Leita í fréttum mbl.is

Framfaratímar úr leik, samfaratímar teknir við

sparkÁ tímum sem þessum er óviðeigandi, að ekki sé sagt óviðurkvæmilegt, að tala umsögulega framfaratíma, enda eru slíkir tímar ekki á boðstólum að sinni og hafa ekki verið um hríð. Hins vegar fara brátt í hönd sögulegir samfaratímar, og þeir ekki af lakari tegundinni. Því ber að fagna. Um verslunarmannahelgar eru samfarir og samræði mjög í heiðri höfð, og allir sem vettlingi valda og einhverja náttúru eiga aflögu veltast um nærbuxnalausir þessa helgi, alveg frá fimmtudagkveldi og fram yfir hádegi á mánudag.

Í þokkabót hafa nýfrjálshyggjumennirnir, með Eimreiðarhópinn í broddi fylkingar, gefið út að þeir séu fallnir frá pénínga-nýfrjálshyggju en tekið samfaranýfrjálshyggju upp í staðinn. Við þekkjum þessa menn og vitum sem er, að engum er betur treystandi til að einkavæða samfarirnar til stórframfara eru einmitt eimreiðungarnir. Það stendur sem sé til að lengja hið al-buxnalausa verslunarráðs- og manna samfaraástand út þetta ár og fram á næsta vor, hið minnsta. Hvert einhverjir verði þá orðnir dasaðir eins og hundar eftir vel heppnað lóðarí, verður bara að koma í ljós, en þeir sem þola ekki eðlilega þróun og samfarir verða þá bara að hellast úr lestinni og hafna í til þess gerðum mógröfum með sínum líkum.

ing27Og víst er Gwöðne forseti að hrökklast frá Bessastöðum með öngulinn þverhúkkaðan gegnum báðar rassakinnarnar. Fari hann vel, - vér syrgjum það svona rétt mátulega. Í staðinn fáum við orðlagða péníngaskjóðu á afsláttarvolvó frá Brimborgurum til að búverka ekki neitt á Bessastaðapartinum. Skjóðan verður vígð inn á staðinn með þeim þjóðlega ,,jambus", sem hófst með skólapiltum á Bessastöðum fyrir stinnum tvöhundurð árum. Það verður gaman fyrir yfirstéttina, Brimborgara og Engeyinga, að fylgjast með þeirri innsetningu.

Hvað varðar myndina sem fylgir frétt mbl.is af Gwðne á ,,sögulegum framfaratímum" þá tekur nýi ráðherrann sig einstaklega vel út á henni. Og sannast þar enn og aftur hið fornkveðna: 
,,Fálma ég mig inn göngin hér 
og rek mig loks á borðbrúnina;
ég er eins og jólatré,
ég er í ríkisstjórninni".

 


mbl.is Bjarni: Guðni forseti á sögulegum framfaratímum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband