Leita í fréttum mbl.is

Agi verđur ađ vera, annars fer allt í hund og kött

marry2Ţađ er afar skynsamlegt hjá ţeim ađ trođa tuskudruslum og ullarsokkum upp í kjaftinn á stjórnarţingmönnum rétt á međan veriđ er ađ ná frú Andersen fyrir vind, ţví ekki verđur ein dýrđleg brúđur kapítalismans látin sigla sinn sjó ţó ađeins blási á móti. Hann Stengrímur okkar hérna fer til dćmis létt međ ađ ţagga niđur í sínum hvolpum, enda er hann fyrir löngu búinn ađ draga úr ţeim tönnurnar, hafi ţćr einhverjar veriđ fyrir, og setja teygju elligar leđuról um trýniđ á ţeim svo ţeir komi ekki upp neinu bofsi. Já drengir mínir, agi verđur ađ vera og ríkisstjórnarflokkarnir hafa aga á sínu liđi, ekki síst ţegar ósómamál ber ađ garđi.

Og til hvers ćttu búrtíkur og strengjabrúđur Steingríms og Svavarsfjölskyldunar vera ađ rífa kjaft? Frú Lilja Rafney og litli Proppi nýbúin ađ fá ađ fara í fiskeldisferđalag međ fiskeldisdírektörum til Noregs til ađ hitta alvöru norska fiskeldisstórdírektöra og éta međ ţeim steikur og njóta heilaţvottar af löggiltum heilaţottameisturum. Og hefir enginn óvildarmađur VG hugsađ út í hvađ kann ađ bíđa hennar frú Ólsen, jólatrésins mikla, ef hún hröllađist af ţingi, eđa Óla Góđa og sykurpúđans sem ţóktist vera á móti innlimun VG í Sjálfstćđisflokkinn? Nei, ţađ veit ég ađ óvildarmennirnir hafa ekki gert, ţví ţeim er nokk sama um náunga sinn, svo ókristnir og öfundsjúkir sem ţeir eru.

Stengrímur, gamla geggjađa Framsóknarmaddaman, Svavarsfjölskyldan og Stutta-Kata munu, og hafa nú ţegar, skipađ sér ţétt ađ baki frú Andersen og ćtla ađ berjast fyrir hana, málstađ hennar og Flokksins til síđast manns. Nú, ef allt fer á versta veg og ríkisstjórnin hrynur og frú Andersen hrökkur af ráđherravagninum og kanski út í skurđ fullan af dauđum hundum, ţá verđur henn bjargađ og gjörđ ađ formanni í eihverju mannúđarheiđursdómarafélagi í Bandaríkjunum. Annađ eins hefir nú gerst. Já 


mbl.is Stjórnarţingmenn tjá sig ekki
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband