Leita í fréttum mbl.is

Hr. Knallett hefir lurđast í hálfa öld á eftir huglausum ,,stjórnvöldum"

sjóorusta2Ha? Ţađ getur ekki veriđ ađ skipherra á íslensku herskipi, ígildi hershöfđingja til sjávar, sé óeigingjarn. Nei og aftur nei, ţađ getur ekki veriđ. Ef Halldóri Bí. Knallett vćri í raun óeigingjarn hefđi hann fyrir lögnu skorist í yfirgang sćgreifa gegn landinu og alţýđu ţessi, og stökkt ţeim alrćmdu ţorpurum á flótta međ grimmilegri skothríđ úr fallstykkjum herskipsins sem hann hefir stjórnađ. En herra Halldóri Bí. Knallett er eigingjarn og vildi ekki fórna ţćgindum sínum međ ţví ađ verja land og ţjóđ fyrir gripdeildum misyndismanna.

Og af hverju í fjáranum ćtli íslensk stjórnvöld hafi ekki enn sent herskip sín og flugflota til Fćreyja til ađ frelsa Fćreyinga frá helvískum Hund-Danskinum? Ha? Eđa herjađ á Shetland og Orkneyjar og tekiđ ţćr ágćtu eyjar af breska heimsveldinu? Ţađ er erfitt ađ skilja slíka linkind og liđleskjuhátt; vinir okkar á úti í hafi, hér rétt fyrir sunnan okkar, búa viđ ógn og ófrelsi gamalla nýlenduböđla og viđ gjörum ekkert til ađ frelsa ţá og taka ţá upp ađ voru brjósti, ekki neitt. Ţetta er náttúrulega til algerrar skammar!

Nú, hvurnig á annađ ađ vera međ önnur eins stjórnvöld og ríkt hafa alla tíđ hér á landi. Vitanlega hafa svokölluđ ,,stjórnvöld" á Íslandi veriđ skammarlega smá í sniđum, glíkust blauđum og sleikjulegum hundum međ tunguna lafandi út úr sér niđur í götu af undirgefni viđ helvíska nýlendukúgara og ójafnađarfanta. Svo ćtla einhverjir ađ bera á borđ ađ herra Halldóri Bí. Knallett sér óeigingjarn, bara af ţví ađ hann hefir vappađ á eftir liđónýtum og huglausum stjórnvöldum í hálfa öld eins og áburđartrunta í bandi. Nei, góđir hálsar, sonalagađ er allra síst til ţess falliđ ađ skrá í annála.

 


mbl.is Ţakkađ fyrir óeigingjarn starf í ţágu ţjóđar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband