Leita í fréttum mbl.is

Ţá var aunginn ríxlögreglustjóri til ađ sprella međ alvarleg mál

síra BaldFyrir daga ,,kennslanefndar" var fariđ međ óţekkta menn beint upp í kirkjugarđ og ţar jađađi séra Jóhann ţá án líkrćđu, en hann og kallarnir sem međ honum voru báru sig til viđ ađ syngja Allt eins og blómstriđ eina yfir gröfinni áđur en mokađ var ofan í. Ţar međ var allt klappađ og klárt, enda var aunginn ríxlögreglustjóri ţá til á Íslandi til ađ flćkja máliđ međ námskeiđarassaköstum og gáfumannaglósum.

Síra Baldvin. Síra Baldvin varđ fyrir ţví óláni á fyrst prestskaparári sínu ađ strákar komu til hans međ part úr manneskju, sem rekiđ hafđi á fjöruna innan viđ plássiđ. Ţessi sending olli sálsorgara fólksins í dálítinn vanda og varđ hann ađ vaka alla nóttina yfir stubbnum. Um morguninn varđ hann fyrir vitrun og eftir hádegi sókti hann smiđinn og skipađi honum ađ byggja utan um ţađ er fyrir lá af hinum látna. Ţegar smiđurinn hafđi slegiđ saman kistukorn úr mótatimbri og tjargađ hana utan, kallađi síra Baldvin saman sóknarnefndina og skipađi líkmenn til ađ taka gröf. Ađ athöfn lokinni barđi síra Baldvin nýsmíđađan kross niđur í leiđiđ međ sleggju, en á krossinum stóđ útlenskt nafn, sem aunginn heimamanna skildi, fćđingar- og dánardagur. 

Í annađ sinn var komiđ međ auđkennislausar líkamsleyfar til síra Baldvins. Ţađ voru götustrákar sem fćrđu honum ţessi ósköp í poka og létu fylgja međ, ađ ţeir hafđu fundiđ ţennan mann ofan í skurđi úti í sveit, hann vćri sennilega búinn ađ liggja lengi. Ekki höfđu strákagerpin fyrr sleppt síđasta orđinu en síra Baldvin ţreif pokann á loft, án ţess svo mikiđ sem kíkja ofan í hann, og lúbarđi drengina svo hrottalega međ honum ađ viđ lá hann drćpi ţá. Er sóknarpresti ţókti nóg ađ gert, götustrákarnir liggjandi hálfmeđvitundarlasir og hágrénjandi á hlađinu og helmingurinn af gumsinu sem í pokanum var hafđi smitast út um strigann og klínst á drengjanna, sagđi hann ţeim ađ snáfa heim til sín og hafa ţennan úldna sel međ sér í pokanum til baka. Síra Baldvin hafđi nefnilega fengiđ vitrun um hvers kyns var áđur en götustrákarnir báru upp erindiđ, og vissi upp á hár ađ í strigapokanum atarna var hreifahlýri en ekki leyfar af framliđnum samborgara.    


mbl.is „Viđ ţurfum ađ vera undir allt búin“
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband