Leita í fréttum mbl.is

Samkvæmt skátabókinni, bls. 219, er sjálfsflekkun afar hættuleg iðja

fleng.jpgSamkvæmt Skátabókinni, bls. 219, er sjálfsfróun mjög hættuleg iðja heilsu þess sem hana stundar. Að lenda í sjálfsfróun, þ.e. falla fyrir sjálfsflekkunarfreistingunni, veiklar fórnarlambið, ef þessi andskoti kemst upp í vana, og eru til margar hroðalegar sögur af þessum fjanda í læknaskýrslum. Nú er upp risinn í Rimunum svokallaður Rimadóni, náskyldur Hvassaleitisdónanum, og hefir þessi þrifagemlingur víst fyrir stafni, allan guðslangan daginn, að falla fyrir sjálfsflekkunarfreistingunni úti í stofuglugga heima hjá sér. Það virðist vera heldur andstyggilegt fyrir aðra Rimunga að búa við athæfi dónans, en þeir geta ekkert að gert, því dóninn býr við friðhelgi heimilis síns.

Kolbeinn okkar Kolbeinsson, skrifstofustjóri og framsóknarmaður, er einn þeirra sem féll fyrir sjálfsflekkunarfreistingunni. Eftir að hann var kvæntur frú Ingveldi lagði hann þennan vafasama sið ekki niður og skeytti aungvu þótt hann ætti á hættu að verða örkumla fyrir vikið. Svo var það eitt sinn úti á svölum að sumri til, að Kolbeinn hóf sjálfsflekkun og fór ekki leynt með. Kérlíngar í nærliggjandi húsum æptu ókvæðisorðum að honum og hótuðu honum líkamsmeiðingum og morði, en Kolbeinn gretti sig bara framan í þær og var hinn gleiðasti.

En á ,,snöggu augabragði", eins og segir í útfararsálminum hans Hallgríms heitins, gerðist sá atburður i lífi Kolbeins, sem nú verður frá greint: Okkar maður, Kolbeinn Kolbeinsson, stóð sem sé sperrtur á svölunum með buxur á hælum og fuglinn í hægri hönd, en með hinni vinstri sendi hann glaðbeittur fokkmerki og leið eins og hann væri ósigrandi. Þá var það, að geitungsdjöfull, stór og vitskertur, kom aðvífandi og stakk eiturprjóni sínum í leyndarlim Kolbeins og varð honum hér um bil að bana. Ekki var nóg með að Kolbeinn ræki upp org, nístandi neyðarhryglu, heldur steyptist hann yfir handrið svalanna og hafnaði ofan í drullusvaði. Kérlíngarnar þustu að honum eins og grimmar hænur og spörkuðu í hann. Loks bar frú Ingveldi þar að og barg hún bónda sínum úr háskanum. En Kolbeinn varð að leggjast á spítala eftir árás geitungsins, því drep kom í stungusárið. Og þarna missti Kolbeinn einn fjórða af leyndarlimi sínum; læknarnir skáru drepið burt því annars hefði meinið orðið svo íllt, að óhjákvæmilegt hefði verið að gelda Kolbein, þennan grandvara og góða mann. 


mbl.is Sjálfsfróun við róluvöll „nánast daglegt brauð“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband