Leita í fréttum mbl.is

Fámennt og illmennt á Eflingarkontórnum í dag

fool3.jpgŢađ var fámennt og illmennt á Eflingarkontórnum í dag. Mannskapurinn meira eđa minna á generalfylliríi og mćtti ekki ekki eđa lá í slagsmálum í borđsalnum og neitađi ađ koma á dekk. Hvađ á góđur skipstjóri annađ ađ gera en ađ kasta slíkum óreglumannskap í land eđa í sjóinn? Upp úr hádegi var Gabríel Benjamín trúnađarhrútur í skrifstofustíunni kominn á beit á Guđrúnartúninu og kroppađi í sig sinurudda og sveppi, og ţađ stóđ blár eldstrókur aftan úr berendanum á karli. Sú sjón dró ađ sér allnokkra vegfarendur sem dáđust allir af Gábríjeli og tóku af honum margar ljósmyndir. Svo fóru sveppirnir ađ gjósa upp úr hausnum á trúnađarhrútnum og eftir ţađ var gamaniđ búiđ.

Ţá er og um ţađ talađ ađ sjúkleiki Eflingarkontóristanna sé alvarlegs eđlis, sumir legiđ í kör svo mánuđum skiptir en ađrir legiđ í stormasömum drykkjuskap og orđiđ ađ bera ađ ţeim og frá. Ein kérlingin, fyrrum skrifborđssjakali, sem breyttist í bjöllu eđa kakkalakk ţegar Sólveig Anna mćtti á alţýđusetriđ í Guđrúnartúni, fuđrađi bókstaflegu upp ţar sem hún sat viđ bćttan rauđvínsdrukk í stofunni heima hjá sér. Er ađ var komiđ dulítil öskuhrúga á stólnum og fyrir framan hann ţađ eina sem eftirvar af hinum fyrrum knáa skrifstofusjakala.

Allt hefir veriđ eftir ţessu og hefir krankdćmi eftirlifandi skrifstofusjakala á Eflingarkontórnum vakiđ athygli vísindasinnađra lćkna, Vatnsmýrar-Kára og Landlćknisembćttisins. Ţykir líklegt ađ krataeđlisvírusinn á Eflingu hafi, illu heilli, stökkbreyst og komist í fugla himinsins, sem veikjast hver um annan ţveran og liggja nú margir dauđir úr drepsóttinni um eyjar, víkur og voga; ţeir verđa allir blessunarlega fallnir frá í haust. Af ţessu má ljóst vera ađ krataeđlisvírusinn er hćttulegur, sem sést best á ţví ađ aumingja karlinn hann Sigurđur Há, sem er afar rótćkur í kratamenningunni og gengur um í verkamannabúningi, fékk vírusinn í hausinn og á ekki afturkvćmt til vits né heilsu; hann hefir nú stundađ linnulausar árásir á Sólveigu Önnu í fjögur ár og er löngu orđinn vágestur á öllum netsíđum á Íslandi.


mbl.is Ná varla lágmarksţjónustu á skrifstofu Eflingar
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband