Leita í fréttum mbl.is

Hiđ frjálsa einkaframtak

piss5Eins og fyrridaginn lćtur hiđ frjálsa framtak Sjálfstćđisflokksins ekki á sér standa á dögum banvćnna farsótta. Glćsilegt dćmi um frelsi og einkaframtak er hiklaus framganga Sjálfstćđisflokksmennisins, ţegar hann ók á ćsilegan hátt fyrir skemmstu, yfir grasivaxnar umferđareyjar borgarinnar á drekkhlađinni steypubifreiđ; menn eru sammála um ađ hann hafi komiđ bílnum yfir eitthundrađ og fimmtíu kílómetra hrađa á bestu köflunum. Og nú er ţessi vaski mađur ásakađur um ađ hafa lagt eld ađ drykkjuknćpu; ţeir vilja meina ađ piltur sé áframgengur brennuvargur ofan á óumdeilda ökuhćfileika hans.

Reyndar varđ tilraunin til ađ kynda upp eldsvođa í knćpunni heldur endaslepp, ţví moldfullur drykkjuraftur koma óforvandis og óvart ađ eldsumbrotunum og mé samstundis á ţá vítisloga, sem áttu ađ eyđa brennivínskránni. Ţađ steindrapst auđvitađ í eldinum, en í stađ hans steig upp hrćđilegur eiturmökkur, sem grandađi nagdýrum milli ţilja, sem og köngulóm og dordinglum hússins. Mannfólkiđ, sem ţar var inni, náđi ađ bjarga sér út á fjórum fótum og liggur nú allt í lúnabógu inni á sjúkrihúsi.

Í dag hafa spámenn haft ofan af fyrir sér međ ţví ađ geta sér til hvar frjálsi einkaframtaksmađurinn ber niđur nćst. Jérimíja spámađur kvađst viss um ađ nćst gripi Sjálfstćđismađurinn til vopna, langlíklegast sprengiefnis, ţví hann hefđi dreymt til ađ hann hefđi séđ eftir bćđi ráđherrabústađnum viđ Tjarnargötu og Stjórnarráđshúsiđ eins og geimskip á hrađferđ í átt til hymmna. Ţeir vita hvađ ţeir segja, spámennirnir okkar. Já.


mbl.is Mađurinn sem var handtekinn sá sami og stal steypubíl
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband