Leita í fréttum mbl.is

Orðrómar og orðræður um gluggaskraut ásamt með menningarlegri úrkynjun

x24Það er nákvæmlega sama hvar aunginn er, gangur himintunglanna breyist ekkert við það eitt hvort einn lágkúrulegt gluggaskraut er eða fer. Verst er að umrættgluggaskraut, það er að segja eigendur þess, Stengrímur, Álfheiður og Swabbafamelíen, skuli hafa átt það eitt erindi í ríkisstjórn að tryggja áframhaldandi völd Sjálfstæðisflokksins, erkiauðvaldsins; ég er hræddur um að fæstir þeirra sem tóku þátt í að stofna VG á sínum tíma hafi ekki átt vona á þessháttar traktéringum af hálfu þessa liðs. Reyndar er ég, prívat og persónulega, alveg handviss um, að fyrrnefnd, Stengrímur, Álfheiður og Swabbaslektið voru á þeirri stundum ákveðin í að stefna að ríkisstjórnarþátttöku með Sjálfstæðisflokknum, þó það af alkunnum heiðarleik sínum hafi haldið kjafti um þessa svívirðilegu hugsjón, sem kraumaði í belgnum á því eins og þau hefðu etið óðs manns sjítt.

En nú eru íhaldsfólin, Bjarniben, og Bjössi Bjarna, búin að snú svo skemmtilega upp á handleggjaprjónana á Katrínu að hún er tilbúin að fórna öllu til að geta fundað með hálfmenninu, hálfkvartmenninu segja sumir, sem Trump hefir ákveðið að senda Íslendingum, aðallega í háðungarskyni. Svo er það líka mjög svo út úr kortinu, taktlaust, óviðeigandi, verkalýðsfélagagúbbum Norðurlanda að láta manneskju, sem aldrei hefir verið í verkalýðsfélagi né dýft hendi á kalt vat, væla einhverja steypu eftir broddborgaraaðalinn í VG, yfir þing Norrænna verklýðsfélaga. Það hefði verið yfrið nóg fyrir Katrínu að skreppa bara í matarboð í Garðabæ, hjá honum stórvini hennar, honum Bjarnaben, en láta subbukallinn frá Trump eiga sig, sem og verkalýðinn, sem Katrín hefir aldrei nokkurna tíma átt samleið með.

Á þessum síðustu og verstu tímum, hafa það orðið örlög okkar að fá yfir okkur firrt tómhyggjufífl, sem hafa ekki aðra hugsjón en þá að vera athyglissjúk, hrokafull, karakterheimsk og full hneykslunar á smámuni. Þetta þrifahyski hefir sókt að okkur úr öllum áttum, aðallega þó úr 101, úr klausturknæpumenningunni, græðginni og geggjuninni. Píratar, Samfylking, Miðflokkur, VG, gamla Framsóknarmaddaman, elliær og geðveik, og mafía stigamanna, tvískipt í Sjálfstæðisflokk og Viðreisn, hefir eftir því sem þessi félög hafa úrkynjast og orðið óforskammaðri, lamið á grandalasri alþýðunni eins og brotsjóir. Ef þessum rottugangi fer ekki að linna, þá er viðbúið að villidrjólar á borð við Trump og Pence hirði okkur eins og hvert annað illa farið vogrek.   


mbl.is Gert lítið úr þátttöku Katrínar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband