Leita í fréttum mbl.is

Auðvitað þykir Sælandinu ekkert athugavert við að varpa fárveiku fólki í dýflissuna

Það er ansi sérkennilegt að konugarmur, sem fer fyrir stjórnmálaflokki, sem það kalla Flokk fólksins, skuli skuli taka jafn ógeðslega afstöðu og raun ber vitni gagnvart veikum manni, sem íslenska dóms- og lögreglukerfið var svo fallegt í sér og hákristilegt, að dæma í fangelsi og loka inni á Litla-Hrauni. Hinum kunna lýðskrumara, frú Sæland þykir ekkert athugavert við að kasta sjúklingi í dýflissuna. Svona maður á greinilega ekkert annað skilið, að hennar dómi, en að vera rekin úr landi, út á Guð og gaddinn, og fluttur eitthvert þangað sem frú Sæland og Kjörísprinsessan þurfa ekki að frétta neitt af afdrifum hans.

Hérna áður og fyrr þókti ekkert sérlega mannborulegt að úthýsa vegmóðu fólki. En þeir voru því miður til sem ráku fólk, sem hvergi átti höfði að halla, af höndum sér, kannski út í opinn dauðann og var andskotans sama þókt persónur sem þeir úthýstu fyndust dauðar á víðavangi skömmu síðar eða aldrei. Af þessum úthýsurum eru ugglaust þær aumu mannfýlur komnar í beinan karllegg eða kvenlegg, sem riðið hafa röftum hér á landi og eru fræg fyrir að hafa sóðalega og úrkynjaða útlendingaandúð og mannfjandskap í farteskinu. Þessum vesölu, lýðskrumandi fígúrum, sem eru í raun fátt annað en hræsnin, illgirnin og heimskan, munar auðvitað ekkert um að klöngrast niður á Alþingi, eða vaða eins og flóðhestar inn á fjölmiðla, og orga þar upp innblásnum ræðum um kjör fátæklinga, aldraðra og öryrkja með tilheyrandi krókódílatáraflóði, í sömu andrá og þeir reka heimilislausa öreiga úr landi eða fangelsa fársjúka menn.

Ekki veit ég hvað það er sem rekur lýðskrumara og valdastreðara til að fremja óhæfuverk eða gera út á lágkúru og lægstu hvatir mannskepnunnar sér til framdráttar. Ekkert samfélag þarf á slíkum ónytjungum og illgresi að halda. Svo lið var í eina tíð stundum kallað veraldaraumingjar eða smámenni og þóktu ekki í húsum hæfir hjá sæmilega siðuðum mönnum. Og fjölmiðlarnir? Já, svo eru það fjölmiðlarnir sem eiga alltaf nóg rúm fyrir andstyggðar- og heimskuboðskap úthýsaranna og mannhataranna. Hvað gengur þeim til? Hvað er siðferði þeirra langt fyrir neðan meðallag? Hvern fjárann á þetta óskiljanlega dekur við þvílík samfélagseyðileggjandi endemi að þýða?  


mbl.is „Þá væri þessi Mohammed Kourani farinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband