Leita í fréttum mbl.is

Svo Cameldýrið lét sig hafa að velja minni-sótann Wollzz.

elgfróðiCameldýrið Harris valdi valdi þá minni-sótann Walz sér til varaforsetaefnis að þessu sinni. Ég er nokk viss um að Trumpið flautar á þessa visku Cameldýrsins, því Walz (borðið fram Wollzz) er frægur afturúrsiglari og naut. Ekki vitum vér hvaða tegund fávisku er bak við val Camelsins, en viðbúið er að ekki finnist nokkur sála til að kjósa framboð hennar út á minni-sótann. Það eru því allar líkur á að framboð Cameldýrsins verði það sem kallað er fíaskó og hún verði að kosningu lokinn send til Síberíu eða Sádí Arabíju. Það ber nefnilega að hegna fólki fyrir svona axarspaft sem Wollzzarinn vissulega er.

Þá hefði verið nær fyrir frú Camel að fá Áslaugu Örnu, Ólabjörn Kárason eða framsónaryrðlinginn Ásmund Einar Daðason í framboð með sér til varformanns. Öll þrjú eru ungar stjörnur á hvínandi uppleið. Eins hefi verið vel séð hjá Camledýrinu að fá Kristrúnu du la Kvika Kapítal til liðs við sig eða Þorvald Gylfaþornsson, þau eru nefnilega kostulegur fénaður og frávita af démókratísku krataeðli. Svo eru Siljabora bandaríkjafræðingur og kanasleikjan Kritófer á lausu. En Cameldýrið Harris er blind og féll á fyrsta prófi.

Á meðan vér Íslendingar settum á dögunum eina péníngahít með klút um svírann sem forseta hjá okkur, sem sé ana Höllu de la Auður Capítalism, sem forseta hérna hjá okkur, þá er allt í ólestri hjá demókrötunum í Bandaríkjunum, þeirra bestmann orðinn gersamlega elliær og settur af fyrir afglöp og vitleysu, en í staðinn fengu þeir eitt veleðla cameldýr með totu. Það verður létt verk fyrir abelsínugöla götustrákinn Trump að bera sigurorð af svona finngálknum. 


mbl.is Tim Walz er varaforsetaefni Harris
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jóhannes Ragnarsson
Jóhannes Ragnarsson

Höfundur er búsettur í Ólafsvík.

netfang: joiragg@visir.is  Sími:436-1438 og 895-1438

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband