Leita í fréttum mbl.is

Glćpir hreppsnefndamannsins leiddu hann í géđrannsókn og fangelsi

drunk2Öll munum viđ eftir helvískum hreppsnefndarmanninum, sem skreiđ heim til sín úr réttunum í stađ ţess ađ ganga eins og siđađ fólk. Nei, kallálkan hafđi komist í ókeypis brennivín, fyrir utan ađ hann hafđi hálfan lítér af kogara međ sér í úlpuvasanum. Allra mann var hann kátastur í réttunum og sló um sig međ allrahanda vafasömu orđbragđi; hann vildi selja eiginkonu sína Elliđa hreppsnefndaoddvita fyrir tvö kvígildi, ţ.e. skjöldótta kú Elliđa, merkan grip, og sex ćr lođnar og lemdar. Ţegar einhver benti hreppsnefndamanninum á ađ ćr vćru ekki lemdar um ţessar mundir, ţađ vćru ţrír mánuđir í fengitíma, hrökk kallkvikindiđ svo viđ ađ hann rúsdrakk sig um koll af kogesnum bak viđ kamarinn. Eftir ţađ skreiđ hann um réttina og skreiđ síđan heim á fjórum fótum.

Ţví miđur varđ hreppsnefndarmanninum ţađ líka á, ađ lát undir höfuđ leggjast ađ skrá brennivíniđ sem hann ţáđi ókeypis í réttunum í hagsmunaskráningabókina. Fyrir ţá sorglegu yfirsjón var hann kćrđur og var sendur í afplánun í fangelsi ađ undangengini nákvćmri géđrannsókn. Ţegar hreppsnefndarmađurinn sat fyrir svörum geđlćknanna, sem höfđu í höndunum bréf frá oddvitanaum ţar sem glćprir hreppsnefndarmannsins voru tíundađir í löngu máli og hátíđlegu. Ţegar taliđ barst ađ skriđi hans í réttinni og víđar lýsti hreppsnefndamađurinn ţví yfir ađ hann vćri yfirfallinn af skriđdýrseđli og vćri ţađ sennilega ćttgengt.

gapŢví getum viđ fullyrt ađ Páwell má heita ljónheppinn ađ hafa skráđ bođsmiđana sína og fyllikuntuhátíđina fyrir neđan Suđurlandsbraut í sumar. Hefđi hinn virđulegi borgarfulltrúi gleymt ađ skrá, stćđi hann í sporum hreppsnefndamannsins, sem fyrr er getiđ, og vćri á leiđ í gapastokkinn. Hinsvegar lítur ver út fyrir borgarmeistaranum; hann skráđi ekki bođsmiđann sinn og á ţví fyrir höndum hrćđilegan dóm fyrir stórspillingu, slóđaskap og óhreinst hugarfar. Verđi borgarmeistarinn fundinn sekur, sem hann verđur, ţá er ekki örgrannt um, ađ finna verđi nýjan borgarmeistara, og kemur ţá nafn Brýgýtu Jonsdóttur sjálfkrafa upp, svo eđlileg er hún sem eftirkona Dags.

  


mbl.is Enginn skráđ bođsmiđa nema Pawel
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband