Leita í fréttum mbl.is

Stækjan upp úr nærhaldi kérlingar

xbÞá er loks vísindalega sannað, að helvítis kóvíðspestin er sjálfur framsóknarvírusinn, sem lengi hefir verið leitað. Þegar vísindamönnum hugkvæmdist loks að að taka sýni upp úr nærbuxum gömlu Framsóknarmaddömunnar, kom í ljós að þar var allt fullt af þessum hættulegu veirum, sem kenndar hafa verið við kóvíð nítjánda. Fyrir vikið verða öll atkvæðin, sem Framsókn fékk í kosningunum á laugardaginn var, tekin af henni og dæmd dauð og ómerk, þar sem grunur leikur á að gamla Framsóknarmaddaman hafi sleppt vírusnum vísvitandi út í loftið til að geta svo kennt Kínverjum um ódæðið. Þetta kallar maður nú að fara lymskulega að. En upp koma svik um síðir.

Þegar vísinda menn sáu hverskyns var í Framsóknarfjósinu og létu þeir heilbrigðisyfirvöld innsigla Fjósið vel og vandlega með allri áhöfn,- og það mikið betur en yfirkjörstjórnir innsigluðu kjörkassana. Að sögn, er íverustía gömlu Maddömunnar baneitrað sóttkveikjubæli og stækjan, sem gaus upp úr nærbuxum kérlingar, var svo svakalega, að verstu og úldnustu forarvilpur Helvítis eru vel lyktandi miðað við þann magnþrungna nærbuxnaþef. Nú, ráðsmaður gömlu Framsóknarmaddömunnar var snarlega tekinn úr umferð þar sem hann var að snudda utan við Klaustur Miðfótunga og lokaður inni í súrheysturni Framsóknarfjóssins; nú liggur hann þar urrandi og bölvandi eins og stíflaður mykjugöltur, en það verður að hafa það.

Nú leikur vísindamönnum grunur á, að riðuveikin, sem þjáð hefir sauðpéning vítt um land, sé upp runninn á vísindastofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöllu, rétt eins og bölvaður miltisbrandurinn. Ef vísindamenn eiga einnig kollgátuna á því méli, eins og þegar þeir uppgötvuðu framsóknarvírusinn, þá má segja að Íslendingum hafi tekist að einangra tvö mestu mein aldarinnar á Íslandi. Þegar svo verður komið að bæði Framsókn og Íhald verða úr leik af sóttvarnaástæðum er ekkert eftir nema að kveða krataeðlið niður, en það er auðvelt að uppræta það með venjulegu flugnaeitri á úðabrúsum. Þá getum vér, frjálsbornir Íslendingar, loks, þegar allt þetta er yfirstaðið, um frjálst höfuð strokið eftir að hafa legið flatir undir járnhæl flokkakerfis eins og blindar pöddur í heila öld.



mbl.is Smitaður einstaklingur á kosningavöku Framsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband