Leita í fréttum mbl.is

Ţegar götustrákar ćra óstöđuga til hermdarverka

grjótŢetta gat heldur ekki öđruvísi fariđ. Ţegar óstöđugir eru espađir upp, til dćmis í hatur á Helga Seljan og Ríkisútvarpiđ, er fátt líklegra en bönd bresti innra međ ţeim veiku og ţeir fara ađ ógna og hóta Helga og Ríkisútvarpinu. Sem betur fer er fyrrum lögreglforingi húsvörđur, eđa eitthvađ soleiđis hjá ríkisútvarpinu, og hann brá hart viđ og snöri hiđ óđa fórnarlamb hatursáróđursins gegn Helga Seljan og Ríkisútvarpsins niđur og fól ţađ í höndur Hálfdáns Varđstjóra, en ţađ eru eins og kunnugt er aungvar kvenmannshöndur.

En ţetta er allt saman gott og blessađ, vandinn leystur - í bili - og hinn bandóđi kominn blessunarlega undir mannahöndur. Hćtt er samt viđ ađ siđvilltir götustrákar haldi áfram ađ efla áróđur, sem hefir ađ markmiđi ađ trylla veikgéđja og einmanna sálir í ţeirri von ađ ţeir ćrist um of og grípi til heimskulegra óyndisúrrćđa. Hver man ekki eftir ţegar Kolbeinn og Brynjar Vondalykt lugu ţví ađ Indriđa Handređi ađ frćndi Kolbeins, Arinbjörn Kolbeinsson, margfrćgur aumingi, skelmir og flagari, vćri í óđaönn ţessa dagana og hafa óleyfileg mök viđ Máríu Borgargagn, eiginkonu Handređsins. Indriđi Handređur varđ aldeilis örvinglađur viđ ađ heyra ţessa frétt, bilađist og sá rautt. Hann rauk í hendingskasti ţangađ sem Arinbjörns var von og ţaut yfir hann eins og túrbó beltagrafa. Ţađ segir sig sjálft, ađ Arinbjörn var lengi ađ ná sér eftir ađför Handređsins og ţurfti hvađ eftir annađ ađ láta veita sér áfallahjálp og hann losnađi ekki endanleg úr gifsinu og sárabindunum fyrr en eftir margra mánađa legu. Arinbjörn var alsaklaus af óleyfilegum mökum viđ Máríu Borgargagn og var ţví ađ sama skapi ósáttari viđ ofbeldiđ sem hann varđ fyrir.

hálf3Mest vćri ţó gaman ađ vita hvurnig Hálfdán Varđstjóri međhöndlađi hatursmann Helga og Ríkisútvarpsins. Ef mér skjöplast ekki ţví meir hefir Hálfdán iđađ í skinninu međan hann var ađ undirbúa sig fyrir yfirheyrsluna. Og undirbúningur Hálfdáns Varđstjóra fyrir slíkar helgistundir er ekkert til ađ gjöra grín ađ. Í ţessu tilfelli trúi ég hann hafi drukkiđ sér eins og rúmlega hálfa flösku af mođvolgu áquavíti í fyrstu lotu og fengiđ sér fáeinar línur af hvítu dufti sem hann hefir gjört upptćkt hjá einhverjum vandrćđamanni. Svo. Svo hefir hann, máske á nćrhaldinu einu fata, hrundiđ dyrum fangaklefans sem geymir hinn bersynduga upp á gátt og haft samstundis fumlaus og öflug endaskipti á ţrjótnum og látiđ hann játa á mettíma. 


mbl.is Handtekinn eftir ađ hafa hótađ RÚV
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband