Leita í fréttum mbl.is

Framsóknarlćrdómurinn ţyngstur á metunum

danSko hérna labbakútarnir ukkar, fyrst ţiđ skiljiđ ekki mćlt mál, ţá skiptir nákvćmlega aungvu máli hvort umsćkjandinn, sem hlaut náđ fyrir augum Framsóknarmaddömunnar, hafđi fleiri eđa fćrri háskólagráđur í verkfrćđi eđa einhverju öđru, nú eđa veriđ próflaus og vitlaus međ öllu. Ţađ var vinskapur viđ Sigurđ Inga og gömlu Framsóknarmaddömuna sem réđi úrslitum, annađ ekki. Međ réttu lagi hefđi auglýsingin eftir vegamálastjóra átt ađ hljóđa eitthvađ á ţessa leiđ: Forusta Framsóknarflokksins, fyrir hönd Framsóknarmaddömunnar, óskar eftir ađ ráđa vinkonu og flokksystur Sigurđar Inga sem forstjóra Vegargerđarinnar. Skilyrđi fyrir ráđningu er ađ viđkomandi hafi prófgráđu í dýralćkningum.

Ekki ţarf ađ ţví ađ spurja ađ Framsókn hefir nú ţegar innbyrt bittlínginn og vinkonan ráđin. En ţá bregđur svo viđ ađ framsóknarstóđiđ finnur sig tilknúiđ ađ útbúa fáránlega lygasögum um ráđninguna atarna; sem sé ađ ítrasta hlutleysis og fagmennsku hafi veriđ gćtt viđ ráđninguna og ađ hún sé hafin yfir allan spillingarvafa. Svo skilja framsóknargreyin ekkert í ađ fólk hlćr bara ađ ţeim og trúir ekki einu einasta orđi um ţessa annarlegu spillingarvitleysu. Og til ađ sanna sitt mál, keyrđu framsóknarmennirnir međ ísköldu blóđi yfir vegalamb á ţjóđvegi 1. og létu hinn dýralćknisvćdda vegaforstjóra koma ađvífandi, sona eins og óvart, til ađ lćkna lambiđ. Ţví miđur var lambiđ dautt og vegadýran gaf út dánarvottorđ, en líkinu af lambinu var komiđ til gömlu Framsóknarmaddömunnar, sem át lambiđ ósaltađ og kartöflulaust.

En djöfull og andskoti er ýldufýlan römm af ţessum vagaforstjóragjörningi Sigurđar Inga og litlu jómfrú Alfredós. Oftliga hefir óţrifnađurinn veriđ augljós og ógeđugur međ afbrigđum ţegar framsóknarfénađurinn hefir veriđ ađ athafna sig í spillingardýkinu, en skjaldan hafa óţrifin, ţví miđur, veriđ jafn andskoti löđrandi og augljós sem nú. Nćst ku framsóknarfólin fá ađ ráđa skipstjóra á flóabátinn Ţjóđarsómann, og hafa ţau nú ţegar ákveđiđ ađ tíkin hans Ólafs framsóknarmanns á Stóru-Borgarvöllum, Snotra ađ nafni, verđi ráđin skipstjóri frá og međ 1. september nćstkomandi, en Ólafur var búinn ađ ákveđa ađ farga tíkinni í haust, en fyrst Sigurđur Ingi vildi fá hana sem skipstjóra á flóabátinn fćr hún ađ hjara út ráđningartímann.


mbl.is Einn af fjórum međ verkfrćđigráđu
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ţorsteinn Siglaugsson

Hvađa hvađa, manneskjan hefur svo sannarlega "rekstrarreynslu" :)

Ţorsteinn Siglaugsson, 2.7.2018 kl. 23:37

2 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Og hefir rekstrarreynslu! Ja hér, öllu má nú nafn gefa. Ţađ hafa vćntanlega einhverjir fleiri en vinir og vinkonur Sigurđar Inga og jómfrú Alfredó rektrarreynslu? Eđa hvađ?

Jóhannes Ragnarsson, 3.7.2018 kl. 17:53

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband