Leita í fréttum mbl.is

Herra ríkissaksóknari, nú er nóg komið

saksóknNú er nóg komið. Herra vararíkissaksóknarinn hefir nú gjört sig að slíkum últra taðvamba fyrir framan alþjóð að fordæmalaust er. Það verður að taka manninn úr umferð nú þegar áður en hann eyðileggur orðspor landsins um alla framtíð. Það er sem sé mikið í húfi núna.

Það er til dæmis sérlega ámælisvert af vararíkissaksóknara að veitast eins og raun ber vitni að óhörðnuðum unglingi, eins honum syni Swaneesýar, með illmælgi og hrottaskap. Það er sagt að drengurinn hafi farið að gráta undan svarragangi og fólsku vararíkisaksóknara og sé óhuggandi. Þeir segja að hann hafi rassskellt barnið. Auk þess er aðalríkisáttasemjari alveg eyðilagður yfir þessari uppákomu. 

fleng1Á meðan þessu fer fram skrifa allrahanda dólgar og djöflar óhróður um bláfátæka útlendinga í blöðin og kjamsa á meintum glæpum þeirra, nauðgunum, morðum og þjófnuðum, og öðru lúalegu atferli sem ekki einusinni Andskotanum mundi nokkru sinni koma til hugar að taka sér fyrir hendur að fremja. Sumum er jafnvel farið að gruna að þessir náungar gangi ekki heilir til skógar, að þeir séu einhverskonar smá-nasijónalhitlerar, sem finnist nú loks tímabært að skríða út úr rottuholunum sínum og leyfi fólki að dást að gáfum þeirra og andlegu atgervi. En það er eftir sem áður algerlega ófært að láta vararíxsaksóknara valsa um eins og honum hefir þóknast upp á síðkastið.


mbl.is Segja Helga hafa gert sig vanhæfan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband