Leita í fréttum mbl.is

Hvað segir Gamla testamentið um svona athæfi?

prestur12Hvað ætli Gamlatestamentið, bókin sem síónístarnir byggja yfirgang sinn og landrán í Palestínu, segi um það að níu siónístar leggist með einum fanga nauðugum sem kona væri? Ha? Fyrr má nú vera hugsjónaeldurinn og starfsgleðin í þessum síónístum sem bárust illu heilli frá Evrópu og segjast vera gyðingar. Og þeir eru ekkert að hugsa um hvernig karlanganum, fanganum, hefur liðið þegar þeir voru að hafa ofbeldismök við hann og hvernig honum hefir liðið síðan. Svo er útilokað að gagnrýna þessi ofumenni á nokkurn hátt án þess að kallaður ,,gyðingahatari", rétt eins og gagnrýnandinn sé einhver Hitlir, Göobbels og Geöring.

Einhverjar heimildir eru til um að forfeður Íslendinga hafi verið fórnarlömb sem hrakist hafi á haf út undan ofríki blóðgrimmra yfirgagnshunda í Norðvegi og endað hér eftir ólýsanlega hrakninga uppi á Ísandi, þar sem þeir hafa pínst í þúsund ár. Hvernig ætli blessuðum Norsurunum litist á ef Íslendingar birtust allt í einu í einhverju af lífvænlegustu héruðum Norðvegs, settu sig þar niður þegjandi og hljóðalaust og tækju þar land til búskaps og umsvifa til lands og sjávar og nytu fulltingis gömlu nýlenduveldanna og Bandaríkjanna til þess arna? Það mætti ætla að Norðmenn mundu bregðast ókvæða við og freista þess að reka íslandsdólgana af höndum sér. En því miður, þá kæmi til kasta ESB og Kana, og þeir mundu láta Íslendingum á landnámsbyggðum þeirra í Norðvegi kjarnorkusprengju í té auk annarra hroðalegustu vígtóla sem mannsandanum hefir hugkvæmst að framleiða.

hálf8Já, vinir mínir, slæmt er það. Og þegar Norskir karlar og kérlíngar færu að rífa kjaft yfir landráni voru og ójöfnuði, þá mundum vér bara segja þeim að halda kjafti og ennfremur að vér hefðum lesið það í gömlu bókum, að vér ættum lönd og lén í Norðvegi, sem ribbaldar stálu af oss, og nú værum vér aftur komnir til að taka þýfið til baka, og í drotins nafni og allra heilagra ættum vér fullan rétt á því. Það er nú það. En hvor vér mundum, níu saman, taka norskan karlfanga og svala kynferðislegu óeðli voru á honum læt ég liggja milli hluta að spá í.

 


mbl.is Níu hermenn sakaðir um að nauðga palestínskum fanga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband