Leita í fréttum mbl.is

Vođinn er vís ef hćttunni er bođiđ heim

hrútur2Ţađ er stórhćttulegt ađ leyfa rússneskum hafrannsóknarskipum ađ valsa átölulaust um landhelgina okkar. Rússnesk hafrannsóknarskip eru međ allar lestar stútfullar af gríđarlegum fallbyssum, eldflaugum, kjarnaoddum og kjarnorkusprengjum, fyrir utan óteljandi önnur hryllileg drápstól. Ađ leyfa ţessum andskotum ađ fara um landhelgina okkar er ógnar mikill slóđaskapur af hálfu stjórnvalda okkar, svo mikill reyndar ađ réttast vćri ađ setja ţau af fyrir vikiđ.

En viđ getum líka veriđ Rússum ţakklát fyrir ađ rannsaka hafiđ innan íslensku lögsögunnar, ţví ekki gera ađrir ţađ. Ađ vísu höfum viđ einhverskonar fálkalega Hafrannsóknarstofu, en hún gerir nú ekkert annađ en ađ leigja stórhýsi á morđ fjár í Hafnarfirđi af valinkunnum pénígaspámanni, leita dauđaleit ađ lođnu fyrir útgerđarauđvaldsrassana og stunda einskisnýtt netarall á vorin í fjáröflunarskyni, svo ţeir eigi fyrir olíu á rannsóknarskipin sín ţegar ţeir fara ađ leita ađ lođnunni sem útgerđarauđvaldsrassarnir eru alveg viđ ađ útrýma.

En hvađ mundu stjórnvöld okkar segja ef rússnesku hafrannsóknarskipin mundi allt í einu ösla inn Eyjafjörđ og Skagafjörđ og taka Samherja og gifturíka kaupfélagsstjórann og hans hafurtask á Sauđárkróki traustataki? Eđa skjóta Hornbjarg niđur međ einum vel löguđum kjarnaoddi? Ţá ţýddi nú lítiđ fyrir Katrínu, Bjarnaben og ráđsmann Framsóknarmaddömunnar ađ gera í buxurnar og kvaka eins og skottbrotnir hvolpar.

 

 

 

 


mbl.is Heimilt ađ vísa erlendum „rannsóknarskipum“ frá
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: FORNLEIFUR

Sćll Olavicious, ţú gleymir blessuđum áróđursbleđlunum sem ţessi skip lauma í land á andnesjum til ađ hafa áhrif á kosningahegđun Íslendinga. Leyniţjónustur í Danaveldi vara viđ ţví ađ Pútín sé međ putana í öllu fyrir kosningar í Danmörku 1. nóvember nk. Ađrir sérfrćđingar benda aftur á móti og réttilega á, ađ međan ađ allir flokkar í DK eru andrússneskir, sé ţađ tímaeyđsla hjá Pútín ađ reyna ađ ađ hafa áhrif á kosningar í Danmörku. En hefur ţú tekiđ eftir undarlegri hegđan Bjarnaben ađ undanförnu? Ćtli puttinn sé kominn á kaf upp í Bjarna bakara? Konur í flokki fokksins hafa ađ minnsta kosti veriđ ađ lesa Putaáróđurinn sem schmellvirkar á Fróni. Djöfullinn stundađi álíka áróđur í Ţjóđkirkjunni međ góđum árangri og tókst bćrilega ađ ţví er manni sýnist.

FORNLEIFUR, 8.10.2022 kl. 05:28

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband