessar dćmalausu ljóđlínur: ,,Kona mín er kynvillingur / međ klepra á vissum stöđum." Ţađ ţarf endalausa varmennsku ađ setja svona ćgileg ósköp saman og ekki á fćri annarra en svćsnustu rćfla og drullusokka. Og hvurnig haldiđ ţiđ ađ konu Jóns rithöfundar hafi veriđ innanbrjósts ţegar ţessi ummćli um hana komu á prent? Jú, hún hvarf úr landi eftir misheppnađa hengingu og settist ađ í klaustri á Spáni og gjörđist nunna. Og tilvitnunin í ljóđmćli Jóns rithöfundar hér ađ ofan er ţó ekki nema örlítiđ brotabrot öllu ţví skensi og ađdróttunum sem fyrrum eiginkona ţessa skáldmennisrćfils orkti á hana ţá ţau vóru enn í hjúskap.

Eftir ađ Jón rithöfundur hafđi á fyrrgreindan máta hrakiđ eiginkonu sína út á ystu nöf, tók hann saman viđ tvćr orđlagđar drćsur, víđfrćgar af skćkjulifnađi og glćpum, og hefir deilt međ ţeim einni sćng síđan. Í hús ţessa andstyggilega manns, hafa ţó komiđ persónur, sem mađur hefđi haldiđ ađ vćru vandar ađ virđingu sinni, svo sem frú Ingveldur, Máría Borgargagn, Kolbeinn Kolbeinsson, Brynjar Vondalykt og Indriđi Handređur. Á augabragđi hefir Jóni rithöfundi og drćsunum tveimur tekist ađ fleka og forfćra nefnt sćmdarfólk og fengiđ ţađ út í athafnir, sem eru fullkomlega óprenthćfar og ekki eftir hafandi. Einhverju sinni léku rithöfundurinn og geitur hans tvćr ţann ljóta leik ađ draga Brynjar Vondulykt nauđugann til framferđis, sem jafnvel dýrum merkurinnar mundi aldrei til hugar koma. Eftir ţađ ljóta atvik var Vondalyktin ekki mönnum sinnandi og söng látlaust upp úr ljóđinu ,,Kona mín" mannlega viđurstyggđ eins og ţessa: ,, Kona mín er klaufabárđur / af klaufdýrum fćdd og getin"; einnig: ,,Kona mín er klámprestur / og kamarfemmuskjóđa." Svo er sjá má af ljóđrćnum tilţrifum Jóns rithöfundar fer ekki á milli mála ađ hann er efni nóbelsverđlaunahafa, ţví til stađfestingar eru fjölmargar tilnefninga hans til Nóbelsnefndarinnnar, sem mun eflaust ljúka međ ţví veiklundađir nefndarmenn munu setja ţetta útţvćtti á bekk međ Laxnesi, Heminway og Dostojevskí.  


mbl.is Farbann yfir konu sem beit tungu úr manni
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband